32016R2345
Commission Implementing Regulation (EU) 2016/2345 of 14 December 2016 amending Regulation (EC) No 262/2009 and Implementing Regulation (EU) No 1079/2012 as regards references to ICAO provisions
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2345 frá 14. desember 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 262/2009 og framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 1079/2012 að því er varðar tilvísanir í ákvæði Alþjóðaflugmálastofnunarinnar
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn en er ekki lengur í gildi |
|---|---|
| Tegund gerðar | Reglugerð |
| Nánari tegund gerðar | Framkvæmdarreglugerð |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 065/2017 |
| Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar | |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Nei |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Í Reglugerð (EB) nr. 262/2009 er kveðið á um kröfur um samræmda úthlutun og notkun á spurnarkóðum fyrir kögunarsvarratsjár (Mode S) fyrir samevrópska loftrýmið. Með reglugerð 2016/2345 er reglugerð (EB) nr. 262/2009 breytt þannig að tilvísanir reglugerðarinnar í I. viðauka við viðauka 10 við Chicago samninginn eru uppfærðar til samræmis breytingar sem hafa átt sér stað.
Nánari efnisumfjöllun

Til nánari upplýsingar þá er í reglugerð (ESB) nr. 1079/2012, um kröfur um bil milli talrása í samevrópska loftrýminu, í II. viðauka vísað til ákvæða í viðauka 10 við Chicago samninginn sem og annarra ICAO gagna. Viðauki 10 sem og þau gögn sem vísað er til hafa verið uppfærð á vettvangi ICAO. Í reglugerð 2016/2345 er kveðið á um beitingu uppfærðra ICAO ákvæða.
Viðauka I við reglugerð (EB) nr. 262/2009 er breytt þannig að þar sem vísað var til kafla 3 „kögunarratsjárkerfi“ í 10. viðauka Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, er nú vísað til kaflans með þeim hætti að breyting 89 á kaflanum er meðtalin. Á sama hátt er breyting gerð á kafla 5 „Gagnatenging milli loftfara og jarðstöðva um kögunarsvarratsjá sem S-starfshátt“ í 10. viðauka Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, að nú er vísað til kaflans þannig að breyting 90 er meðtalin.
Viðauka II við reglugerð (ESB) nr. 1079/2012 er breytt þannig að vísað er til uppfærða gagna þannig að breytingar nr. 90 í 2. hluta III. bindis 10. viðauka við Chicago-samninginn, sem og breytingar nr. 6 á PANS-ATM skjali 4444 Alþjóðaflugmálastofnunarinnar eru meðtaldar.
Áhrif reglugerðar 2016/2345 eru óveruleg. Reglugerð 1079/2012 er ekki beitt hér á landi en gildissvið hennar er takmarkað við ICAO EUR svæðið, m.ö.o. á hún við um annað flugumferðarstjórnarsvæði en Ísland er á. Reglugerð 292/2009 hefur takmörkuð áhrif að svo stöddu en engin mode S starfsemi er enn sem komið er hjá Isavia. Isavia er starfsleyfishafi flugumferðar- og kögunarþjónustu hér á landi. Þessu til viðbótar ber Isavia að uppfylla ákvæði Viðauka 10 hverju sinni þannig að sú krafa er einnig gerð á Isavia í gegnum gilandi starfsleyfisreglugerð.

Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoð er að finna í 57. gr. a og 5. mgr. 75. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum Reglugerðina er rétt að innleiða með breytingu á reglugerðum nr. 693/2010 og 732/2014. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
|---|---|
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Sjá efnisútdrátt |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32016R2345 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 348, 21.12.2016, p. 11 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D047900/02 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Samþykktardagur | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 81, 29.11.2018, p. 37 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 305, 29.11.2018, p. 32 |
Breytt af (Modified by)
| 32023R1771 | implicitly repeals | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32023R1770 | implicitly repeals | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Breytir (Modifies)
| 32012R1079 | amends | Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi |
| 32009R0262 | amends | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Lagagrundvöllur (Legal basis)
Acts, treaties and agreements this act is based on, according to EUR-Lex.
| 32004R0552 | Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 552/2004 frá 10. mars 2004 um rekstrarsamhæfi evrópska netsins fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar (rekstrarsamhæfisreglugerðin) Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Flokkun (Classifications)
| EUROVOC | civil aviation, air safety, air traffic, International Civil Aviation Organisation, waveband, communications systems |
|---|---|
| Subject matter | Transport |