32023R1772

Commission Implementing Regulation (EU) 2023/1772 of 12 September 2023 amending Implementing Regulation (EU) No 923/2012 as regards the operating rules related to the use of Air Traffic Management and Air Navigation Services systems and constituents in the Single European Sky airspace and repealing Regulation (EC) No 1033/2006


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1772 frá 12. september 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 923/2012 að því er varðar starfrækslureglur í tengslum við notkun kerfa og kerfishluta rekstrarstjórnunar flugumferðar og flugleiðsöguþjónustu í samevrópska loftrýminu og um niðurfellingu reglugerðar (EB) nr. 1033/2006
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Tegund gerðar Reglugerð
Nánari tegund gerðar Framkvæmdarreglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 147/2025
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Verið er að samræma reglur fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar og flugleiðsöguþjónustu í samevrópska loftrýminu. Því eru ein reglugerð um efnið felld inn í aðra. Beiting reglnanna þegar viðhöfð hér á landi og áhrif ekki umfram það. Ekki kostnaður.

Nánari efnisumfjöllun

Almennt: Markmið með gerðinni er að tryggja að kröfur um notkun búnaðar fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar og flugleiðsöguþjónustu (ATM/ANS) í samevrópska loftrýminu séu samhæfðar.Í reglugerð (EB) nr. 1033/2006 er mælt fyrir um verklagsreglur fyrir flugáætlanir og undirbúningsstig flugs, e. pre-flight phase, fyrir samevrópska loftrýmið (SES). Í reglugerð (ESB) nr. 923/2012 eru sameiginlegar reglur um flug og hvernig á að reka þjónustu við flug auk reglna um hvernig verklagi í flugleiðsögu skuli háttað.Með þessari gerð eru kröfur úr reglugerð 923/2012 um notkun búnaðar fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar og flugleiðsöguþjónustu (ATM/ANS) í samevrópska loftrýminu, breytt þannig að reglugerðin nái yfir kröfur um gerð flugáætlana í reglugerð 1033/2006. Reglugerð 1033/2006 er jafnframt felld úr gildi með þessari gerð.Þá eru samtímis gerðar fleiri breytingar á reglugerð 923/2012. Hún gildir nú netstjórnandann í samevrópska loftrýminu. Netstjórnandanum er nú falið að gera flugáætlanir á undirbúningsstigi flugs. Þá er kveðið á um að allir notendur samevrópska loftrýmisins fari eftir rekstrarhandbókum sem netstjórnandinn þróar og viðheldur þegar flugáætlanir eru lagðar fram.Endurtækar flugáætlanir (RPL), þ. e. flugáætlanir sem eru í aðalatriðum eins og endurteknar á sama grunni fyrir mismunandi leiðir og loftför, eiga ekki lengur við á EUR svæðinu og því eru allar tilvísanir í þær fjarlægðar. Kröfur sem fram koma í reglugerð 1033/2006 um verklagsreglur fyrir flugáætlanir á undirbúningsstigi flugs í samevrópska loftrýminu eiga ekki við um þjónustuveitendur í samevrópska loftrýminu sem eru utan ICAO EUR svæðisins eins og það er skilgreint í EUR Air Navigation Plan Volume I (Doc 7754). Reglugerð (EB) nr. 1033/2006 er því felld úr gildi og reglugerð (ESB) 923/2012 breytt til samræmis við framangreint.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Ákvæðin sem nú er bætt við reglugerð (ESB) nr. 923/2012 eru um meðhöndlun flugáætlana í undirbúningsstigi flugs í samevrópska loftrýminu. Verið er að færa til ákvæði sem áður voru í sérstakri reglugerð, þ.e. reglugerð 1033/2006, yfir í reglugerð um samevrópskar flugreglur þar sem þær eru betur taldar eiga heima.Reglugerð (EB) nr. 1033/2006 var ekki beitt hér á landi enda gildissvið utan NAT svæðisins. Samfara aðlögunarsamningi Íslands við Eurocontrol hefur Isavia ANS þó tekið ákvörðun um þátttöku í samþættu kerfi til úrvinnslu upphaflegra flugáætlana, e. Integrated Initial Flight Plan Processing System, netstjórnandans. Því verður um sjálfkrafa beitingu reglnanna að ræða. Haft hefur verið samráð við notendur um breytinguna sbr. upplýsingabréf flugmála AIC A 13/2023.Engin viðbótarárhrif verða því vegna þessarar tilteknu reglugerðar frá því sem varð með innleiðingu breytinganna hjá Isavia. Haft var samráð við Isavia og engar athugasemdir gerðar við innleiðingu á þessari reglugerð eða við beitingu krafnanna sem hluta af reglugerð 923/2012 þegar til þess kemur.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er 188. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022.Rétt væri að innleiða reglugerðina með breytingu á reglugerð nr. 770/2010 um flugreglur.Rétt þó að hafa í huga að það er vilji til að beita reglugerð (EU) 923/2012 ásamt síðari breytingum, og slíkt kallar á niðurfellingu rg. 770/2010, þ.e. upprunalegu gerðina sem innleiðir ICAO Viðauka 2. Það veltur því að tímarammanum, þ.e. hvenær gerðin verður innleidd hvort réttara sé að innleiða hana með breytingu á rg. nr. 770/2010 eða hvort rétt sé til einföldunar að innleiða (EU) 923/2012 ásamt síðari breytingum með nýrri reglugerð.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Gerðin felur í sér breytta nálgun á meðhöndlun flugáætlana og hefur Isavia ANS þegar innleitt breytinguna. Gerðin hefur engan viðbótarkostnað í för með sér fyrir notendur.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Engin.Tilgreining á hagsmunaaðilum: Samgöngustofa, Isavia ANS, Isavia ohf og Isavia Innanlands, flugrekendur.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Vísað er til reglugerðar Evrópusambandsins 2023/1770 sem ekki hefur verið tekin upp í EES-samninginn.Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoðin er 188. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022. Rétt væri að innleiða reglugerðina með breytingu á reglugerð nr. 770/2010 um flugreglur.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32023R1772
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 228, 15.9.2023, p. 73
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Samþykktardagur
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 61, 2.10.2025, p. 53
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/1839, 2.10.2025

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA Græn: Innleitt
Viðeigandi lög/reglugerði

Breytir (Modifies)

32018R0139 implicitly repeals Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
32016R2120 implicitly repeals Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
32013R0428 implicitly repeals Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
32012R0923 amends, implicitly repeals Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32006R1033 repeals Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Flokkun (Classifications)