32025D1405
Commission Implementing Decision (EU) 2025/1405 of 16 July 2025 amending Implementing Decision (EU) 2020/2126 as regards the total quantities of cancelled EU ETS allowances that may be taken into account for certain Member States’ compliance under Regulation (EU) 2018/842 of the European Parliament and of the Council
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.03 Loft |
Almennar upplýsingar
Nánari efnisumfjöllun
Sú ákvörðun sem hér er til greiningar er breyting á framkvæmdarákvörðun framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins ESB 2020/2126 sem er hluti af orku- og loftslagspakka Evrópusambandsins (ESB) til ársins 2030, en sá pakki snýr m.a. að skyldubundnu lágmarksframlagi aðildarríkja svo ná megi markmiði Evrópusambandsins í samdrætti á losun gróðurhúsalofttegunda fyrir tímabilið 2021-2030.Ákvörðun (ESB) 2020/2126 er byggð á reglugerð ESB 2018/842 (e. Effort Sharing Regulation – ESR) um bindandi, árlegan samdrátt aðildarríkjanna í losun gróðurhúsalofttegunda á árunum 2021 til 2030 sem framlag til loftslagsaðgerða til að uppfylla skuldbindingar samkvæmt Parísarsamningnum. Ákvörðunin er sett á grundvelli 4. gr. ESR. Í 4. mgr. 4. gr. ESR kemur fram að framkvæmdastjórnin skuli m.a. tilgreina í framkvæmdargerð heildarfjölda ETS losunarheimilda sem heimilt er að taka tillit til hjá ákveðnum aðildarríkjum vegna uppfyllingar á skilyrðum 9. gr. ESR á tímabilinu 2021-2030, svokallaður ETS sveigjanleiki, en um hann er fjallað í 6. gr. ESR. Listi yfir sveignaleika ákveðinna ríkja er settur upp í viðauka III við ákvörðun ESB 2020/2126, þar er tiltekinn fjöldi heimilda sem nota má í ETS sveigjanleikann fyrir ákveðin aðildarríki ESB. Danmörk og Lúxemborg gerðu breytingar á notkun sveigjanleikans í samræmi við 3. mgr. 6. gr. reglugerðar (ESB) 2018/842. Holland hefur einnig tilkynnt að þau muni nýta sveigjanleikann sem samsvara 0%. Vegna þessa er viðauki III við ákvörðun (ESB) 2020/2126 uppfærður og honum skipt út fyrir viðauka í (ESB) 2025/1405. Aðlögun var gerð við ákvörðun (ESB) 2020/2126 þegar hún var tekin upp í EES samninginn í gegnum Bókun 31,með ákvörðun Sameiginlegu EES nefndarinnar nr. 29/2022 m.a. hvað varðar III. viðauka við ákvörðunina. Þar er tölum bætt inn fyrir Ísland og Noreg. Tryggja þarf að þær tölur sem eiga við um Ísland haldist óbreyttar þegar ákvörðun (ESB) 2025/1405 er tekin upp í EES samninginn. Í því sambandi þarf að athuga hvort að gera þurfi nýja aðlögun eða hvort núverandi aðlögun haldist. Hafa ber í huga að 4. gr. og 9. gr. ESR hefur verið breytt með reglugerð ESB 2023/857, sem ekki hefur verið tekin upp í EES samninginn þegar þetta er skrifað.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Efnislegri aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Setja þarf reglugerð til innleiðingar á ákvörðun (ESB) 2025/1405. Reglugerðarheimild er að finna í 2. mgr. 6. gr. a í lögum um loftlagsmál nr. 70/2012, en reglugerð samkvæmt ákvæðinu hefur ekki verið sett. Því bendir stofnunin einnig á að ákvörðun (ESB) 2020/2126, sem er breytt með ákvörðun (ESB 2025/1405) hefur ekki verið sérstaklega innleidd á Íslandi, og aðrar ákvarðanir sem breyta ákvörðun (ESB) 2020/2126 (ákvarðanir 2023/1319 og 2024/1884) hafa ekki verið teknar upp í EES samninginn þegar þetta er skrifað. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32025D1405 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/1405, 17.7.2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Samþykktardagur i ESB |
|---|
Breytir (Modifies)
| 32020D2126 | amends | Commission Implementing Decision (EU) 2020/2126 of 16 December 2020 on setting out the annual emission allocations of the Member States for the period from 2021 to 2030 pursuant to Regulation (EU) 2018/842 of the European Parliament and of the Council | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32018R0842 | based on | Regulation (EU) 2018/842 of the European Parliament and of the Council of 30 May 2018 on binding annual greenhouse gas emission reductions by Member States from 2021 to 2030 contributing to climate action to meet commitments under the Paris Agreement and amending Regulation (EU) No 525/2013 | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Flokkun (Classifications)
| EUROVOC | Luxembourg, pollution control, environmental monitoring, climate change, greenhouse gas, reduction of gas emissions, Denmark, EU emission allowance |
|---|---|
| Subject matter | Environment |
