Útdráttur
Um er að ræða reglugerð um tilskilinn flugleiðsögubúnað loftfara sem þarf til notkunar á samevrópska loftrýminu og um starfsreglur um notkun hans. Búnaðinn á að nota með samræmdum hætti í samræmi við grunnkröfur settar eru fram í viðauka VIII. við reglugerð (ESB) 2018/1139. Ekki kostnaður hér á landi og ekki áhrif.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Um er að ræða reglugerð um tilskilinn flugleiðsögubúnað loftfara sem þarf til notkunar á samevrópska loftrýminu og um starfsreglur um notkun hans. Búnaðinn á að nota með samræmdum hætti í samræmi við grunnkröfur settar eru fram í viðauka VIII. við reglugerð (ESB) 2018/1139. Aðdragandi: Um er að ræða kröfur sem voru áður innleiddar með reglugerð (ESB) nr. 552/2004. Sú reglugerð var felld úr gildi 11. september 2018. Ákveðnar greinar og tilvísanir í innleiðingarreglugerðir giltu þó áfram en máttu ekki gilda lengur en til 12. september 2023.Efnisútdráttur: Reglugerðin mælir fyrir um starfsreglur sem tengjast notkun loftrýmis og kröfur um búnað loftfara sem er nauðsynlegur fyrir örugga og samræmda starfrækslu innan samevrópska loftrýmisins.Reglugerðin gildir um rekstraraðila tiltekinna loftfara skv. ákvæðum í reglugerð (ESB) 2018/1139 sem starfrækja almenningsflug inn í samevrópska loftrýmið, innan þess og utan þ.e.;- rekstraraðila loftfara sem eru skráð í aðildarríki, nema og að því marki sem aðildarríkið hefur falið þriðja landi ábyrgð sína samkvæmt Chicago-samningnum og loftfarið er starfrækt af flugrekanda/umráðanda frá landi utan Evrópusambandsins. - rekstraraðila loftfara sem er skráð í landi utan ESB og starfrækt af flugrekanda/umráðanda sem hefur staðfestu, búsetu eða höfuðstöðvar sínar á því yfirráðasvæði sem sáttmálar Evrópusambandsins gilda um.- um starfrækslu flugrekanda/umráðanda í þriðja landi á loftförum til, innan eða frá því yfirráðasvæði sem sáttmálarnir gilda um.Umráðendur þeirra loftfara skulu tryggja að loftfarið sé útbúið og starfrækt í samræmi við reglur og verklagsreglur sem settar eru fram í I. viðauka (Part-Com) og viðauka II (Part SUR) við reglugerð þessa.Samkvæmt gerðinni skal Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) þróa viðurkenndar aðferðir til að uppfylla kröfur (AMC) sem hægt er að nota til að koma á samræmi milli krafna í þessari gerð við kröfur í reglugerð (ESB) 2018/1139 og reglugerðum settum á grundvelli hennar. Þeim sem kröfurnar ná til verður heimilt að styðjast við AMC til að uppfylla ákvæði þessarar gerðar.Lögbær yfirvöld þurfa að koma á fót kerfi til að meta stöðugt hvort aðrar viðurkenndar aðferðir (AMC), sem þau sjálf eða þeir sem heyra undir yfirvaldið nota, séu í samræmi við kröfur í reglugerð (ESB) 2018/1139 og afleiddum gerðum.Þá ber lögbærum yfirvöldum að upplýsa EASA um hvaða viðurkenndu aðferðir til að uppfylla kröfur eru notaðar af þeim eða þeim sem heyra undir yfirvaldið.Með gerðinni eru reglugerðir (EB) nr. 29/2009, (ESB) nr. 1206/2011, (ESB) 1207/2011 og (ESB) nr. 1079/2012 felldar úr gildi.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Engin breyting á umfangi hér á landi þar sem við beitum ekki þeim reglugerðum sem verið er að fella úr gildi og þær reglur sem koma í staðinn hafa sama gildissvið og þær gerðir.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er 188. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022.Rétt væri að innleiða reglugerðina með nýrri reglugerð.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Enginn kostnaður metinn vegna innleiðingar reglugerðarinnar.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: NeiTilgreining á hagsmunaaðilum: Isavia ANS. Reglugerðin hefur þó ekki áhrif hér á landi.Horizontal issues: sektir; aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: NeiÞörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei