Hámarksgildi fyrir aðskotaefni í matvælum - 32026R1828

Commission Regulation (EU) 2026/1828 of 28 July 2026 amending Regulation (EU) 2023/915 as regards maximum levels of delta-9-tetrahydrocannabinol (Δ9-THC) in hemp leaves for water infusion and hemp leaves infusions


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Tegund gerðar Reglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/1828 um breytingu á reglugerð (ESB) 2023/915 að því er varðar hámarksgildi delta-9-tetrahýdrókannabínóls (Δ9-THC) í hamplaufum til útbúnings vatnsseyðis og í seyði úr hamplaufum.

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerðin setur hámarksgildi fyrir samanlagt magn delta-9-tetrahýdrókannabínóls (Δ9-THC) og delta-9-tetrahýdrókannabínólsýru (Δ9-THCA), gefið upp sem Δ9-THC-jafngildi, í hamplaufum til útbúnings vatnsseyðis og í tilbúnu seyði úr hamplaufum.Hámarksgildið er 40 mg/kg í hamplaufum og 0,02 mg/kg í tilbúnu seyði. Á umbúðum hamplaufa skal koma fram að þau séu eingöngu ætluð til útbúnings vatnsseyðis, að seyðið sé ekki ætlað ungbörnum og smábörnum og að ekki skuli bæta fituefnum, svo sem rjóma eða mjólk, út í meðan á seyðingu stendur. Breytingin byggir meðal annars á áhættumati EFSA sem sýndi að bráðaviðmiðunarskammtur fyrir Δ9-THC gæti farið yfir mörk við tilteknar aðstæður. Reglugerðin gildir frá 1. janúar 2027, en vörur sem hafa verið settar löglega á markað fyrir þann dag mega vera áfram á markaði út lágmarks geymsluþol eða síðasta notkunardag.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Gerðin verður innleidd með breytingu á reglugerð nr. 535/2026 sem innleiðir ESB/915/2023, sett með stoð í 18. og/eða 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Atvinnuvegaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32026R1828
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/1828, 29.7.2026
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D111626/02
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Breytir (Modifies)

32023R0915 amends Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Flokkun (Classifications)