Ákvörðun ESB um úthlutun árlegra losunarheimilda aðildarríkja 2021-2030. - 32020D2126
Commission Implementing Decision (EU) 2020/2126 of 16 December 2020 on setting out the annual emission allocations of the Member States for the period from 2021 to 2030 pursuant to Regulation (EU) 2018/842 of the European Parliament and of the Council
Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2126 frá 16. desember 2020 um að ákvarða árlegar losunarúthlutanir aðildarríkjanna fyrir tímabilið frá 2021 til 2030 samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/842
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20.03 Loft |
| Svið (EES-samningur, bókun) | 31 um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 029/2022 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2126 um úthlutun árlegra losunarheimilda aðildarríkjanna fyrir tímabilið 2021 til 2030 skv. reglugerð (ESB) 2018/842.
Nánari efnisumfjöllun
Sú ákvörðun sem hér er til greiningar er framkvæmdarákvörðun framkvæmdarstjórnar ESB 2020/2126 (hér eftir ,,ákvörðunin”) og er hluti af orku- og loftslagspakka ESB til ársins 2030 sem snýr að skyldubundnu lágmarksframlagi aðildarríkja svo ná megi markmiði Evrópusambandsins í samdrætti á losun gróðurhúsalofttegunda fyrir tímabilið 2021-2030.
Ákvörðunin er byggð á reglugerð ESB 2018/842 um bindandi, árlegan samdrátt aðildarríkjanna á losun gróðurhúsalofttegunda á árunum 2021 til 2030 sem framlag til loftslagsaðgerða til að uppfylla skuldbindingar samkvæmt Parísarsáttmálanum.
Ákvörðunin er sett á grundvelli 3. mgr. 4. gr. reglugerðar ESB 2018/842 þar sem fram kemur að framkvæmdastjórnin skuli samþykkja framkvæmdargerðir þar sem ákvörðuð er árleg losunarheimild fyrir árin 2021-2030 ásamt gildi losunar gróðurhúsalofttegunda fyrir hvert ríki á árinu 2005 sem notað er til viðmiðunar. Í 4. mgr. 4. gr. sömu reglugerðar kemur fram að framkvæmdastjórnin skuli einnig tilgreina í framkvæmdargerðum heildarmagnið sem má taka tillit til hjá þeim aðildarríkjum sem heimilt er að fá takmarkaða ógildinu á losunarheimildum, sbr. 6. gr. reglugerðar ESB 2018/842, sbr. 3. gr. ákvörðunar þessarar.
Ákvörðunin tilgreinir úthlutun árlegra losunarheimilda aðildarríkja fyrir árin 2021-2030 annars vegar og ákvörðuð gildi á losun fyrir árið 2005 hins vegar. Að auki er heildarmagnið ákvarðað hjá þeim aðildarríkjum sem heimilt er að fái takmarkaða ógildinu á losunarheimildum.
Árleg losun er reiknuð í koldíoxíðsígildum til að samræma hnatthlýnunarmátt mismunandi gróðurhúsalofttegunda.
Um 1. grein
Ákvörðuð gildi á losun fyrir árið 2005, sem sett eru fram í 1. gr. ákvörðunarinnar, sbr. viðauka I, eru byggð á nýjustu gögnum í samráði við Umhverfisstofnun Evrópu (European Environment Agency). Magn gróðurhúsalofttegunda frá staðbundnum iðnaði (sem fellur undir tilskipun 2003/87/EB) innan ETS kerfisins er dregið frá heildarlosun ársins 2005.
Um 2. grein
2. gr. ákvörðunarinnar fjallar um árlega losunarheimild til hvers aðildarríkis fyrir árin 2021-2030 og eru tölurnar settar fram í viðauka II við ákvörðun þessa. Árleg losunarheimilid fyrir árið 2030 er reiknuð út frá losun ársins 2005 með því að nota þann hlutfallslega samdrátt losunar sem ákvarðaður hefur verið fyrir hvert aðildarríki í viðauka I við reglugerð ESB 2018/842.
Meðallosun gróðurhúsalofttegunda innan gildissviðs reglugerðar (ESB) 2018/842 fyrir árið 2016, 2017 og 2018 er reiknuð fyrir hvert aðildarríki með því að draga tvennt frá heildarlosun gróðurhúsalofttegunda fyrir þessi ár, annars vegar losun gróðurhúsalofttegunda frá staðbundnum iðnaði (sem fellur undir tilskipun 2003/87/EB) og hins vegar losun koldíoxíðs frá innanlandsflugi.
Árleg losunarheimild fyrir árin 2021 til 2029 er reiknuð út á grundvelli línulegs ferils þar sem upphafspunkturinn er fimm tólftu af bilinu milli 2019 og 2020 með gildið sem samsvarar meðallosun fyrir 2016, 2017 og 2018 og lokapunkturinn er árið 2030. Fyrir þrjú aðildarríki (Grikkland, Króatíu og Ungverjaland) er upphafspunkturinn 2020.
Aðlögun á losunarheimildum áranna 2021-2030 hefur átt sér stað fyrir tiltekin aðildarríki (sbr. viðauka II við reglugerð (ESB) 2018/842), þar sem ríkin geta nýtt ETS losunarheimildir skv. tilskipun 2003/87/EB, í því skyni að uppfylla skuldbindingar sínar samkvæmt reglugerðinni. Að auki hefur aðlögun átt sér stað fyrir losunarheimildir ársins 2021 fyrir aðildarríkin í viðauka IV í reglugerð (ESB) 2018/842.
Um 3. grein
3. gr. ákvörðunarinnar fjallar um það heildarmagn skv. 4. mgr. 4. gr. reglugerðar (ESB) 2018/842 sem taka má tillit til hjá viðkomandi aðildarríkjum við uppgjör skv. 9. gr. sömu reglugerðar til að nýta ETS losunarheimildir í því skyni að uppfylla skuldbindingar sínar, og er árleg losunarheimild viðeigandi ríkja aðlöguð að því leyti, sbr. framangreinda umfjöllun um 2. gr. ákvörðunar þessarar. Heildarfjöldi heimilda sem aðildarríkin í viðauka II við reglugerð (ESB) 2018/842 geta nýtt sér eru settar fram í viðauka III við ákvörðun þessa.

Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Efnislegri aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Setja þarf reglugerð til innleiðingar á ákvörðun þessari, sbr. reglugerðarheimild í 2. mgr. 6. gr. a í lögum um loftlagsmál nr. 70/2012. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Enginn |
|---|---|
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands |
Umhverfisstofnun bendir á að þegar reglugerð (ESB) 2018/842 var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 269/2019 var gerð sérstök aðlögun fyrir EFTA-ríkin hvað varðar 3. mgr. 4. gr. hennar þar sem sérstaklega er útskýrt hvernig útreikningi árlegra losunarheimilda skuli háttað hvað varðar EFTA-ríkin. Þar er viðmiðunarárið 2005 fyrir losunarheimild 2030 byggt á muninum á heildarlosun gróðurhúsalofttegunda árið 2005 í kjölfar ítarlegrar rýni (e. comprehensive review), þar sem koldíoxíðslosun frá flugi er núll, og staðfestri losun 2005 skv. viðskiptakerfi ESB miðað við losunarheimildir árið 2013 sem greint var frá í B-hluta viðauka við ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 152/2012, aðlagað með gildum fyrir hnatthlýnunarmátt sem samþykkt voru í reglugerð (ESB) 2020/1044. Haustið 2020 voru tölur fyrir árlegar losunarheimildir reiknaðar út fyrir Ísland og var þá notast við gildi fyrir hnatthlýnunarmátt skv. fimmtu matsskýrslu IPCC, sbr. reglugerð (ESB) 2020/1044, þó reglugerðin hafi ekki enn verið tekin upp í EES-samninginn. Ákvarða þarf framangreindar tölur formlega fyrir Ísland með aðlögun á viðauka I, II og III við ákvörðun þessa þegar hún verður tekin upp í EES-samninginn. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32020D2126 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 426, 17.12.2020, p. 58 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D070121/01 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 42, 30.6.2022, p. 43 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 175, 30.6.2022, p. 46 |
Breytt af (Modified by)
| 32025D1405 | amends | Commission Implementing Decision (EU) 2025/1405 of 16 July 2025 amending Implementing Decision (EU) 2020/2126 as regards the total quantities of cancelled EU ETS allowances that may be taken into account for certain Member States’ compliance under Regulation (EU) 2018/842 of the European Parliament and of the Council | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
| 32024D1884 | amends | Commission Implementing Decision (EU) 2024/1884 of 10 July 2024 amending Commission Implementing Decision (EU) 2020/2126 as regards the total quantities of cancelled EU ETS allowances that may be taken into account for certain Member States’ compliance under Regulation (EU) 2018/842 of the European Parliament and of the Council | Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun |
| 32023D1319 | amends | Commission Implementing Decision (EU) 2023/1319 of 28 June 2023 amending Implementing Decision (EU) 2020/2126 to revise Member States’ annual emission allocations for the period from 2023 to 2030 | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
Breytir (Modifies)
| 32018R0842 | based on | Regulation (EU) 2018/842 of the European Parliament and of the Council of 30 May 2018 on binding annual greenhouse gas emission reductions by Member States from 2021 to 2030 contributing to climate action to meet commitments under the Paris Agreement and amending Regulation (EU) No 525/2013 | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Flokkun (Classifications)
| EUROVOC | pollution control, environmental monitoring, EU Member State, climate change, greenhouse gas, reduction of gas emissions, EU emission allowance |
|---|---|
| Subject matter | Environment |