32024R1679

Regulation (EU) 2024/1679 of the European Parliament and of the Council of 13 June 2024 on Union guidelines for the development of the trans-European transport network, amending Regulations (EU) 2021/1153 and (EU) No 913/2010 and repealing Regulation (EU) No 1315/2013

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 13.07 Annað
Svið (EES-samningur, bókun) 31 um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 247/2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Verið er að breyta samgönguáætlun Evrópusambandsins, TEN-T. Ísland hefur tekið þátt í formlegum hluta áætlunarinnar en ekki hinum fjárhagslega. Áhrif hér á landi verða að yfirfara þarf kort og töflur þar sem íslensk samgöngumannvirki koma fram. Ekki fjárhagslega áhrif nema sérstaklega sé tekin ákvörðun um það.

Nánari efnisumfjöllun

Stefna Evrópusambandsins um uppbyggingu innviða kemur fram í svokölluðum Trans European Network áætlunum, skammstafað TEN. Uppbygging samgöngukerfisins kemur fram í TEN-T áætluninni; Trans European Networks – Transport. Með Ten-T áætluninni á að bæta tengingar, ýta undir sjálfbærni og styrkja innri markaðinn.Áætlunin er samstarfsáætlun. Hún er sett fram sem reglugerð en hefur verið tekin inn í prótokól 31 við EES-samninginn. Ísland hefur tekið þátt í formlegum hluta áætlunarinnar með upptöku reglugerðanna í samninginn. Tiltekin samgöngumannvirki hafa verið skilgreind hér á landi sem TEN-T- innviðir, svo sem hringvegurinn, Vestfjarðavegur, Seyðisfjarðarhöfn, Reykjavíkurhöfn, Keflavíkurflugvöllur auk annarra. Ísland hefur ekki tekið þátt í fjármálahluta áætlunarinnar og ekki þegið fé af Evrópusambandinu til uppbyggingar samgangna hér á landi.Upptaka reglugerðarinnar hér á landi hefur hverfandi áhrif. Áhrif hér á landi munu fyrst og fremst verða þau að fara yfir kort yfir TEN-T samgöngumannvirki og uppfæra ef þurf þykir.Markmið sem að er stefnt: Markmið reglugerðarinnar er að koma á fót samevrópsku flutninganeti, e. Trans-European Transport Network, Ten-T innan ESB/EES. Í reglugerðinni eru gerðar kröfur um samgöngunet og til samgöngumannvirkja sem eru hluti netsins. Mannvirki skiptast í Core Network, Extended Core Network og Comprehensive Network, svokallaðir Ten-T innviðir. Kröfurnar eru tvíþættar; annars vegar að notendur samgöngumannvirkja geti treyst á áreiðanlega og samhæfða innviði hvar sem þeir eru innan ESB/EES og hins vegar að tryggja þróun sjálfbærari og umhverfisvænni samgöngumáta.Markmið tengd kjarnanetinu, e. Core Network, miðast við 31. desember 2030 en markmið tengd heildarnetinu, e. Comprehensive, skulu uppfyllt 31. desember 2040. Þetta er nýtt lag sem ætlað er að brúa bilið milli hinna tveggja.Áherslurnar eru fyrst og fremst á samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda í samræmi við European Green deal, e. stefnu Evrópusambandsins í loftslagsmálum. Lögð er einnig áhersla á að samgöngumannvirki uppfylli meiri kröfur til gæða og öryggis. Auk þess er áherslan á tengingar við jaðarsvæði og milli ríkja sambandsins auk þess sem lögð er áhersla á að fækka flöskuhálsum og koma á nýjum tengingum þar sem þeirra er þörf.Ekki verður þörf á innleiðingu hér á landi þannig að lagastoðar er ekki þörf. Að öðrum kosti má leita til laga um EES-samninginn frá 1994.Áhrif hér á landi: Áhrif hér á landi munu fyrst og fremst verða þau að fara yfir kort yfir TEN-T samgöngumannvirki og uppfæra ef þurf þykir.Leitað var umsagnar Vegagerðarinnar og Samgöngustofu. Báðar stofnanir bentu á þær breytingar sem nú eru að verða á TEN-T áætlununum. Bæði er nú lögð mikil áhersla á tengingar við lönd utan sambandsins en einnig samtengingu við innviði sem notaðir eru til að flytja og afhenda orku. Með öðrum orðum innviði sem notaðir eru til að hlaða rafbifreiðar auk annarrar orku til aksturs sem ekki flokkast sem jarðefnaeldsneyti. Samtenging er við umhverfisráðuneytið sem hefur orkumálin, sem og þessa tilteknu innviði, á sínu sviði.Báðar stofnanir leggja áherslu á að skuldbindingar Íslands verði greindar og fjármunir tryggðir. Grundvallaratriði er að ganga úr skugga um að skuldbindingar fylgi eingöngu sérstakri ákvörðun verði hún tekin.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Ekki er þörf á lagastoð þar sem ekki verður um innleiðingu að ræða hér á landi.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Ekki verður um kostnað að ræða nema tekin sé sérstök ákvörðun um þátttöku í fjárhagshluta áætlunarinnar.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Umhverfisráðuneytið hefur með hleðsluinnviði að gera. Tilgreining á hagsmunaaðilum: Rekstraraðilar flugvalla, hafnir, veghaldararHorizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: NeiÞörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Á ekki við
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Ekki er þörf á lagastoð þar sem ekki verður um innleiðingu að ræða hér á landi.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R1679
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/1679, 28.6.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2021) 812
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 9, 12.2.2026, p. 36
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/202, 12.2.2026

Tillögur að breytingum (Proposed amendments)

COM(2025) 547
52025PC0547
Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council .../... establishing the Connecting Europe Facility for the period 2028-2034, amending Regulation (EU) 2024/1679 and repealing Regulation (EU) 2021/1153 Tillaga sem gæti verið EES-tæk

Breytt af (Modified by)

COM(2025) 547
52025PC0547
proposes to amend Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council .../... establishing the Connecting Europe Facility for the period 2028-2034, amending Regulation (EU) 2024/1679 and repealing Regulation (EU) 2021/1153 Tillaga sem gæti verið EES-tæk
32025D2198 based on
32025D1874 based on Commission Decision (EU) 2025/1874 of 12 September 2025 amending Decision (EU) 2024/2383 as regards the designation of European Coordinators for the Atlantic, Rhine - Danube and Baltic Sea - Black Sea - Aegean Sea European Transport Corridors and the laying down of the detailed arrangements for the performance of their mission and tasks Finna má upplýsingar um stöðu gerðar neðar
32025D1715 based on
32025D1332 based on

Breytir (Modifies)

COM(2021) 812
52021PC0812
adopts Regulation (EU) 2024/1679 of the European Parliament and of the Council of 13 June 2024 on Union guidelines for the development of the trans-European transport network, amending Regulations (EU) 2021/1153 and (EU) No 913/2010 and repealing Regulation (EU) No 1315/2013 Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32024R0751 implicitly repeals Commission Delegated Regulation (EU) 2024/751 of 11 December 2023 amending Regulation (EU) No 1315/2013 of the European Parliament and of the Council as regards the indicative maps of the trans-European transport network Finna má upplýsingar um stöðu gerðar neðar
32023R1176 implicitly repeals Commission Delegated Regulation (EU) 2023/1176 of 14 July 2022 amending Regulation (EU) No 1315/2013 of the European Parliament and of the Council as regards the indicative maps of the trans-European transport network Finna má upplýsingar um stöðu gerðar neðar
32021R1153 amends Regulation (EU) 2021/1153 of the European Parliament and of the Council of 7 July 2021 establishing the Connecting Europe Facility and repealing Regulations (EU) No 1316/2013 and (EU) No 283/2014 Finna má upplýsingar um stöðu gerðar neðar
32019R0254 implicitly repeals Commission Delegated Regulation (EU) 2019/254 of 9 November 2018 on the adaptation of Annex III to Regulation (EU) No 1315/2013 of the European Parliament and of the Council on Union guidelines for the development of the trans-European transport network Finna má upplýsingar um stöðu gerðar neðar

Samantekt EUR-Lex