Útdráttur
Með framseldri reglugerð (EB) 2024/1765 og viðauka hennar eru settar fram tækniforskriftir fyrir lykilþætti áhættustýringar við endurnotkun fráveituvatns sem settar eru fram í II. viðauka við reglugerð (ESB) 2020/741. Í framseldri reglugerð er lögð áhersla á áreiðanlegustu vísindalegu gögnin í áætlunum fyrir áhættustjórnun um endurnotkun vatns frá skólphreinsistöðvum, til að tryggja að áveita með endurunnu vatni sé örugg fyrir heilsu manna og dýra og umhverfið.
Nánari efnisumfjöllun
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1765 frá 11. mars 2024, útvíkkar reglugerð (ESB) 2020/741 um endurnotkun vatns, þ.e. hreinsaðs skólps til notkunar á landbúnaðarland.Í inngangsorðum reglugerðar 2024/1765 segir:(1) Í reglugerð (ESB) 2020/741 eru settar fram lágmarkskröfur um örugga endurnotkun fráveituvatns til áveitu í landbúnaði. Í 6. gr. er kveðið á um að framleiðsla og afhending endurunnins vatns sé háð leyfi og að slík leyfisveiting sé byggð á áhættustjórnunaráætlun (risk management plan). Í 3. mgr. 5. gr. er þess krafist að áætlanir um áhættustýringu á endurnotkun vatns skulu byggja á þeim þáttum áhættustjórnunar sem fram koma í viðauka II. (2) Gerð áætlana um áhættustjórnun fyrir endurnýtingu fráveituvatns getur verið flókið verkefni sem krefst þverfaglegrar nálgunar og undirbúningur krefst aðkomu marga aðila. Vegna þessa er talið nauðsynlegt að mæla fyrir um tækniforskriftir fyrir lykilþætti áhættustýringar sem settir eru fram í viðauka II við reglugerð (ESB) 2020/741. Markmiðið er að útlista nánar að hverju skuli hugað við gerð áætlunar um áhættustjórnun og heildstæðri greiningu á endurnýtingu fráveituvatns. Að því tilskildu að tækniforskriftirnar sem settar eru fram í framseldri reglugerð 2024/1765 séu virtar er talið að það ætti að vera mögulegt að nota fyrirliggjandi mat á áhættu- og stjórnunaráætlanir til að útbúa áhættustjórnunaráætlun. (3) Til þess að áætlun um áhættustjórnun veiti áreiðanlegar upplýsingar við gerð fyrirbyggjandi ráðstafana og takmarkana og til að tryggja að áveita með endurunnu fráveituvatni sé örugg fyrir heilsu manna og dýra og umhverfið, ætti hún m.a. að vera studd áreiðanlegustu vísindalegum gögnum sem til eru og þær ítarlegar skráðar í áætluninni. (4) Fyrirkomulag endurnýtingar á fráveituvatni getur verið mismunandi í uppsetningu og þjónað töluverðum fjölda notenda. Ennfremur getur ein áætlun um áhættustjórnun náð til fleiri en eins kerfis um endurnýtingu á fráveituvatni, í samræmi við reglugerð (ESB) 2020/741. Tækniforskriftir lykilþátta áhættustýringa ættu að vera nægilega sveigjanlegar til að mæta þessum mun en veita um leið heildstætt yfirlit yfir kerfið sem og nægar upplýsingar til að hægt sé að greina allar hugsanlegar áhættur sem um ræðir. Ákvæði reglugerðar 2024/1765:1.gr.Tækniforskriftir fyrir áhættumat skv. viðauka II við reglugerð (EB) 2020/741, er sett fram í viðauka við reglugerðina. 2.gr.Reglugerðin öðlast gildi á tuttugasta degi eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.Reglugerð þessi er bindandi í heild sinni og gildir í öllum aðildarríkjunum án frekari lögfestingar. Viðauki:Tækniforskriftir fyrir lykilþætti áhættustýringar við endurnotkun vatns. Lögð er áhersla á að styrkja staðla fyrir áhættustjórnun til að tryggja örugga og skilvirka endurnotkun fráveituvatns. Viðaukinn lýsir tækniforskriftum fyrir grundvallarþætti áhættustýringar, þ.á m. eru:Vöktun og hættugreining: Skólphreinsistöðvar í þéttbýli verða að fylgjast náið með gæðum fráveituvatns, með áherslu á mengunarefni og rennslishraða sem gætu haft áhrif á gæði endurunnins vatns. Þetta felur í sér að bera kennsl á mögulegar hættur við endurnotkun, sérstaklega þær sem gætu haft neikvæð áhrif á heilsu manna eða umhverfi.Geymsla og dreifing: Í reglugerðinni er tilgreint að geymsla á endurunnu vatni skuli koma í veg fyrir mengun, með leiðbeiningum um geymslu, dvalartíma og gæðaeftirlits. Innviðir þurfa einnig að fela í sér ráðstafanir til að koma í veg fyrir mengun á öðru vatni, svo sem neysluvatni.Áveita og ræktun: Tækniforskriftirnar fjalla um áveituaðferðir og flokka/tegundir ræktunar. Til dæmis er mælt með mismunandi vatnsgæðaflokkum eftir því hvort hið ræktaða kemur til neyslu fyrir eða eftir vinnslu þess.Hlutverk og ábyrgð aðila: Sérhver hagsmunaaðili sem kemur að endurnýtingu á fráveituvatni - allt frá hreinsistöðvum til notenda - verður að hafa skýrt skilgreint hlutverk við að stýra og draga úr áhættu sem tengist notkun endurunnins fráveituvatns. Tengsl við aðra löggjöf ESB:Með því að setja tækniforskriftir, fyrir lykilþætti áhættustýringar vegna endurnotkunar á fráveituvatni, sem samræmast þegar gildandi reglum er reglugerð 2024/1765 ætlað að tryggja að aðferðir til endurnýtingar á fráveituvatni séu samræmdar, öruggar og stuðli að víðtækari umhverfis- og sjálfbærnimarkmiðum ESB.Snertifletir eru m.a. við eftirfarandi reglugerðir og tilskipanir ESB: Rammatilskipun um vatn (2000/60/EB): Reglugerð 2024/1765 styður markmið vatnatilskipunarinnar um samþætta stjórnun vatnsauðlinda með því að setja staðla fyrir gæði endurunnins fráveituvatns, sem hjálpar til við að draga úr álagi vegna notkunar á fersku vatni. Henni er ætlað að tryggja að notkun endurunninsfráveituvatns hafi ekki neikvæð áhrif á umhverfismarkmið yfirborðs- og grunnvatnshlota og greina hugsanlega hættu á versnandi ástandi vatnshlota. Tilskipun um verndun grunnvatns gegn mengun (2006/118/EB): Reglugerðin stuðlar að því að greina hugsanlega hættu á rýrnun á efnafræðilegu ástandi grunnvatnshlota sökum notkunar á endurunnu vatni til áveitu í landbúnaði. Tilskipun um hreinsun skólps frá þéttbýli (91/271/EBE): Með því að tilgreina endurnotkun hreinsaðs fráveituvatns er reglugerð 2024/1765 viðbót, við tilskipunina, sem kveður á um meðhöndlun skólps í þéttbýli til að vernda umhverfið. Reglugerðin fjallar um endurnýtingu hreinsaðs skólps á öruggan hátt, stuðlar að sjálfbærni og því að umhverfisgæðamarkmiðum sé náð. Þann 5. nóvember 2024 samþykkti ráðherraráð ESB nýja (endurskoðaða) tilskipun um hreinsun skólps frá þéttbýli (fráveitutilskipun) þar sem gerðar eru töluvert strangari kröfur um hreinsun skólps en tilskipun 91/271/EB gerir. Reglugerð um losun og flutning mengunarefna (EB nr. 166/2006): Reglugerð 2024/1765 felur í sér þætti úr þeirri reglugerð til að tryggja gagnsæja rakningu og eftirlit með mengunarefnum, sérstaklega þar sem iðnaðarlosun gæti haft áhrif á gæði vatns sem ætlað er til endurnotkunar. Slík rakning styður við áhættumatið og stjórnun með því að bera kennsl á hugsanlegar uppsprettur mengunarefna í endurunnu vatni. Græni sáttmálinn (e. European Green Deal): Reglugerð 2024/1765 samræmist hluta græna sáttmálans sem hvetur til sjálfbærra landbúnaðarhátta, með því að mæla fyrir um örugga valkosti fyrir endurunnið vatn. Þetta dregur úr þörf fyrir notkun ferskvatns og stuðlar að því sjálfbærnimarkmiðum fyrir vatn í matvælaframleiðsluferlinu verði náð. Tilskipun um gæði neysluvatns (2020/2184): Reglugerð 2024/1765 krefst ráðstafana til að forðast mengun neysluvatns og tryggja öryggi drykkjarvatns þ.e að endurnýting á fráveituvatni sem hafi ekki áhrif á neysluvatn. Tilskipun um verndun vatns gegn mengun af völdum köfnunarefnis frá landbúnaði (91/676/EBE): Með því að setja kröfur um áhættustjórnun tekur reglugerðin til greina áhættu vegna mengunar yfirborðsvatns eða grunnvatns af völdum köfnunarefnis. Tilskipun um umhverfisgæðakröfur að því er varðar stefnu í vatnsmálum (2008/105/EB): Reglugerð 2024/1765 gerir kröfu um umhverfisgæðastaðlar fyrir forgangsefni og aðra mengunarvalda séu uppfylltir og skal því í áhættumati bera kennsl á hugsanlega hættu á rýrnun á efnafræðilegu ástandi yfirborðsvatnshlota vegna notkunar á endurunnu fráveituvatni.