32024D1884
Commission Implementing Decision (EU) 2024/1884 of 10 July 2024 amending Commission Implementing Decision (EU) 2020/2126 as regards the total quantities of cancelled EU ETS allowances that may be taken into account for certain Member States’ compliance under Regulation (EU) 2018/842 of the European Parliament and of the Council
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun hjá ESB og EFTA-ríkjunum innan EES |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20.03 Loft |
| Svið (EES-samningur, bókun) | 31 um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Ákvörðun (ESB) 2024/1884 snýst um að breyta gildi fyrir Möltu í Viðauka III við ákvörðun ESB 2020/2126, þar sem hámarks prósentuhlutfalli sem Malta getur nýtt í ETS sveigjanleika var breytt úr 2% í 7% þegar ESR reglugerðinni var breytt með Reglugerð (ESB) 2023/857. Svíþjóð er einnig bætt á listann í viðauka III við ákvörðun 2020/2126 en bæði Malta og Svíþjóð höfðu, fyrir 31. desember 2023 tilkynnt Framkvæmdastjórn ESB að þau hyggjast nýta ETS sveigjanleikann fyrir árin 2025-2030.
Nánari efnisumfjöllun
Sú ákvörðun sem hér er til greiningar er breyting á framkvæmdarákvörðun framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins ESB 2020/2126 sem er hluti af orku- og loftslagspakka Evrópusambandsins (ESB) til ársins 2030, en sá pakki snýr m.a. að skyldubundnu lágmarksframlagi aðildarríkja svo ná megi markmiði Evrópusambandsins í samdrætti á losun gróðurhúsalofttegunda fyrir tímabilið 2021-2030.
Ákvörðun (ESB) 2020/2126 er byggð á reglugerð ESB 2018/842 (e. Effort Sharing Regulation – ESR) um bindandi, árlegan samdrátt aðildarríkjanna í losun gróðurhúsalofttegunda á árunum 2021 til 2030 sem framlag til loftslagsaðgerða til að uppfylla skuldbindingar samkvæmt Parísarsáttmálanum. Ákvörðunin er sett á grundvelli 4. gr. ESR en í 4. mgr. 4. gr. kemur fram að framkvæmdastjórnin skuli m.a. tilgreina í framkvæmdargerð heildarfjölda sem heimilt er að taka tillit til hjá ákveðnum aðildarríkjum vegna uppfyllingar á skilyrðum 9. gr. ESR á tímabilinu 2021-2030, svokallaður ETS sveigjanleiki, en um hann er fjallað í 6. gr. ESR. Slíkur listi er settur upp í viðauka við þá gerð sem hér er til greiningar og viðauka III við ákvörðun ESB 2020/2126 er skipt út fyrir hann. Hafa ber í huga að 4. gr. og 9. gr. ESR hefur verið breytt með reglugerð ESB 2023/857, sem ekki hefur verið tekin upp í EES samninginn þegar þetta er skrifað. Ákvörðun (ESB) 2024/1884 snýst um að breyta gildi fyrir Möltu í Viðauka III við ákvörðun ESB 2020/2126, þar sem hámarks prósentuhlutfalli sem Malta getu nýtt í ETS sveigjanleika var breytt úr 2% í 7% þegar ESR reglugerðinni var breytt með Reglugerð (ESB) 2023/857. Svíþjóð er einnig bætt á listann í viðauka III við ákvörðun 2020/2126 en bæði Malta og Svíþjóð höfðu, fyrir 31. desember 2023 tilkynnt Framkvæmdastjórn ESB að þau hyggjast nýta ETS sveigjanleikann fyrir árin 2025-2030. Titli viðaukans er einnig breytt. Þetta þýðir að þessi ákvörðun hefur einungis áhrif á Möltu og Svíþjóð og hefur því ekki bein áhrif á Íslandi. Mikilvægt er þó að hafa í huga að í ákvörðun ESB 2020/2126 er Ísland listað upp í viðauka III, sbr. JCD nr. 29/2022. Skoða þarf hvort að Ísland hyggist áfram nýta sér ETS sveigjanleikann og þá með hvaða hætti. Ákvörðun þess efnis hefur ekki verið tekin þegar þetta er skrifað en samkvæmt 6. gr. ESR getur Ísland tilkynnt um breytingar á notkun sveigjanleikans einu sinni á árinu 2024, þá fyrir 31. desember 2024 og einu sinni á árinu 2027, þá fyrir 31. desember 2027.Til að taka af allan vafa, þá væri skýrast að bæta inn aðlögun við upptöku ákvörðunar ESB 2024/1884 í EES samninginn, sem er eins og sú aðlögun sem gerð var við viðauka III við upptöku ákvörðunar ESB 2020/2126 í EES samninginn – þannig yrðu áfram sömu tölur listaðar fyrir Ísland í viðauka III við ákvörðun 2020/2126. Ef svo verður ákveðið að gera breytingar á notkun ETS sveigjanleikans, þá þyrfti væntanlega að samþykkja nýja breytingu á ákvörðun ESB 2020/2126 með viðeigandi aðlögun fyrir Ísland.

Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Tæknilegri aðlögun, Efnislegri aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Setja þarf reglugerð til innleiðingar á ákvörðun ESB 2024/1884. Reglugerðarheimild er að finna í 2. mgr. 6. gr. a í lögum um loftlagsmál nr. 70/2012. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|---|
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Sjá meginmál greiningarinnar hér að ofan. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32024D1884 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/1884, 11.7.2024 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Samþykktardagur i ESB |
|---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar |
|---|
Breytir (Modifies)
| 32020D2126 | amends | Commission Implementing Decision (EU) 2020/2126 of 16 December 2020 on setting out the annual emission allocations of the Member States for the period from 2021 to 2030 pursuant to Regulation (EU) 2018/842 of the European Parliament and of the Council | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32018R0842 | based on | Regulation (EU) 2018/842 of the European Parliament and of the Council of 30 May 2018 on binding annual greenhouse gas emission reductions by Member States from 2021 to 2030 contributing to climate action to meet commitments under the Paris Agreement and amending Regulation (EU) No 525/2013 | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Flokkun (Classifications)
| EUROVOC | pollution control, environmental monitoring, Sweden, climate change, greenhouse gas, reduction of gas emissions, Malta, EU emission allowance |
|---|---|
| Subject matter | Environment |