32026R2035

Commission Delegated Regulation (EU) 2026/2035 of 11 September 2026 amending Regulation (EU) 2019/1021 of the European Parliament and of the Council as regards medium chain chlorinated paraffins


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Tegund gerðar Reglugerð
Nánari tegund gerðar Framseld reglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerðarbreytingin felur í sér að bæta efnahópnum klóruð paraffín með miðlungslanga keðju (e. MCCP) við I. viðauka við reglugerð (ESB) 2019/1021 um þrávirk lífræn efni og þar með banna framleiðslu, markaðssetningu og notkun þeirra nema að uppfylltum ákveðnum undanþáguskilyrðum. 

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerð (ESB) 2019/1021 um þrávirk lífræn efni innleiðir skuldbindingar sambandsins samkvæmt Stokkhólmssamningnum um þrávirk lífræn efni. Samningurinn var uppfærður á árlegum aðildarfundi í maí 2025 m.t.t. að bæta efnahópnum klóruð paraffín með miðlungslanga keðju (e. MCCP) við lista efna sem skulu hætta í framleiðslu, notkun, innflutning og útflutning. I. viðauki við reglugerðina er því uppfærður m.t.t. ofangreindra breytinga á samningnum en í viðaukanum er að finna lista yfir efni sem bannað er að framleiða, markaðssetja og nota. MCCPs eru skilgreind sem tiltekin klóruð alkön með 14–17 kolefnisatóm (C14–C17). Sett eru styrkleikamörk þegar þau koma fyrir sem óviljandi snefilaðskotaefni í efnum, efnablöndum og hlutum, að hámarki 1.000 mg/kg (0,1% miðað við þyngd) fyrir heildarsummu efnanna. Sérstök undanþága heimilar allt að 20.000 mg/kg (2% miðað við þyngd) af heildarsummu MCCPs í endurunnu efni úr rafköplum og hlutum sem framleiddir eru úr slíku efni, þegar þau eru notuð í vegbúnað eða undirstöður girðinga. Undanþágan gildir til 16. desember 2028. Jafnframt eru skilgreindar tímabundnar undanþágur frá takmörkunum á framleiðslu, markaðssetningu og notkun MCCPs, meðal annars fyrir: Málmvinnsluvökva sem notaðir eru við tilteknar iðnaðaraðstæður, til 31. desember 2036. Fjölliður og gúmmí í varahlutum og viðgerðum á tilteknum ökutækjum, vélbúnaði, lækningatækjum, mælitækjum og búnaði fyrir flug-, geim- og varnariðnað, til loka endingartíma eða í síðasta lagi til 31. desember 2041. Sveigjanlegt pólývínylklóríð (e. PVC) í vírum og köplum í byggingariðnaði, til 16. desember 2028, og í tilteknum lækningatækjum, til 16. desember 2031. Tiltekin lím, þéttiefni, vatnsheld húðun og húðun til ryðvarnar, með undanþágum til áranna 2028 eða 2031. Tiltekna notkun í flug-, geim- og varnariðnaði, með mismunandi tímamörkum og skilyrðum. Gerðin heimilar áframhaldandi notkun tiltekinna hluta sem innihalda MCCPs og eru þegar í notkun við lok viðkomandi undanþágutímabils. Einnig er kveðið á um áframhaldandi markaðssetningu og notkun tiltekinna varahluta sem eru fyrir hendi innan Evrópusambandsins fyrir 1. janúar 2042. Þá eru settar kröfur um að koma í veg fyrir losun MCCPs út í umhverfið við framleiðslu, iðnaðar- og atvinnubundna notkun sem fellur undir undanþágur, eða draga úr losun eins og kostur er, og takmarka útsetningu starfsmanna. Framleiðendum, birgjum og innflytjendum klóraðra paraffína er jafnframt gert að tilgreina upplýsingar um styrk viðkomandi efna í öryggisblöðum og þegar styrkurinn fer yfir 0,1% um viðeigandi áhættustjórnunarráðstafanir og notkunarskilyrði. Kveðið er á um notkun fullgiltra greiningaraðferða og skyldu til að afhenda lögbærum yfirvöldum upplýsingar um greiningaraðferðir og niðurstöður samkvæmt beiðni. Reglugerðin tekur gildi frá 16. desember 2026.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoð er í 11. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013 og 26. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.
Breyta þarf reglugerð 954/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Þessi reglugerð bætir nýju efni í hóp þeirra sem háð eru banni á framleiðslu, markaðssetningu og notkun. Í ljósi þess víkkar eftirlitssviðið með móðurgerðinni sem kallar á aukið fjármagn til eftirlits og efnagreininga.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32026R2035
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/2035, 18.11.2026
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2026)6262
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Breytir (Modifies)

32019R1021 amends, based on Tekin upp í EES-samninginn og í gildi