Reglugerð um viðbætur á reglugerð (EU) 1893/2006 um atvinnugreinaflokkun NACE Rev. 2 - 32023R0137
Commission Delegated Regulation (EU) 2023/137 of 10 October 2022 amending Regulation (EC) No 1893/2006 of the European Parliament and of the Council establishing the statistical classification of economic activities NACE Revision 2
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun hjá ESB og EFTA-ríkjunum innan EES |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 21 Hagskýrslugerð |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Gerðin uppfærir atvinnugreinaflokkunarkerfi NACE Rev.2 sem ÍSAT2008 flokkunarkerfið byggir á. Uppfærslan tengist því að endurspegla betur þær breytingar sem orðið hafa á viðskiptalífi og samfélaginu almennt á þeim á þeim 15 árum frá því NACE Rev. 2 tók gildi. Þessi breyting er nokkuð umtalsverð en þó ekki strúktúrbreyting og mun nýtt flokkunarkerfi taka heitið NACE Rev 2.1. Almennt á flokkunarkerfið að taka gildi 2025 en lengri aðlögunartími er á nokkrum hagskýrslusviðum. Þetta mun hafa áhrif í allri birtri tölfræði sem tengjast atvinnugreinaflokkun. Það þarf að endurflokka þúsundir fyrirtækja sem verður ekki gert á annan hátt en að framkvæma rannsókn. Skatturinn þarf að innleiða nýtt flokkunarkerfi í fyrirtækja og hlutafélagaskrá og kanna þarf samstarfsgrundvöll við Skattinn varðandi endurflokkun fyrirtækja eins og gert var við innleiðingu á ÍSAT2008. Innleiðing á endurskoðuðu atvinnugreinaflokkunarkerfi tryggir að alþjóðlegar skuldbindingar ríkisins eru uppfylltar. Samhæfð flokkun efnahagsstarfsemi eftir atvinnugreinum í mismunandi ríkjum gefur færi á samanburði milli ríkja sem væri marklaus ef ríkin beittu ekki samræmdu og einhlítu flokkunarkerfi. Lykilhagtölur á Íslandi sem skipta efnahagsstarfsemi í atvinnugreinar verða því samanburðarhæfar í alþjóðlegum samanburði. Sótt verður um viðeigandi styrki ef þeir bjóðast, en ljóst er að stór hluti kostnaðar mun falla á Hagstofuna. Áætlaður kostnaður Hagstofu vegna innleiðingar á gerðinni er 25 milljónir króna einskiptiskostnaður.
Nánari efnisumfjöllun
Nýjar reglugerðir um atvinnugreinaflokkun, NACE Revision 2.1, taka gildi árið 2025. Atvinnugreinaflokkunin og uppfærslur samkvæmt reglugerðum Evrópusambandsins eru bindandi í opinberri hagskýrslugerð í aðildarríkjum Evrópusambandsins og í aðildarríkjum EFTA vegna samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES) og skuldbindinga ríkjanna um samstarf í hagskýrslugerð á grundvelli hans. NACE flokkunarkerfið liggur að baki Ísat atvinnugreinaflokkun sem skiptir efnahagsstarfsemi upp í atvinnugreinar. Því þarf að uppfæra Ísat2008, sem byggir á NACE Revision 2, og innleiða nýja atvinnugreinaflokkun. Nú þegar hefur Hagstofan tekið þátt í viðamikilli vinnu tengt samráðsferli evrópsku hagstofunnar Eurostat um mótun á endurskoðaðri flokkun sem og hafið undirbúning á íslenskri staðfæringu og þýðingu á nýrri flokkun. En til að hægt sé að nýta nýja flokkun í íslenskri hagskýrslugerð þarf uppfærslan að vera aðgengileg í fyrirtækjaskrá til hagskýrslugerðar sem byggir í grunninn á fyrirtækjaskrá Skattsins. Með innleiðingu á endurskoðun atvinnugreinaflokkunar verða lykilhagtölur á Íslandi samanburðarhæfar í alþjóðlegum samanburði en einnig er flokkunin mikið notuð innanlands. Hagstofan leggur upp með samstarf við innleiðingu á nýrri flokkun, þá einkum við Skattinn, fjármálaráðuneytið og Seðlabankann, en fyrirtækjaskrá Skattsins er mikið notuð af þeim aðilum og því mikilvægt að atvinnugreinaflokkun fyrirtækja í þeirri grunnskrá sé sem réttust.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Uppfæra þarf reglugerð 777/2016 um gildistöku og innleiðingu tiltekinna gerða Evrópusambandsins á sviði hagskýrslugerðar sem á sér stoð í lögum nr. 137/2007 um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing í vinnslu |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur |
Kostnaðarmat Áætlaður kostnaður við innleiðingu er samtals 25 milljón króna einskiptis kostnaður. Er þá frádregin kostnaður sem hefur þegar fallið til vegna vinnu við endurskoðað kerfi svo sem undirbúning á staðfæringu og þýðingu. Hér er einungis metin kostnaður sem fellur til hjá Hagstofunni, en ljóst er að kostnaður mun einnig falla til hjá Skattinum vegna innleiðingar á reglugerðum sem er ekki tiltekin hér. Helstu verkþættir við innleiðingu á endurskoðuðu atvinnugreinaflokkunarkerfi eru: 1. Íslensk staðfæring á alþjóðlega kerfinu og upplýsingagjöf til evrópsku hagstofunnar Eurostat hvernig henni verður háttað. 2. Íslensk þýðing á alþjóðlega kerfinu, t.d. inngangur, flokkaheiti og lýsingar á flokkum. 3. Gerð vörpunartafla til að varpa úr eldra kerfi í hið endurskoðaða og setja inn í gagnagrunna. 4. Samstarf við hugbúnaðarhús til að setja inn stoðtöflur með endurskoðaðri atvinnugrein inn í launa- og bókhaldskerfi. 5. Birta formlega endurskoðað flokkunarkerfi (Ísat2025) á vef Hagstofunnar, bæði handbók og flokkunartöflur. Einnig tilkynna endurskoðun á flokkunarkerfinu í lögbirtingablaðinu. 6. Setja upp leitarvél með Ísat2025 fyrir notendur og bjóða upp á veftöflur með Ísat2025 flokkun svo notendur geti sótt gögn rafrænt beint í kerfin sín. 7. Samstarf við Skattinn svo uppfærð skráning á endurskoðaðri flokkun skili sér í fyrirtækjaskrá Skattsins. Í því felst m.a. uppfærsla á kerfum Skattsins, innsöfnun upplýsinga frá fyrirtækjum, vörpun þar sem það á við og samstarf við fyrirtækin til að sannprófa gæði flokkunar. 8. Samstarf við helstu aðra hagaðila um bætt gæði í fyrirtækjaskrá Skattsins. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Forsætisráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Hagstofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32023R0137 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 19, 20.1.2023, p. 5 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | C(2022)7104 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar |
|---|
Breytt af (Modified by)
| 32025R0471 | amends | Commission Delegated Regulation (EU) 2025/471 of 2 September 2024 amending Delegated Regulation (EU) 2023/137 as regards the application of certain data transmission requirements | Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun |
Breytir (Modifies)
| 32006R1893 | amends, based on | Regulation (EC) No 1893/2006 of the European Parliament and of the Council of 20 December 2006 establishing the statistical classification of economic activities NACE Revision 2 and amending Council Regulation (EEC) No 3037/90 as well as certain EC Regulations on specific statistical domains | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Samantekt EUR-Lex
Flokkun (Classifications)
| EUROVOC | statistical method, EU statistics, economic activity, economic statistics, statistical nomenclature |
|---|---|
| Subject matter | Information and verification |
