32024R2220
Commission Delegated Regulation (EU) 2024/2220 supplementing Regulation (EU) 2019/2144 of the European Parliament and of the Council by laying down detailed rules concerning the specific test procedures and technical requirements for the type-approval of heavy-duty motor vehicles with regard to their event data recorder and for the type-approval of those systems as separate technical units and amending Annex II to that Regulation
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2220 frá 26. júlí 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2144 með því að mæla fyrir um ítarlegar reglur sem varða sértækar prófunaraðferðir og tæknilegar kröfur vegna gerðarviðurkenningar þungra vélknúinna ökutækja að því er varðar atvikarita þeirra og vegna gerðarviðurkenningar þeirra kerfa sem aðskildar tæknieiningar og um breytingu á II. viðauka við þá reglugerð
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.01 Vélknúin ökutæki |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 046/2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Markmiðið með reglugerðinni er að tryggja að þung ökutæki í flokkum M2, M3, N2 og N3, þ.e. hópbifreiðar og vöruflutningabifreiðar, verði búin atvikarita, e. event data recorder, EDR. Atvikariti á að safna mikilvægum upplýsingum um árekstra. Honum er ætlað að skrá upplýsingar fyrir árekstur, á meðan árekstur gengur yfir og eftir að hann er yfirstaðinn. Tilgangurinn er að auka skilning á orsökum slysa og hvernig öryggiskerfi í ökutækjum virka. Með þessu er stefnt að því að bæta öryggi ökutækja, draga úr slysum og tryggja betri greiningu á umferðaróhöppum. Það mun síðan stuðla að því að auka umferðaröryggi. Áhrif hér á landi óbein að mestu. Kostnaður innan marka reglubundinnar starfsemi.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Markmiðið með reglugerðinni er að tryggja að þung ökutæki í flokkum M2, M3, N2 og N3, þ.e. hópbifreiðar og vöruflutningabifreiðar, verði búin atvikarita, e. event data recorder, EDR. Atvikariti á að safna mikilvægum upplýsingum um árekstra. Honum er ætlað að skrá upplýsingar fyrir árekstur, á meðan árekstur gengur yfir og eftir að hann er yfirstaðinn. Tilgangurinn er að auka skilning á orsökum slysa og hvernig öryggiskerfi í ökutækjum virka. Með þessu er stefnt að því að bæta öryggi ökutækja, draga úr slysum og tryggja betri greiningu á umferðaróhöppum. Það mun síðan stuðla að því að auka umferðaröryggi.Efnisútdráttur: Í reglugerð (ESB) nr. 2019/2144 kemur fram að framkvæmdastjórnin skuli setja tæknilegar kröfur um atvikarita fyrir stórar flutningabifreiðar og prófunaraðferðir á þeim. Þær eiga að taka gildi fyrir nýjar tegundir ökutækja af þessu tagi frá og með janúar 2026. Þetta mun hjálpa til við að afla nákvæmari og fullkomnari upplýsinga um slys sem yrðu notaðar til rannsókna og greiningar. Í gerðinni eru settar fram kröfur sem gera á til atvikarita og verða forsendur fyrir því að þeir verði viðurkenndir af Evrópusambandinu.Skylda verður að hafa atvikarita í þungavinnubílum í ofangreindum flokkum. Nýjar tegundir ökutækja í þessum flokkum þurfa að vera búnar atvikarita frá 7. janúar 2026 og öll ný ökutæki í sömu flokkum frá 7. janúar 2029Þegar er gerð krafa um atvikarita (EDR) fyrir nýjar tegundir fólksbíla og sendibíla, þ.e. ökutækjaflokka M1 og N1.Í reglugerðinni er lögð áherslu á að gögnin verði ópersónugreinanleg og aðgangur að þeim lokaður.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Krafan um að búa ofangreindar bifreiðar atvikaritum leggst á framleiðendur.Samgöngustofa þarf að uppfæra innri og ytri verklagsreglur sem tengjast NIVA kröfum og upplýsingum sem gefa þar til notenda. Heimasíða stofnunarinnar er notuð til þess.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoð er að finna í 4. mgr. 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Innleidd í reglugerð um gerð og búnað ökutækja nr. 822/2004.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Óverulegur kostnaður fyrir Samgöngustofu, hefðbundin verkefni við uppfærslu og kynningu.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: NeiTilgreining á hagsmunaaðilum: Tæknideild ökutækja og innviðir hjá SGS verður fyrir áhrifum.Ytri hagsmunaaðilar sem verða fyrir áhrifum eru þeir sem flytja inn nýjar bifreiðar í þessum flokkum ökutækja.Reglugerðin hefur þannig einungis áhrif á ökutæki sem skráð eru eftir gildistöku, samkvæmt þeim tímamörkum sem fram koma í reglugerðinni, þ.e. 7. janúar 2026 fyrir nýjar tegundir ökutækja og 7. janúar 2029 fyrir öll ný ökutæki.Breytingin hefur lítil áhrif hér á landi vegna bifreiða sem eru gerðarviðurkenndar í Evrópu. Hún er hins vegar líkleg til að hafa áhrif á viðurkenningu bifreiða, sem eru ekki gerðarviðurkenndar í Evrópu. Það á þá aðallega við vegna bifreiða sem fluttar eru til landsins frá Bandaríkjunum. Þaðan koma bifreiðar sem að mestu falla í flokk N2Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: NeiÞörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoð er að finna í 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Innleiðing verði með breytingu á reglugerð um gerð og búnað ökutækja nr. 822/2004. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32024R2220 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/2220, 2.10.2024 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | C(2024)5214 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 38, 12.6.2025, p. 7 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/1023, 12.6.2025 |
Breytir (Modifies)
| 32019R2144 | amends, based on, completes | Regulation (EU) 2019/2144 of the European Parliament and of the Council of 27 November 2019 on type-approval requirements for motor vehicles and their trailers, and systems, components and separate technical units intended for such vehicles, as regards their general safety and the protection of vehicle occupants and vulnerable road users, amending Regulation (EU) 2018/858 of the European Parliament and of the Council and repealing Regulations (EC) No 78/2009, (EC) No 79/2009 and (EC) No 661/2009 of the European Parliament and of the Council and Commission Regulations (EC) No 631/2009, (EU) No 406/2010, (EU) No 672/2010, (EU) No 1003/2010, (EU) No 1005/2010, (EU) No 1008/2010, (EU) No 1009/2010, (EU) No 19/2011, (EU) No 109/2011, (EU) No 458/2011, (EU) No 65/2012, (EU) No 130/2012, (EU) No 347/2012, (EU) No 351/2012, (EU) No 1230/2012 and (EU) 2015/166 | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
