Málsmeðferðarreglur um sameiginlegt klínískt mat lækningatækja - 32025R2086
Commission Implementing Regulation (EU) 2025/2086 of 17 October 2025 laying down, pursuant to Regulation (EU) 2021/2282 on health technology assessment, procedural rules for the interaction during, exchange of information on, and participation in, the preparation and update of joint clinical assessments of medical devices and in vitro diagnostic medical devices at Union level, as well as templates for those joint clinical assessments
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2086 frá 17. október 2025 um að mæla fyrir um, samkvæmt reglugerð (ESB) 2021/2282 um mat á heilbrigðistækni, reglur um málsmeðferð við samspil varðandi, upplýsingaskipti um og þátttöku í að taka saman og uppfæra sameiginleg klínísk möt á lækningatækjum og lækningatækjum til sjúkdómsgreiningar í glasi á vettvangi Sambandsins sem og um snið fyrir þessi sameiginlegu klínísku möt
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Tegund gerðar | Reglugerð |
| Nánari tegund gerðar | Framkvæmdarreglugerð |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.13 Lyf |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 131/2026 |
| Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar | |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerð (ESB) 2025/2086 setur ítarlegar málsmeðferðarreglur um framkvæmd sameiginlegs klíníks mats (joint clinical assessment – JCA) á lækningatækjum og lækningatækjum til sjúkdómsgreiningar í glasi. Markmið gerðarinnar er að tryggja samræmda, gagnsæja og skilvirka framkvæmd sameiginlegs klíníks mats, forðast tvíverknað milli aðildarríkja og tryggja að mat hefjist tímanlega í kjölfar vottunar tækis samkvæmt reglugerðum um lækningatæki, (ESB) 2017/745 og (ESB) 2017/746.
Nánari efnisumfjöllun
Gerðin kveður á um ítarlegar verklagsreglur um sameiginlegt klínískt mat, að því er varðar: (a) samvinnu Samræmingarhóps aðildarríkjanna um mat á heilbrigðistækni, (e. Coordination Group) og framkvæmdastjórnar ESB sem gegnir hlutverki ritara Samræmingarhópsins (e. HTA secretariat) við tilkynnta aðila (e. notified bodies) sem tilnefndir eru í samræmi við reglugerð (ESB) 2017/745 eða reglugerð (ESB) 2017/746 og við sérfræðingahópa sem tilnefndir eru í samræmi við 106. gr. (1) reglugerðar (ESB) 2017/745 í formi upplýsingaskipta að því er varðar undirbúning og uppfærslu sameiginlegra klínískra mata, (b) samskipti, þar með talið tímasetning þeirra, við og milli Samræmingarhópsins, undirhópa hans og þróunaraðila heilbrigðistækni, sjúklinga, klínískra sérfræðinga og annarra viðeigandi sérfræðinga við sameiginleg klínísk mat og uppfærslur á þeim,(c) almennar verklagsreglur um val og samráð hagsmunaaðila og einstakra sérfræðinga í sameiginlegum klínískum mötum,(d) snið og sniðmát fyrir skjöl með upplýsingum, gögnum, greiningum og öðrum sönnunargögnum sem þróunaraðilar heilbrigðistækni skulu leggja fram fyrir sameiginleg klínísk mat, og(e) snið og sniðmát fyrir sameiginlegar klínískar matsskýrslur og samantektarskýrslur.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Verður innleidd með reglugerð með stoð í 59. gr. lyfjalaga nr. 100/2020. Innleidd í rgl. 1090/2025, sbr. https://island.is/stjornartidindi/nr/1ed869fc-3c5b-4e88-afbc-97e61108b477 |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Heilbrigðisráðuneytið |
|---|
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32025R2086 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/2086, 20.10.2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D109605/02 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Samþykktardagur | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 48, 23.7.2026, p. 40 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2026/1486, 23.7.2026 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
| Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Græn: Innleitt |
|---|---|
| Viðeigandi lög/reglugerði |
Lagagrundvöllur (Legal basis)
Acts, treaties and agreements this act is based on, according to EUR-Lex.
| 32021R2282 | Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/2282 frá 15. desember 2021 um heilbrigðistæknimat og breytingu á tilskipun 2011/24/ESB Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
