Reglugerð um viðbætur á reglugerð (EU) 1893/2006 um atvinnugreinaflokkun NACE Rev. 2 - 32023R0137

Commission Delegated Regulation (EU) 2023/137 of 10 October 2022 amending Regulation (EC) No 1893/2006 of the European Parliament and of the Council establishing the statistical classification of economic activities NACE Revision 2


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun hjá ESB og EFTA-ríkjunum innan EES
Svið (EES-samningur, viðauki) 21 Hagskýrslugerð

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Gerðin uppfærir atvinnugreinaflokkunarkerfi NACE Rev.2 sem ÍSAT2008 flokkunarkerfið byggir á. Uppfærslan tengist því að endurspegla betur þær breytingar sem orðið hafa á viðskiptalífi og samfélaginu almennt á þeim á þeim 15 árum frá því NACE Rev. 2 tók gildi. Þessi breyting er nokkuð umtalsverð en þó ekki strúktúrbreyting og mun nýtt flokkunarkerfi taka heitið NACE Rev 2.1. Almennt á flokkunarkerfið að taka gildi 2025 en lengri aðlögunartími er á nokkrum hagskýrslusviðum. Þetta mun hafa áhrif í allri birtri tölfræði sem tengjast atvinnugreinaflokkun. Það þarf að endurflokka þúsundir fyrirtækja sem verður ekki gert á annan hátt en að framkvæma rannsókn. Skatturinn þarf að innleiða nýtt flokkunarkerfi í fyrirtækja og hlutafélagaskrá og kanna þarf samstarfsgrundvöll við Skattinn varðandi endurflokkun fyrirtækja eins og gert var við innleiðingu á ÍSAT2008. Innleiðing á endurskoðuðu atvinnugreinaflokkunarkerfi tryggir að alþjóðlegar skuldbindingar ríkisins eru uppfylltar. Samhæfð flokkun efnahagsstarfsemi eftir atvinnugreinum í mismunandi ríkjum gefur færi á samanburði milli ríkja sem væri marklaus ef ríkin beittu ekki samræmdu og einhlítu flokkunarkerfi. Lykilhagtölur á Íslandi sem skipta efnahagsstarfsemi í atvinnugreinar verða því samanburðarhæfar í alþjóðlegum samanburði.  Sótt verður um viðeigandi styrki ef þeir bjóðast, en ljóst er að stór hluti kostnaðar mun falla á Hagstofuna. Áætlaður kostnaður Hagstofu vegna innleiðingar á gerðinni er 25 milljónir króna einskiptiskostnaður.

Nánari efnisumfjöllun

Nýjar reglugerðir um atvinnugreinaflokkun, NACE Revision 2.1, taka gildi árið 2025. Atvinnugreinaflokkunin og uppfærslur samkvæmt reglugerðum Evrópusambandsins eru bindandi í opinberri hagskýrslugerð í aðildarríkjum Evrópusambandsins og í aðildarríkjum EFTA vegna samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES) og skuldbindinga ríkjanna um samstarf í hagskýrslugerð á grundvelli hans.  NACE flokkunarkerfið liggur að baki Ísat atvinnugreinaflokkun sem skiptir efnahagsstarfsemi upp í atvinnugreinar. Því þarf að uppfæra Ísat2008, sem byggir á NACE Revision 2, og innleiða nýja  atvinnugreinaflokkun. Nú þegar hefur Hagstofan tekið þátt í viðamikilli vinnu tengt samráðsferli evrópsku hagstofunnar Eurostat um mótun á endurskoðaðri flokkun sem og hafið undirbúning á íslenskri staðfæringu og þýðingu á nýrri flokkun. En til að hægt sé að nýta nýja flokkun í íslenskri hagskýrslugerð þarf uppfærslan að vera aðgengileg í fyrirtækjaskrá til hagskýrslugerðar sem byggir í grunninn á fyrirtækjaskrá Skattsins.  Með innleiðingu á endurskoðun atvinnugreinaflokkunar verða lykilhagtölur á Íslandi samanburðarhæfar í alþjóðlegum samanburði en einnig er flokkunin mikið notuð innanlands. Hagstofan leggur upp með samstarf við innleiðingu á nýrri flokkun, þá einkum við Skattinn, fjármálaráðuneytið og Seðlabankann, en fyrirtækjaskrá Skattsins er mikið notuð af þeim aðilum og því mikilvægt að atvinnugreinaflokkun fyrirtækja í þeirri grunnskrá sé sem réttust.   

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Uppfæra þarf reglugerð 777/2016 um gildistöku og innleiðingu tiltekinna gerða Evrópusambandsins á sviði hagskýrslugerðar sem á sér stoð í lögum nr. 137/2007 um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing í vinnslu

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Kostnaðarmat

Áætlaður kostnaður við innleiðingu er samtals 25 milljón króna einskiptis kostnaður. Er þá frádregin kostnaður sem hefur þegar fallið til vegna vinnu við endurskoðað kerfi svo sem undirbúning á staðfæringu og þýðingu. Hér er einungis metin kostnaður sem fellur til hjá Hagstofunni, en ljóst er að kostnaður mun einnig falla til hjá Skattinum vegna innleiðingar á reglugerðum sem er ekki tiltekin hér.

Helstu verkþættir við innleiðingu á endurskoðuðu atvinnugreinaflokkunarkerfi eru:

1. Íslensk staðfæring á alþjóðlega kerfinu og upplýsingagjöf til evrópsku hagstofunnar Eurostat hvernig henni verður háttað.

2. Íslensk þýðing á alþjóðlega kerfinu, t.d. inngangur, flokkaheiti og lýsingar á flokkum.

3. Gerð vörpunartafla til að varpa úr eldra kerfi í hið endurskoðaða og setja inn í gagnagrunna.

4. Samstarf við hugbúnaðarhús til að setja inn stoðtöflur með endurskoðaðri atvinnugrein inn í launa- og bókhaldskerfi.

5. Birta formlega endurskoðað flokkunarkerfi (Ísat2025) á vef Hagstofunnar, bæði handbók og flokkunartöflur. Einnig tilkynna endurskoðun á flokkunarkerfinu í lögbirtingablaðinu.

6. Setja upp leitarvél með Ísat2025 fyrir notendur og bjóða upp á veftöflur með Ísat2025 flokkun svo notendur geti sótt gögn rafrænt beint í kerfin sín.

7. Samstarf við Skattinn svo uppfærð skráning á endurskoðaðri flokkun skili sér í fyrirtækjaskrá Skattsins. Í því felst m.a. uppfærsla á kerfum Skattsins, innsöfnun upplýsinga frá fyrirtækjum, vörpun þar sem það á við og samstarf við fyrirtækin til að sannprófa gæði flokkunar.

8. Samstarf við helstu aðra hagaðila um bætt gæði í fyrirtækjaskrá Skattsins.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Aukakostnaður

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Forsætisráðuneytið
Ábyrg stofnun Hagstofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32023R0137
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 19, 20.1.2023, p. 5
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2022)7104
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar

Breytt af (Modified by)

32025R0471 amends Commission Delegated Regulation (EU) 2025/471 of 2 September 2024 amending Delegated Regulation (EU) 2023/137 as regards the application of certain data transmission requirements Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

Breytir (Modifies)

32006R1893 amends, based on Regulation (EC) No 1893/2006 of the European Parliament and of the Council of 20 December 2006 establishing the statistical classification of economic activities NACE Revision 2 and amending Council Regulation (EEC) No 3037/90 as well as certain EC Regulations on specific statistical domains Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Samantekt EUR-Lex

Flokkun (Classifications)