MiFID II - 32014L0065

Directive 2014/65/EU of the European Parliament and of the Council of 15 May 2014 on markets in financial instruments and amending Directive 2002/92/EC and Directive 2011/61/EU (recast) - MIFID II

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Tegund gerðar Tilskipun
Svið (EES-samningur, viðauki) 09 Fjármálaþjónusta, 09.03 Kauphöll og verðbréf
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 078/2019
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Markmið Evrópureglnanna er að tryggja gagnsæi á fjármálamörkuðum, efla fjárfestavernd, auka traust fjárfesta, fylla í gloppur á regluverki og tryggja að eftirlitsstofnanir hafi nægar valdheimildir til að sinna verkefnum sínum. Mikilvægt er að samræma þær reglur sem gilda hér á landi við þær sem gilda á Evrópska efnahagssvæðinu enda er þannig best gætt að hagsmunum markaðarins, fjárfesta og almennings og ýtt undir aukna starfsemi erlendra fyrirtækja hér á landi og íslenskra fyrirtækja erlendis.

Nánari efnisumfjöllun

Alþjóðlega fjármálakreppan leiddi í ljós bresti í virkni og gagnsæi fjármálamarkaða. Samdóma álit alþjóðastofnana er að veikleikar í stjórnarháttum fjölda fjármálafyrirtækja, meðal annars skortur á öryggisventlum (e. checks and balances), hafi verið einn af þeim þáttum sem hrundu fjármálakreppunni af stað. Óhófleg og óvarleg áhættutaka getur leitt til falls einstakra fjármálafyrirtækja og kerfisáhættu í einstaka ríkjum og á alþjóðavísu. Framferði einstaka fyrirtækja getur skaðað fjárfesta og dregið úr trausti þeirra til fjármálakerfisins. Þörf er á traustari lagaumgjörð um fjármálagerninga til að tryggja gagnsæi, efla fjárfestavernd, auka traust fjárfesta, fylla í gloppur á regluverki og tryggja að eftirlitsstofnanir hafi nægar valdheimildir til að sinna verkefnum sínum. Í því skyni gaf Evrópusambandið (ESB) út tilskipun (2014/65/ESB, MiFID II) og reglugerð (600/2014/ESB, MiFIR) um markaði fyrir fjármálagerninga. MiFID II felur í sér þónokkrar breytingar frá því sem hefur gilt frá setningu MiFID I. Hið nýja regluverk hefur víðtækara gildissvið, tekur mið af tækninýjungum og er meðal annars ætlað að auka gagnsæi í viðskiptum með fjármálagerninga og skerpa á fjárfestavernd. MiFID II hefur í för með sér breytingar á núgildandi reglum um starfsleyfi, viðskiptahætti fjármálafyrirtækja, skipulagskröfur fjármálafyrirtækja og nýjar tegundir viðskiptavettvanga, svo eitthvað sé nefnt. MiFIR felur í sér víðtækari kröfur en í MiFID I um gagnsæi fyrir og eftir viðskipti og þá er eftirlitsstjórnvöldum færðar valdheimildir til að hlutast til um markaðssetningu, dreifingu eða sölu tiltekinna fjármálaafurða, samsettra innstæðna og samsettra innstæðna með tiltekin einkenni, að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Íhlutunarheimildir geta einnig náð til tiltekinnar fjármálastarfsemi eða framkvæmdar á fjármálamarkaði.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Tæknilegri aðlögun, Efnislegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Já
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Ný heildarlög um markaði fyrir fjármálagerninga
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing í vinnslu

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Rekstraráætlun Fjármálaeftirlitsins fyrir árið 2019 gerir ráð fyrir fjölgun stöðugilda vegna verkefna á sviði verðbréfamarkaðar. Þannig hefur verið tekið tillit til þeirra auknu verkefna sem stofnuninni verða falin með frumvarpinu bæði í kostnaði og útreikningi á eftirlitsgjaldi, sem stendur að mestu undir kostnaði við rekstur stofnunarinnar. Nettóáhrif á ríkissjóð verða því engin. Rekstraráætlun Fjármálaeftirlitsins er notuð við gerð fjárlagafrumvarps og mótun fimm ára áætlunar í ríkisfjármálum. Hún byggir á þekkingu stofnunarinnar á þeim Evrópureglum sem til stendur að innleiða og mati hennar á breytingu verkefna Fjármálaeftirlitsins með tilliti til þeirra.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Áformin miðað að því að efla fjárfestavernd, stuðla að gagnsæi í verðbréfaviðskiptum og taka mið af áskorunum fyrir verðbréfamarkaðinn sem fylgja þeim tækninýjungum sem komið hafa fram á sjónarsviðið síðastliðin misseri. Þá gera áformaðar lagabreytingar auknar kröfur um viðskiptahætti og skipulagskröfur þeirra sem stunda verðbréfaviðskipti sem styrkir umgjörð markaðarins. Eftirlitsstjórnvöldum verða fengnar aukar valdheimildir á verðbréfamarkaði. Sú breyting sem markaðsaðilar hafa mestar áhyggjur af eru takmarkanir á tekjur sem hægt er að hafa af því að veita eða miðla sjálfstæðum rannsóknum eða ráðgjöf. Einhverjir telja að þær breytingar hafi veruleg áhrif á viðskiptamódel verðbréfafyrirtækja en óljóst er hvaða áhrif breytingin mun hafa, þar sem ekki er liðið langt síðan MiFID II tók gildi í ESB. Breytingar á öðrum kröfum til markaðsaðila eru ekki taldar hafa í för með sér svo aukinn kostnað fyrir þá sem eiga milligöngu um verðbréfaviðskipti að það skerði samkeppni. Samræming við evrópskar reglur á þessu sviði er aftur á móti líkleg til þess að ýta undir hana.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32014L0065
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 173, 12.6.2014, p. 349
Innleiðing í aðildarríkjum ESB 27 af 27 aðildarríkjum hafa tilkynnt innleiðingarráðstafanir
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2011) 656
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Liechtenstein)
Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Ísland)
Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Noregur)

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Samþykktardagur
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 88, 31.10.2019, p. 1
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 279, 31.10.2019, p. 143

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA Græn: Innleitt
Viðeigandi lög/reglugerði
  • Lög um markaði fyrir fjármálagerninga (Please note that the Act has not been published. It is foreseen to be published 16 July. It will enter into force 1 September 2021).

Tillögur að breytingum (Proposed amendments)

COM(2025) 942
52025PC0942
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
COM(2025) 502
52025PC0502
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
COM(2023) 279
52023PC0279
Tillaga sem gæti verið EES-tæk

Breytt af (Modified by)

32026R1092 based on, completes Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32026R0825 based on, completes Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
32024L2811 amends Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
32024L0790 amends Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
32023L2864 amends Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

Breytir (Modifies)

32011L0061 amends Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32010L0078 does deletion of, does repeal of, repeals Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32008L0010 repeals
32007L0044 repeals Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
32006L0031 repeals Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Samantekt EUR-Lex

Flokkun (Classifications)