32019L0520
Directive (EU) 2019/520 of the European Parliament and of the Council of 19 March 2019 on the interoperability of electronic road toll systems and facilitating cross-border exchange of information on the failure to pay road fees in the Union
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/520 frá 19. mars 2019 um rekstrarsamhæfi rafrænna vegatollkerfa og um að greiða fyrir upplýsingaskiptum yfir landamæri í tengslum við vanefndir á greiðslu veggjalda í Sambandinu (endurútgefin)
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 13 Flutningar, 13.02 Flutningar á vegum |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 031/2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Markmiðið er að rafræn vegatollakerfi verði notuð sem víðast í aðildarríkjunum og nágrannalöndunum þeirra. Með tilskipun 2004/52/EB um rekstrarsamhæfi rafræns vegatollakerfis í Bandalaginu var kveðið á um nauðsynleg skilyrði til að tryggja rekstrarsamhæfi rafrænna vegatolla innan þess. Það var hins vegar metið sem svo að markmiðin sem sett voru með tilskipun 2004/52/EB næðust ekki. Því er talið nauðsynlegt að til séu samhæfð rafræn vegagjaldakerfi innan Evrópu sem samhliða kerfum aðildarríkjanna sem virka oft aðeins á landsvísu. Kostnaður óviss.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Markmiðið er að rafræn vegatollakerfi verði notuð sem víðast í aðildarríkjunum og nágrannalöndunum þeirra. Jafnframt er stefnt að því að kerfin verði áreiðanleg, notendavæn, og hagkvæm. Miðað er að því að kerfin verði þannig gerð að þau geti þróast með stefnu Evrópusambandsins í vegatolla málum og aðlagast framförum í tækni. Að samhæfa rafræn vegatollakerfi mun einnig verða til þess fallið að draga úr kostnaði og auðvelda fólki að tengjast kerfum til greiðslu vegtolla.Aðdragandi: Með tilskipun 2004/52/EB um rekstrarsamhæfi rafræns vegatollakerfis í Bandalaginu var kveðið á um nauðsynleg skilyrði til að tryggja rekstrarsamhæfi rafrænna vegatolla innan þess. Tilskipunin gilti um rafræna innheimtu allra tegunda veggjalda á öllu vegakerfi Bandalagsins. Þar er átt við í borgum og milli borga, á hraðbrautum, aðalvegum og smærri vegum og við ýmis mannvirki, s.s. göng, brýr og ferjur.Tilskipunin náði þó ekki til vegatollakerfis þar sem a) engar rafrænar aðferðir voru við innheimtu vegatolls, b) rafræn vegatollakerfi þar sem ekki er þörf á uppsetningu búnaðar í ökutækjum, og c) lítil, algerlega staðbundin vegatollakerfi þar sem kostnaðurinn við að fara að kröfum tilskipunarinnar væri í engu samræmi við ávinninginn sem af því hlytist.Til að ná framangreindu markmiði skyldi komið á fót evrópskri, rafrænni vegatollþjónustu sem kæmi til viðbótar innlendri rafrænni vegatollþjónustu hvers ríkis. Hún átti að tryggja rekstrarsamhæfi vegtollakerfa í öllu Bandalaginu.Það var hins vegar metið sem svo að markmiðin sem sett voru með tilskipun 2004/52/EB næðust ekki. Ýmis vandamál komu upp, s.s. erfiðleikar við að sækja greiðslu vegna vanrækslu á greiðslu vegatolla þegar ökutæki eru skráð í öðru aðildarríki. Þetta var talið vera vegna þess að enginn miðlægur sam-evrópskur gagnagrunnur gerði aðildarríkjunum það kleift að skiptast á upplýsingum til að framfylgja eftirlitinu. Því fylgdi mikið tekjutap. Þannig er talið nauðsynlegt að til séu samhæfð rafræn vegagjaldakerfi innan Evrópu sem samhliða kerfum aðildarríkjanna sem virka oft aðeins á landsvísu.Efnisútdráttur: Tilskipunin inniheldur eftirfarandi 34. gr. í köflum I-IX auk viðauka I-III:Tilskipunin kveður á um nauðsynleg skilyrði til að: a) tryggja rekstrarsamhæfi rafrænna vegatollakerfa í öllu Sambandinu, í borgum og milli borga, á hraðbrautum, aðalvegum og smærri vegum og við ýmis mannvirki, s.s. göng, brýr og ferjur; b) greiða fyrir upplýsingaskiptum milli landa varðandi skráningu ökutækja þegar eigendur/umráðamenn þeirra hafa vanrækt að greiða veggjöld af einhverju tagi í Sambandinu. Undanþágur eru frá 3.-22. gr. þegar um er að ræða: a) vegatollakerfi sem ekki eru rafræn samkvæmt skilningi 2. mgr. 10. gr.; b) lítil, algerlega staðbundin vegatollkerfi þar sem kostnaðurinn við að fara að kröfum 3.-22. gr. væri í engu samræmi við ávinninginn sem af því hlytist. Markmiðið með samvirkni rafrænna vegatollakerfa í Sambandinu skal náð með EETS, e. European Electronic Toll Service, sem skal vera viðbót við innlenda rafræna tollþjónustu aðildarríkjanna.Í 23. gr. er kveðið á aum aðferð við upplýsingaskipti milli aðildarríkja. Hvert aðildarríki skal tilnefna innlendan tengilið. Aðeins tengiliðir hvers aðildarríkis geta skipst á upplýsingum um skráningu ökutækja.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Meta þarf hvort undanþáguheimildir 3.-22. gr. ættu við hér á landi, þ.e. þar sem um væri að ræða lítil, algerlega staðbundin vegatollkerfi þar sem kostnaðurinn við að fara að kröfum 3.-22. gr. væri í engu samræmi við ávinninginn sem af því hlytist.Hins vegar er skylda að tilnefna hér á landi innlendan tengilið sem skal vera tengiliðum annarra aðildarríkja innan handar við að afla og veita þær upplýsingar sem þeir þarfnast varðandi skráningu ökutækja hér á landi. Í kafla VIII, 23.-27. gr. eru nánari upplýsingar um upplýsingaskiptin sem skulu fara fram milli aðildarríkja vegna vanrækslu á greiðslu veggjalda.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: 17. gr. vegalaga nr. 80/2007. Innleiðing með reglugerð nr. 979/2013 um rekstrarsamhæfi rafræns gjaldtökukerfis innan Evrópska efnahagssvæðisins, ásamt síðari breytingum.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitar-félaga og atvinnulífs og ALMENNINGS, ef einhver er: Ekki hefur reynst unnt að greina kostnað eins og er. Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Nei.Tilgreining á hagsmunaaðilum: Vegagerðin.Horizontal issues: Sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Gert er ráð fyrir að leggja megi á fjársektir á þann sem greiðir ekki veggjald/tolla. Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoðin er :17. gr. vegalaga nr. 80/2007. Innleiðing með reglugerð nr. 979/2013 um rekstrarsamhæfi rafræns gjaldtökukerfis innan Evrópska efnahagssvæðisins, ásamt síðari breytingum. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Kostnaður verður að öllum líkindum enginn þar sem Ísland ætti að falla undir undanþáguákvæði b. liðs, 2. mgr. 1. gr. þar sem fjallað er um lítil staðbundin kerfi þar sem ávinningur yrði enginn í samanburði við kostnað. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32019L0520 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 91, 29.3.2019, p. 45 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2017) 280 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Liechtenstein) |
|---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 30, 8.5.2025, p. 53 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/761, 8.5.2025 |
Tillögur að breytingum (Proposed amendments)
Breytt af (Modified by)
| 72022L0362CZE_201316 | measure national implementing implements |
| 72020L1057HUN_250568 | measure national implementing implements |
| 72019L1023HUN_250568 | measure national implementing implements |
| 72019L0520HUN_250568 | measure national implementing implements |
| 72019L0520CZE_201316 | measure national implementing implements |
Breytir (Modifies)
| COM(2017) 280 52017PC0280 |
adopts | Directive (EU) 2019/520 of the European Parliament and of the Council of 19 March 2019 on the interoperability of electronic road toll systems and facilitating cross-border exchange of information on the failure to pay road fees in the Union | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32009R0219 | implicitly repeals | ||
| 32004L0052 | repeals | Directive 2004/52/EC of the European Parliament and of the Council of 29 April 2004 on the interoperability of electronic road toll systems in the Community | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 12016E091 | based on |
