Útdráttur
Megintilgangur breytinganna er að auka skipti á gögnum um öryggi milli þeirra sem reka flugvelli og þeirra sem sjá um að veita þjónustu á þeim. Samræma á kröfur um samskipti milli stjórnunarkerfa þeirra sem sinna bæði flugvalla- og flugafgreiðsluþjónustu. Skilgreint er nánar en verið hefur hvar ábyrgð liggur milli mismunandi þjónustuaðila á flugvöllum. Sérstakar kröfur eru settar um geymslu hættulegra efna og meðferð hleðslueiningarbúnaðar. Nýjar og nákvæmar kröfur eru settar um öryggi vegfarenda við eldsneytisgjöf á flughlöðum. Ekki áhrif hér á landi önnur en að uppfæra þarf verklagsreglur og stjórnunarkerfi. Ekki kostnaður.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Megintilgangur breytinganna er að auka skipti á gögnum um öryggi milli þeirra sem reka flugvelli og þeirra sem sjá um að veita þjónustu á þeim. Samræma á kröfur um samskipti milli stjórnunarkerfa þeirra sem sinna bæði flugvalla- og flugafgreiðsluþjónustu. Skilgreint er nánar en verið hefur hvar ábyrgð liggur milli mismunandi þjónustuaðila á flugvöllum. Sérstakar kröfur eru settar um geymslu hættulegra efna og meðferð hleðslueiningarbúnaðar (ULD). Nýjar og nákvæmar kröfur eru settar um öryggi vegfarenda við eldsneytisgjöf á flughlöðum.Gildistaka: Reglugerðin tekur gildi 20 dögum eftir birtingu í Stjórnartíðindum ESB. Hún verður bindandi frá og með 27. mars 2028. Aðdragandi: Reglugerð ESB nr. 139/2014 fjallar um kröfur til þeirra sem reka flugvelli. Ekki var tekið nægilegt mið af tengslum þeirra við flugafgreiðslu, hvorki þegar þeir veita hana sjálfir né þegar þeir fá aðra til að sjá um hana. Það hefur leitt til þess að ekki er ljóst hvar ábyrgð liggur á flughlaði, tvíverknaðar og ósamræmis í stjórnunarkerfum og skorts á upplýsingastreymi um öryggisatvik.Efnisútdráttur: Breytingar eru gerðar á viðaukum III og IV við reglugerð (ESB) nr. 139/2014 þar sem áhersla er lögð á að:• styrkja öryggiskröfur til flugafgreiðslu á flugvöllum• samræma ábyrgð þeirra sem reka flugvelli og þeirra sem sjá um flugafgreiðslu• bæta flæði upplýsinga milli hagsmunaaðila um frávik • samþætta stjórnunarkerfi ef fleiri en eitt leyfi er á sömu hendi skv. reglugerð (ESB) 2018/1139• tryggja lágmarksskilyrði fyrir geymslu hættulegra efna og hleðslueiningarbúnaðar, e. unit-load device.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Uppfæra þarf verklagsreglur og stjórnunarkerfi. Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoð er að finna í 20. gr., 72. gr. og 152. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022.Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 75/2016 sem innleiðir (ESB) 139/2014 um kröfur og stjórnsýslumeðferð er varða flugvelli samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008. Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Enginn viðbótarkostnaður. Tilgreining á hagsmunaaðilum: þeir sem veita þjónustu á sviði flugafgreiðslu, Samgöngustofa. Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei.