32025D1405

Commission Implementing Decision (EU) 2025/1405 of 16 July 2025 amending Implementing Decision (EU) 2020/2126 as regards the total quantities of cancelled EU ETS allowances that may be taken into account for certain Member States’ compliance under Regulation (EU) 2018/842 of the European Parliament and of the Council


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.03 Loft

Almennar upplýsingar

Nánari efnisumfjöllun

Sú ákvörðun sem hér er til greiningar er breyting á framkvæmdarákvörðun framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins ESB 2020/2126 sem er hluti af orku- og loftslagspakka Evrópusambandsins (ESB) til ársins 2030, en sá pakki snýr m.a. að skyldubundnu lágmarksframlagi aðildarríkja svo ná megi markmiði Evrópusambandsins í samdrætti á losun gróðurhúsalofttegunda fyrir tímabilið 2021-2030.Ákvörðun (ESB) 2020/2126 er byggð á reglugerð ESB 2018/842 (e. Effort Sharing Regulation – ESR) um bindandi, árlegan samdrátt aðildarríkjanna í losun gróðurhúsalofttegunda á árunum 2021 til 2030 sem framlag til loftslagsaðgerða til að uppfylla skuldbindingar samkvæmt Parísarsamningnum. Ákvörðunin er sett á grundvelli 4. gr. ESR. Í 4. mgr. 4. gr. ESR kemur fram að framkvæmdastjórnin skuli  m.a. tilgreina í framkvæmdargerð heildarfjölda ETS losunarheimilda sem heimilt er að  taka tillit til hjá ákveðnum aðildarríkjum vegna uppfyllingar á skilyrðum 9. gr. ESR á tímabilinu 2021-2030, svokallaður ETS sveigjanleiki, en um hann er fjallað í 6. gr. ESR. Listi yfir sveignaleika ákveðinna ríkja   er settur upp í viðauka III  við ákvörðun ESB 2020/2126, þar er tiltekinn fjöldi heimilda sem nota má í ETS sveigjanleikann fyrir ákveðin aðildarríki ESB. Danmörk og Lúxemborg gerðu breytingar á notkun sveigjanleikans í samræmi við 3. mgr. 6. gr. reglugerðar (ESB) 2018/842. Holland hefur einnig tilkynnt að þau muni nýta sveigjanleikann sem samsvara 0%. Vegna þessa er viðauki III við ákvörðun (ESB) 2020/2126 uppfærður og honum skipt út fyrir viðauka í (ESB) 2025/1405.  Aðlögun var gerð við ákvörðun (ESB) 2020/2126 þegar hún var tekin upp í EES samninginn í gegnum Bókun 31,með ákvörðun Sameiginlegu EES nefndarinnar nr. 29/2022 m.a. hvað varðar III. viðauka við ákvörðunina. Þar er tölum bætt inn fyrir Ísland og Noreg. Tryggja þarf að þær  tölur sem eiga við um Ísland haldist óbreyttar þegar ákvörðun (ESB) 2025/1405 er tekin upp í EES samninginn. Í því sambandi þarf að athuga hvort að gera þurfi nýja aðlögun eða hvort núverandi aðlögun haldist.   Hafa ber í huga að 4. gr. og 9. gr. ESR hefur verið breytt með reglugerð ESB 2023/857, sem ekki hefur verið tekin upp í EES samninginn þegar þetta er skrifað.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Efnislegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Setja þarf reglugerð til innleiðingar á ákvörðun (ESB) 2025/1405. Reglugerðarheimild er að finna í 2. mgr. 6. gr. a í lögum um loftlagsmál nr. 70/2012, en reglugerð samkvæmt ákvæðinu hefur ekki verið sett. Því bendir stofnunin einnig á að ákvörðun (ESB) 2020/2126, sem er breytt með ákvörðun (ESB 2025/1405) hefur ekki verið sérstaklega innleidd á Íslandi, og aðrar ákvarðanir sem breyta ákvörðun (ESB) 2020/2126 (ákvarðanir 2023/1319 og 2024/1884) hafa ekki verið teknar upp í EES samninginn þegar þetta er skrifað.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32025D1405
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/1405, 17.7.2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Breytir (Modifies)

32020D2126 amends Commission Implementing Decision (EU) 2020/2126 of 16 December 2020 on setting out the annual emission allocations of the Member States for the period from 2021 to 2030 pursuant to Regulation (EU) 2018/842 of the European Parliament and of the Council Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32018R0842 based on Regulation (EU) 2018/842 of the European Parliament and of the Council of 30 May 2018 on binding annual greenhouse gas emission reductions by Member States from 2021 to 2030 contributing to climate action to meet commitments under the Paris Agreement and amending Regulation (EU) No 525/2013 Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Flokkun (Classifications)