Útdráttur
Framkvæmdarákvörðun ESB 2023/1319 sem er hér til umfjöllunar, breytir framkvæmdarákvörðun ESB 2020/2126 til að endurskoða árlega losunarúthlutun (e. annual emission allocation) fyrir hvert aðildarríki á árunum 2023-2030. Þessar breytingar innleiða í raun breytingar sem gerðar hafa verið á reglugerð ESB 2018/842 (Effort Sharing Regulation), með reglugerð 2023/857 en sú síðar nefnda hefur ekki verið tekin upp í EES samninginn.
Þessar breytingar fela í sér að viðauka II í ákvörðun 2020/2126 er skipt út fyrir annan. Í þessum viðauka er árleg losunarúthlutun (e. annual emission allocation) fyrir hvert aðildarríki ESB sett fyrir árin 2021-2030, samkvæmt 3. mgr. 4. gr. reglugerðar ESB 2018/842 og í samræmi við 10. gr. þeirrar reglugerðar.
Nánari efnisumfjöllun
Framkvæmdarákvörðun ESB 2023/1319 breytir framkvæmdarákvörðun ESB 2020/2126 og innleiðir í raun breytingar sem gerðar hafa verið á reglugerð ESB 2018/842 (Effort Sharing Regulation), með reglugerð ESB 2023/857.- Ákvörðun ESB 2020/2126 var tekin upp í EES samninginn með ákvörðun Sameiginlegu EES nefndarinnar nr. 29/2022.- Reglugerð ESB 2018/842 var tekin upp í EES samninginn með ákvörðun Sameiginlegu EES nefndarinnar nr. 269/2019.- Reglugerð ESB 2023/857, sem breytir reglugerð ESB 2018/842 hefur ekki verið tekin upp í EES samninginn þegar þetta er skrifað. Þær breytingar sem gerðar eru með framkvæmdarákvörðun ESB 2023/1319 eru að sett er ný árlega losunarúthlutun (e. annual emission allocation) fyrir hvert aðildarríki á árunum 2023-2030.Í formála ákvörðunar ESB 2023/1319 koma eftirfarandi atriði fram:- Í ákvörðun ESB 2020/2126 er árleg losunarúthlutun hvers aðildarríkis ESB sett fyrir árin 2021-2030, í samræmi við reglugerð ESB 2018/842. - Með reglugerð ESB 2023/857, sem breytir m.a. reglugerð ESB 2018/842, er sett fram aðferð til að reikna út árleg mörk á losun á gróðurhúsalofttegundum sem hvert og eitt aðildarríki skal virða á árunum 2023-2030. Vegna þessa var ákvörðun ESB 2020/2126 breytt. - Þær breytingar sem að gerðar eru á árlegri losunarúthlutun taka einungis til áranna 2023-2030 en ekki til áranna 2021-2022. Til að halda í skýrleika, er viðauka II við ákvörðun ESB 2020/2126 þó skipt út í heild sinni. - Árleg losunarúthlutun fyrir hvert aðildarríki fyrir árin 2023-2025, er ákvörðuð á grundvelli línulegs stuðuls, sem hefst á árlegri losunarúthlutun aðildarríkis á árinu 2022 og endar 2030 á þeim mörkum sem að sett eru fyrir hvert aðildarríki í 2. dálki í viðauka I við reglugerð ESB 2018/842. Þessum viðauka hefur verið breytt með reglugerð ESB 2023/857, sem líkt og áður segir hefur ekki verið tekin upp í EES samninginn. - Árleg losunarúthlutun fyrir hvert aðildarríki fyrir árin 2026-2030, verður ákveðin á grundvelli línulegs stuðuls, sem hefst á meðal losun gróðurhúsalofttegunda á árunum 2021-2023 í viðeigandi aðildarríki. Þetta meðaltal verður ákveðið eftir yfirferð á gögnum sem aðildarríkin skila inn fyrir árin 2021-2023. Framkvæmdastjórnin mun yfirfara gögnin á árinu 2025 með aðstoð frá Umhverfisstofnun Evrópu (e. European Environment Agency) og því verður árleg losunarúthlutun fyrir árin 2026-2030 ekki ákveðin á þessu stigi. - Aðlaganir (e. adjustment) verða gerðar á gildum fyrir árlega losunarúthlutun fyrir árin 2023-2025 í samræmi við c. lið. 1. mgr. 10. gr. reglugerðar ESB 2018/842. Losun á gróðurhúsalofttegundum frá staðbundum iðnaði sem hefur verið undanþegin ETS kerfinu samkvæmt 27. gr. tilskipunar ESB 2003/87, að því marki að hún sé frá og með 2021 undanþegin frá þaki á losun Sambandsins (e. Union emission cap) í samræmi við þá tilskipun, fellur undir gildissvið reglugerðar ESB 2018/842. Þar af leiðandi, er þeim fjölda sem tekinn er af þaki (e. cap) á losun bætt við árlega losunarúthlutun í viðkomandi aðildarríki á árunum 2023-2025. - Í ljósi ofangreindra atriða er ákvörðun ESB 2020/2126 breytt með ákvörðun ESB 2023/1319.Ákvörðun ESB 2023/1319 telur aðeins tvær greinar:- Samkvæmt 1. gr. ákvörðunarinnar er viðauka II í ákvörðun ESB 2020/2126 skipt út fyrir þann texta sem settur er fram í viðauka við ákvörðun 2023/1319. Í þessum viðauka er árleg losunarúthlutun fyrir hvert aðildarríki ESB sett, í samræmi við 3. mgr. 4. gr. reglugerðar ESB 2018/842 og aðlagað samkvæmt 10. gr. þeirrar reglugerðar. - 2. gr. ákvörðunar 2023/1319 fjallar um gildistöku ákvörðunarinnar en hún hefur þegar tekið gildi í Evrópusambandinu. Við lestur ofangreinds texta og ákvörðunar ESB 2023/1319 þarf að hafa í huga að reglugerð ESB 2018/842 hefur verið tekin upp í EES samninginn, hins vegar hafa breytingar verið gerðar á reglugerðinni með reglugerð ESB 2023/857, sem ekki hefur verið tekin upp í samninginn þegar þetta er skrifað. Þar á meðal eru breytingar sem gerðar hafa verið á viðauka I við reglugerð ESB 2018/842. Einnig þarf að hafa í huga að aðlaganir voru gerðar við upptöku bæði ákvörðunar ESB 2020/2126 og reglugerðar ESB 2018/842 í EES samninginn:Ákvörðun 2020/2126, sem er breytt með ákvörðun ESB 2023/1319, var tekin upp í bókun 31 við EES samninginn með ákvörðun Sameiginlegu EES nefndarinnar nr. 29/2022. Sú ákvörðun inniheldur ákveðnar aðlaganir en þar er t.d. árleg losunarúthlutun fyrir Ísland og Noreg sett fyrir tímabilið 2021-2030 og bætt við viðauka II í ákvörðun ESB 2020/2126. Þessi árlega losunarúthlutun fyrir Ísland og Noreg var ákveðin af Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) í samræmi við reglugerð ESB 2018/842, með þeim aðlögunum sem gerðar voru við upptöku reglugerðarinnar í EES samninginn, sbr. ákvörðun Sameiginlegu EES nefndarinnar nr. 269/2019 og 29/2022. Yfirlýsingu Íslands og Noregs var bætt við ákvörðun nefndarinnar nr. 269/2019 um landsáætlanir tengdar ákvörðuninni, sem þyrfti að athuga ef reglugerð 2023/857, sem breytir reglugerð 2018/842 er tekin upp í samninginn.Ljóst er að þörf er á sambærilegum aðlögunartexta og er í ákvörðun Sameiginlegu EES nefndarinnar nr. 29/2022 varðandi upptöku ákvörðunar ESB 2020/2126 í EES samninginn, ef ákvörðun 2023/1319 er tekin upp í samninginn. Hafa ber í huga að tengsl eru milli þeirra breytinga sem að gerðar eru á reglugerð ESB 2018/842 og þeirra breytinga sem að gerðar eru á ákvörðun 2020/2126 eins og lýst er að ofan. Því væri ráðleg að skoða upptöku þessara tveggja gerða í EES samninginn saman.