Opinbert eftirlit - 32019R0627
Commission Implementing Regulation (EU) 2019/627 of 15 March 2019 laying down uniform practical arrangements for the performance of official controls on products of animal origin intended for human consumption in accordance with Regulation (EU) 2017/625 of the European Parliament and of the Council and amending Commission Regulation (EC) No 2074/2005 as regards official controls
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/627 frá 15. mars 2019 um samræmt, hagnýtt fyrirkomulag við framkvæmd opinbers eftirlits með afurðum úr dýraríkinu, sem eru ætlaðar til manneldis, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 og um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2074/2005 að því er varðar opinbert eftirlit
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Tegund gerðar | Reglugerð |
| Nánari tegund gerðar | Framkvæmdarreglugerð |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 01 Heilbrigði dýra og plantna, 01.01 Dýr |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 003/2020 |
| Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar | |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 2019/627 um samræmt hagnýtt fyrirkomulag við framkvæmd opinbers eftirlits með dýraafurðum sem ætlaðar eru til manneldis í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2017/625 og breytingar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 2074/2005 hvað varðar opinbert eftirlit.
Nánari efnisumfjöllun
Ný eftirlitslöggjöf (ESB) 2017/625 fellir m.a. úr gildi reglugerð (EB) nr. 854/2004 um sértækar reglur um skipulag opinbers eftirlits með afurðum úr dýraríkinu sem eru ætlaðar til manneldis.
Grein 18(8) í nýju Eftirlitslöggjöfinni heimilar framkvæmdastjórninni nánari útfærslu á þeim atriðum sem talin eru upp í ákvæðinu. Það er gert með útgáfu reglugerðar EB 2019/627.
Í reglugerðinni eru m.a. settar fram reglur varðandi lifandi skoðun og heilbrigðisskoðun sláturafurða af mismunandi dýrategundum. Einnig reglur varðandi mjólkurframleiðslu, opinbert eftirlit með lifandi samlokum og fiskafurðum og hvernig eigi að bregðast við frávikum.
Grein 18(8) í nýju Eftirlitslöggjöfinni heimilar framkvæmdastjórninni nánari útfærslu á þeim atriðum sem talin eru upp í ákvæðinu. Það er gert með útgáfu reglugerðar EB 2019/627.
Í reglugerðinni eru m.a. settar fram reglur varðandi lifandi skoðun og heilbrigðisskoðun sláturafurða af mismunandi dýrategundum. Einnig reglur varðandi mjólkurframleiðslu, opinbert eftirlit með lifandi samlokum og fiskafurðum og hvernig eigi að bregðast við frávikum.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Gerðin verður innleidd sem sjálfstæð reglugerð samhliða nýjum reglum um opinbert eftirlit og með stoð í lögum nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Aukinn kostnaður fellur á hið opinbera vegna þjálfunar og hugsanlega fleiri stöðugilda. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands |
Nokkuð íþyngjandi kröfur um að eitlar í meltingarfærum fullorðinna nautgripa sem hafa verið á beit skuli þreifaðir í heilbrigðisskoðun í sláturhúsi. Þessi krafa er tilkomin vegna mikilvægis þess að útiloka einkenni nautaberkla. Ísland er ekki með viðurkenndan nautaberklafrían status, en nautaberklar hafa aldrei greinst á Íslandi. Krafan um að eitlar í meltingarfærum séu þreifaðir eru íþyngjandi, til þess að mæta því ætti Ísland að sækja um nautaberklafrían status. Náist slíkur status fyrir Ísland gæfi það möguleika á undanþágu frá að þreifa eitla í meltingarfærum nautgripa. Ítrekað er að eftirlit skuli vera skipulagt út frá áhættu og áhættan er skilgreind. Einnig er tekið fram að taka megi tillit til viðbótaröryggiskerfa sem framleiðandi hefur innleitt t.d. ákveðinna markaðsstaðla. Þarna er farið ítarlega yfir störf eftirlitsdýralækna í sláturhúsum og lýst hvernig þeir eiga að bregðast við frávikum. Hættan á krossmengun vegna eftirlits er tekin fram sem er nýtt. Lögð er meiri áhersla á hreinleika gripa og tekin fram viðbrögð dýralækna vegna frávika á þessum lið. Framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnar EB nr. 2019/627 frá 15. mars 2019 um samræmt hagnýtt fyrirkomulag við framkvæmd opinbers eftirlits með dýraafurðum sem ætlaðar eru til manneldis í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2017/625 og breytingar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 2074/2005 hvað varðar opinbert eftirlit. Samantekt Ný Eftirlitslöggjöf (EB) 2017/625 mun taka gildi 14. desember 2019. Hún mun meðal annars fella úr gildi EB reglugerð 854/2004 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins um sértækar reglur um skipulag opinbers eftirlits með afurðum úr dýraríkinu sem eru ætlaðar til manneldis. Grein 18(8) í nýju Eftirlitslöggjöfinni heimilar Framkvæmdastjórninni nánari útfærslu á þeim atriðum sem talin eru upp í greininni. Það er gert með útgáfu reglugerðar EB 2019/627. Í reglugerðinni eru m.a. settar fram reglur varðandi lifandi skoðun og heilbrigðisskoðun sláturafurða af mismunandi dýrategundum. Einnig reglur varðandi mjólkurframleiðslu, opinbert eftirlit með lifandi samlokum og fiskafurðum og hvernig eigi að bregðast við frávikum. Atriði sem skipta Ísland máli Í athugasemdum Norðmanna við reglugerð EB/2019/627 kemur fram að þeim finnst það nokkuð íþyngjandi að gerð sé krafa um að eitlar í meltingarfærum fullorðinna nautgripa sem hafa verið á beit skuli þreifaðir í heilbrigðisskoðun í sláturhúsi. Þessi krafa er tilkomin vegna mikilvægis þess að útiloka einkenni nautaberkla. Rök Norðmanna fyrir því að Noregur gæti sleppt þessum þætti heilbrigðisskoðunarinnar eru þau að landið er með vottun frá ESA um nautaberklafrían status. Það fylgir því aukin kostnaður fyrir Mattilsynet og sláturhúsin að þurfa að manna stöður svo hægt sé að framfylgja því að eitlar í meltingarfærum nautgripa séu þreifaðir. Einnig benda Norðmenn á óþarfa hættu á krossmengun þegar eftirlitsfólk þarf að snerta innyfli svo ítarlega. Ísland er ekki með viðurkenndan nautaberklafrían status, en nautaberklar hafa aldrei greinst á Íslandi. Krafan um að eitlar í meltingarfærum séu þreifaðir eru íþyngjandi, til þess að mæta því ætti Ísland að sækja um nautaberklafrían status. Náist slíkur status fyrir Ísland gæfi það möguleika á undanþágu frá að þreifa eitla í meltingarfærum nautgripa. Ítrekað er að eftirlit skuli vera skipulagt út frá áhættu og áhættan er skilgreind. Einnig er tekið fram að taka megi tillit til viðbótaröryggiskerfa sem framleiðandi hefur innleitt t.d. ákveðinna markaðsstaðla. Þarna er farið ítarlega yfir störf eftirlitsdýralækna í sláturhúsum og lýst hvernig þeir eiga að bregðast við frávikum. Hættan á krossmengun vegna eftirlits er tekin fram sem er nýtt. Lögð er meiri áhersla á hreinleika gripa og tekin fram viðbrögð dýralækna vegna frávika á þessum lið. Farið er nákvæmlega yfir heilbrigðisskoðunina eftir slátrun fyrir allar dýrategundir eins og áður. Að sumu leyti er búið að fella niður ákveðna verkþætti eins og suma skurði í líffæri. En eins og Norðmenn hafa bent á, er búið að bæta við þreifingu á eitlum í meltingarfærum eldri nautgripa. Gerð er krafa um að lungu úr fullorðnu fé séu þreifuð og lungaeitlar (3 stk.) séu þreifaðir, en það hefur ekki verið framkvæmt hingað til. Þetta gæti reynst íþyngjandi og krefst endurþjálfunar. Þá er enn inni þreifing á lifur úr sauðfé eldri en 12 mánaða með opnun á gallgöngum, sem hefur heldur ekki verið framkvæmt hérlendis. Krafan er væntanlega tilkomin vegna lifraríkta sem aldrei hafa fundist á íslandi hérlendis. Þetta er íþyngjandi krafa og því ætti Ísland að sækja um að fá viðurkenndan status hvað það varðar. Það er nýtt í reglugerð að við skoðun á sauðfé eftir slátrun, yngra og eldra en 12 mánaða, að höfuð þarf ekki að skoða sérstaklega, nema að það sé til manneldis. Sé það höfuð til manneldis af eldra en 12 mánaða, þarf að þreifa eitla á höfði. Ef nýta á höfuð frá lömbum til manneldis þarf eftirlitsdýralæknir eða aðstoðarmaður hans hafa skoðað þau höfuð sjónrænt. Verið er að fylgja þessu ákvæði eftir nú þegar. Lögð er áhersla á að eftirlitsdýralæknar kanni hvort allur sérstakur áhættuvefur hafi veri fjarlægður. Ekki eru miklar breytingar á kröfum við heilbrigðisskoðun alifugla. Ekki er að sjá að efnislegar breytingar sé gerðar varðandi fisk og skeldýr o.þh. en gengið mun dýpra og nákvæmara í að skilgreina það sem þegar hafði komið fram í viðaukum 854/2004 varðandi skeldýrin. Niðurstaða: Reglugerðin hefur mest áhrif á Matvælastofnun sem þarf að aðlaga verklag sitt. Uppfæra þarf skoðunarhandbækur og fræðsluefni og þjálfa starfsfólk í eftirliti. Hún hefur einnig áhrif á verklag í sumum sláturhúsum sem er íþyngjandi að einhverju leiti. Komast mætti hjá ákveðnum kröfum með staðfestingu um að vissir sjúkdómar finnist ekki á Íslandi. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Atvinnuvegaráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Matvælastofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32019R0627 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 131, 17.5.2019, p. 51 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D058605/03 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Samþykktardagur | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 13, 16.2.2023, p. 6 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 49, 16.2.2023, p. 5 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
Breytt af (Modified by)
| 32026R1406 | amends | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32025R2241 | amends | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32025R1447 | amends | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32022R2503 | amends | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32021R1709 | amends | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Breytir (Modifies)
| 32005R2074 | amends | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Lagagrundvöllur (Legal basis)
Acts, treaties and agreements this act is based on, according to EUR-Lex.
| 32017R0625 | Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 frá 15. mars 2017 um opinbert eftirlit og aðra opinbera starfsemi sem miðar að því að tryggja að lögum um matvæli og fóður og reglum um heilbrigði og velferð dýra, plöntuheilbrigði og plöntuverndarvörur sé beitt og um breytingu á reglugerðum Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 999/2001, (EB) nr. 396/2005, (EB) nr. 1069/2009, (EB) nr. 1107/2009, (ESB) nr. 1151/2012, (ESB) nr. 652/2014, (ESB) 2016/429 og (ESB) 2016/2031, reglugerðum ráðsins (EB) nr. 1/2005 og (EB) nr. 1099/2009 og tilskipunum ráðsins 98/58/EB, 1999/74/EB, 2007/43/EB, 2008/119/EB og 2008/120/EB og um niðurfellingu á reglugerðum Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 854/2004 og (EB) nr. 882/2004, tilskipunum ráðsins 89/608/EBE, 89/662/EBE, 90/425/EBE, 91/496/EBE, 96/23/EB, 96/93/EB og 97/78/EB og ákvörðun ráðsins 92/438/EBE (reglugerð um opinbert eftirlit) Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
