Breyting á framkvæmdarákvörðun um árlega losunarheimild aðildarríkja 2026–2030 - 32026D0895

Commission Implementing Decision (EU) 2026/895 of 24 April 2026 amending Implementing Decision (EU) 2020/2126 as regards the setting out of the annual emission allocations for Member States for the period from 2026 to 2030


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Tegund gerðar Ákvörðun
Nánari tegund gerðar Framkvæmdarákvörðun
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.03 Loft

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Ákvörðunin breytir framkvæmdarákvörðun ESB 2020/2126 með því að uppfæra árlegar losunarúthlutanir (e. Annual Emission Allocations, AEAs) aðildarríkja fyrir árin 2026-2030 samkvæmt reglugerð (ESB) 2018/842 um samfélagslosun (e. Effort Sharing Regulation, ESR). Breytingarnar endurspegla endurskoðaða útreikninga framkvæmdastjórnarinnar, m.a. í kjölfar ítarlegrar úttektar (e. comprehensive review) á losunarbókhaldi og leiðréttinga vegna ETS-kerfisins. Ákvörðunin felur ekki í sér nýjar efnislegar skuldbindingar heldur uppfærir árlegu losunarheimildirnar sem notaðar verða við framkvæmd reglugerðarinnar.  Áður en hægt er að innleiða þessa ákvörðun er nauðsynlegt að innleiða uppfærsluna á reglugerð ESB 2018/842 (Reglugerð (ESB) 2023/857). Þegar þessi greining er rituð hefur reglugerð (ESB) 2023/857 enn ekki verið tekin upp í EES-samninginn. Drög að ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar liggja fyrir, en upptaka reglugerðar (ESB) 2023/857 tengist upptöku reglugerðar (ESB) 2023/839 um landnotkun, breytta landnotkun og skógrækt (LULUCF). Til þess að unnt sé að ljúka gerð ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar sem þessu tengist bíða EFTA-ríkin eftir skriflegum athugasemdum frá framkvæmdastjórn ESB. Eins og fram kemur að ofan byggja útreikningar á losunarúthlutunum á ítarlegri úttekt, sem var framkvæmd á vormánuðum 2025. Ísland tók þátt í þeirri úttekt, þrátt fyrir að reglugerð (ESB) 2023/857 hafi ekki verið tekin upp í EES-samninginn. Það þýðir að öll gögn sem þarf til að reikna út losunarúthlutanir fyrir Ísland liggja þegar fyrir. 

Nánari efnisumfjöllun

Sú ákvörðun sem hér er til greiningar er breyting á ákvörðun 2020/2126 um árlegar losunarúthlutanir aðildarríkjanna fyrir tímabilið frá 2021 til 2030, sem hefur verið breytt með ákvörðun 2023/1319, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/842 (hér eftir reglugerðin). Reglugerðin kveður á um skyldubundið lágmarksframlag aðildarríkja fyrir tímabilið frá 2021 til 2030 sem stuðlar að loftslagsaðgerðum til að uppfylla skuldbindingar samkvæmt Parísarsamningnum. Í samræmi við 4. gr. reglugerðarinnar er tilgreint í I. viðauka hennar um hversu mörg prósent, að lágmarki, hvert aðildarríki skuli draga úr losun gróðurhúsalofttegunda fyrir 2030, miðað við losun 2005. Í ákvörðun 2020/2126, sem tekin hefur verið upp í EES samninginn með ákvörðun Sameiginlegu EES nefndarinnar 269/2019, kemur fram leyfileg losun í CO2 ígildum samkvæmt skuldbindingum hvers aðildarríkis fyrir hvert ár á tímabilinu 2021-2030. Breytingar á henni voru áður gerðar í ákvörðun ESB 2023/1319, sem fela í sér að viðauki II varðandi árlegar losunarúthlutanir sé uppfærður, en þær hafa ekki verið teknar  upp í EES samninginn. Megintilgangur ákvörðunar (ESB) 2026/895 er að uppfæra losunarúthlutanir aðildarríkja fyrir árin 2026-2030 í kjölfar ítarlegrar úttektar á losunarbókhaldi aðildarríkjanna sem framkvæmd var samkvæmt reglugerð (ESB) 2018/1999. Við yfirferðina voru gögn sem liggja til grundvallar útreikningi árlegra losunarheimilda staðfest og eftir atvikum leiðrétt. Ákvörðunin tryggir þannig að AEA-úthlutanir endurspegli nýjustu staðfestu losunargögn. Ákvörðunin uppfærir jafnframt árlegar losunarúthlutanir samkvæmt 10. gr. Reglugerðar (ESB) 2018/842, þar á meðal eftir því sem við á vegna breytinga á fjölda ETS-losunarheimilda fyrir rekstraraðila sem hafa verið undanþegnir viðskiptakerfinu samkvæmt 27. gr. tilskipunar 2003/87/EB. Þetta þarf að skoða sérstaklega fyrir Ísland, þar sem einhverjir rekstraraðilar hafa verið á undanþágu, en þetta mun þó ekki hafa afgerandi áhrif á losunarúthlutanir Íslands. Skv. 10. gr. reglugerðarinnar skal uppfæra árlegar losunarúthlutanir aðildarríkjanna með tilliti til úthlutana viðskiptakerfis ESB (ETS). Árlegar losunarúthlutanir aðildarríkjanna  sem ákvarðaðar voru í ákvörðun 2020/2016 og breyttar í ákvörðun 2023/1319 eru þar af leiðandi uppfærðar fyrir árin 2026 til 2030 í ákvörðun 2026/895 í samræmi við 10. gr. (c) í reglugerðinni, sem segir að uppfæra eigi árlegar losunarúthlutanir til að endurspegla leiðréttingar á fjölda ETS losunnarheimilda sem lúta að losun gróðurhúsalofttegunda frá rekstraraðilum sem eru undanskildir ETS kerfinu í samræmi við 27. gr. tilskipunar 2003/87/EB, þann tíma sem þeir eru undanskildir. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Efnislegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Ekki er gert ráð fyrir beinum fjárhagslegum áhrifum af innleiðingu ákvörðunarinnar. Möguleg óbein áhrif gætu komið fram ef uppfærðar losunarúthlutanir kalla á frekari aðgerðir til að ná skuldbindingum samkvæmt reglugerð (ESB) 2018/842, en slíkur kostnaður leiðir af grunnreglugerðinni en ekki þessari framkvæmdarákvörðun.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Ákvörðunin hefur fyrst og fremst tæknilegt hlutverk og felur ekki í sér nýjar efnislegar skuldbindingar fyrir Ísland umfram þær sem leiða af reglugerð (ESB) 2018/842. Hún uppfærir einungis árlegar losunarúthlutanir (AEAs) fyrir árin 2026-2030 á grundvelli endurskoðaðra losunargagna og leiðréttinga samkvæmt reglugerðinni.

Ákvörðunin er merkt sem EES-tæk og þarf því að taka hana upp í EES-samninginn áður en hún verður bindandi fyrir Ísland. Við upptöku er þörf á efnislegri aðlögun vegna sérstakrar stöðu EFTA-ríkjanna við útreikning árlegra losunarúthlutana, líkt og gert hefur verið við fyrri ákvarðanir samkvæmt reglugerð (ESB) 2018/842.

Ákvörðunin hefur ekki í för með sér nýjar kröfur heldur krefst einkum þess að uppfærðar árlegar losunarúthlutanir verði lagðar til grundvallar við framkvæmd reglugerðarinnar.
Eins og áður segir þarf að ákvarða framangreindar tölur formlega fyrir Ísland með aðlögun á viðauka I, II og III við ákvörðun 2020/2129 og 2026/895 þegar þær verða teknar upp í EES-samninginn.

Áhrif á stjórnsýslu eru talin lítil. Nauðsynlegt verður að uppfæra útreikninga og stjórnsýslugögn sem byggja á árlegum losunarúthlutunum, en ekki er gert ráð fyrir nýjum stjórnsýsluverkefnum eða aukinni skýrslugjöf.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32026D0895
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/895, 27.4.2026
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Breytir (Modifies)

32020D2126 amends Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Flokkun (Classifications)