32023R2854
Regulation (EU) 2023/2854 of the European Parliament and of the Council of 13 December 2023 on harmonised rules on fair access to and use of data and amending Regulation (EU) 2017/2394 and Directive (EU) 2020/1828 (Data Act)
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 11 Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið, 11.03 Gagnavernd |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/2854 frá 13. desember 2023 um samræmdar reglur um sanngjarnan aðgang að og notkun gagna og um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/2394 og tilskipun (ESB) 2020/1828 (óopinber þýðing). Reglugerðin er sett í kjölfar gagnastefnu framkvæmdastjórnar ESB frá 2020, en markmið hennar er að styrkja gagnahagkerfi ESB og efla samkeppnishæfni. Þessari reglugerð er sérstaklega ætlað að styrkja markað með gögn úr tengdum tækjum og tengdri þjónustu og auka þannig gagnadrifna nýsköpun. Í reglugerðinni er mælt fyrir um samræmdar reglur um: a) að gera notendum tengdra vara kleift að fá aðgang að gögnum úr tækjum sínum og þjónustum sem tengd eru tækjunum, b) ramma fyrir fyrirtæki sem eru skuldbundin til að deila gögnum, c) óréttmæta samningsskilmála um gagnavinnslu, d) heimild opinberra aðila til aðgangs að og notkunar gagna hjá einkaaðilum í tilteknum aðstæðum, einkum þegar neyðarástandi hefur verið lýst yfir, e) hvernig viðskiptavinir skýjaþjónustu geti skipt um þjónustuaðila, f) verndarráðstafanir gegn ólögmætum gagnaflutningi ópersónugreinanlegra gagna til þriðju ríkja, og g) þróun staðla um samvirkni gagna og gagnavinnslu. Reglugerðin breytir reglugerð (ESB) 2017/2394 um samvinnu milli landsyfirvalda sem bera ábyrgð á að framfylgja lögum um neytendavernd og um niðurfellingu reglugerðar (EB) nr. 2006/2004 og tilskipun (ESB) 2018/842, sem báðar falla undir ATRN. Reglugerðin tók gildi innan ESB 11. janúar 2024. Ákvæði hennar komu almennt til framkvæmda 12. september 2025.
Nánari efnisumfjöllun
Efni og gildissviðReglugerðin tekur til bæði margskonar upplýsinga en áhersla er á upplýsingar úr tækjum eða þjónustum, þ.e. tæki og þjónustu sem tilheyra hlutanetinu (e. Internet of Things).Í fyrsta kafla er fjallað um gildissvið og skilgreiningar.Í öðrum kafla er fjallað um miðlun gagna sem verða til við notkun tengdra vara (e. connected devices) og tengdra þjónusta (e. related services). Í 3. gr. er kveðið á um skyldu til að veita notanda tilteknar upplýsingar um tengda vöru og tengda þjónustu. Þar að auki er fjallað um skyldu til þess að hanna tengt tæki á þann hátt að auðvelt sé að nálgast upplýsingar úr tækinu fyrir notandann. Í 4. gr. er fjallað um réttindi og skyldur notenda og handhafa gagna varðandi aðgang, notkun og upplýsingar úr vöru og tengdri þjónustu. Notendur eiga rétt á að fá afhent gögn sem verða til við notkun þeirra á tengdri vöru og tengdri þjónustu sem þeir eiga eða leigja. Afhending gagna skal fara fram án óþarfa tafa og án kostnaðar fyrir notandann. Jafnframt eru settar reglur til að tryggja trúnað um viðskiptaleyndarmál og bann við því að nota gögnin á hátt sem er í beinni samkeppni við þá vöru eða þjónustu sem gögnin koma frá. Notandi getur lagt fram kvörtun hjá lögbæru yfirvaldi verði handahafi gagna ekki við beiðni hans.Samkvæmt 5. gr. geta notendur einnig krafist þess að handhafar gagna miðli gögnum beint til þriðja aðila. Fyrirtæki sem skilgreind eru sem hliðverðir (e. gatekeepers) samkvæmt reglugerð (ESB) 2022/1925 (Digital Markets Act) mega ekki taka við gögnum samkvæmt ákvæðinu. Þriðju aðilar mega eingöngu nýta gögnin á þann hátt sem samið hefur verið um við notanda og í samræmi við löggjöf ESB og aðildarríkja samkvæmt 6. gr. Örfyrirtæki og lítil fyrirtæki eru að meginstefnu undanþegin skyldu til að miðla gögnum og sama gildir um fyrirtæki sem talist hafa meðalstór í skemur en ár og um vörur meðalstórra fyrirtækja sem hafa verið á markaði í skemur en ár, sbr. 7. gr. Þriðji kafli fjallar um skyldur fyrirtækja, sem handhafa gagna, til þess að gera gögn aðgengileg öðrum fyrirtækjum samkvæmt 5. gr. reglugerðarinnar, annarri löggjöf ESB eða landsrétti. Kaflinn tekur því ekki eingöngu til gagna úr tengdum vörum eða tengdum þjónustum, heldur einnig annarra gagna. Samningsskilmálar um miðlun gagna skulu vera sanngjarnir og án mismununar, sbr. 8. gr. Heimilt er að semja um hæfilega þóknun sem getur falið í sér kostnaðarverð miðlunar gagna, sem og tæknilegan kostnað við flutning og geymslu gagna, sbr. 9. gr. Sé viðtakandi gagnanna lítið eða meðalstórt fyrirtæki eða óhagnaðardrifin rannsóknarstofnun, má þóknunin ekki vera hærri en kostnaðarverð. Í 10. gr. er fjallað um lausn deilumála. Aðilar skulu hafa aðgang að nefnd um lausn ágreiningsmála sem hefur verið vottuð af aðildarríki þar sem hún er staðsett. Í 11. gr. er fjallað um úrræði sem handhafi gagna getur nýtt til að koma í veg fyrir að aðili komist ólöglega yfir gögn og til að bregðast við aðstæðum þar sem aðili hefur ólöglega komist yfir gögn.Fjórði kafli fjallar um óréttmæta samningsskilmála um aðgang að gögnum á milli fyrirtækja. Skilmálar eru ekki bindandi ef þeir hafa verið einhliða ákveðnir af öðrum aðilanum, hinn aðilinn hefur ekki raunhæf áhrif á efni skilmálanna og þeir eru ósanngjarnir. Kaflinn tekur til allra gagna sem eru í vörslu einkarekinna fyrirtæki og eru gerð aðgengileg og notuð á grundvelli samnings.Í fimmta kafla er fjallað um aðgang opinberra stjórnvalda og stofnana ESB að gögnum einkaaðila. Samkvæmt 14. gr. geta opinber stjórnvöld, framkvæmdastjórn ESB, Seðlabanki Evrópu og stofnanir ESB krafist gagna frá lögaðilum til að annast lögbundin verkefni við sérstakar aðstæður, sem skilgreindar eru í 15. gr. Um er að ræða tímabundnar aðstæður sem taka eingöngu til:Þegar gagna er þörf til að bregðast við neyðarástandi, og ekki er unnt að afla gagna með öðrum hætti.Þegar ekki erum neyðarástand að ræða, en þegar stjórnvald getur ekki sinnt skýru lögbundnu hlutverki sínu við að vernda almannahagsmuni án gagnanna, s.s. til að koma í veg fyrir neyðarástand. Heimildin tekur eingöngu til ópersónugreinanlegra gagna.Beiðnir hins opinbera skulu vera skýrar, gagnsæjar og í réttu hlutfalli við markmið, sbr. 17. gr. Vernda skal viðskiptaleyndarmál og eyða gögnum að lokinni notkun. Örfyrirtæki og lítil fyrirtæki geta krafist hæfilegs endurgjalds fyrir að veita aðgang að gögnum og fyrirtæki geta krafist hæfilegs endurgjalds fyrir að veita aðgang að gögnum, nema þegar neyðarástandi hefur verið lýst yfir, sbr. 20. gr.Opinberum stjórnvöldum, framkvæmdastjórn ESB, Seðlabanki Evrópu og stofnanir ESB er heimilt, að uppfylltum nánar tilgreindum skilyrðum, að miðla gögnum til þriðja aðila í tengslum við rannsóknir, greiningar og tölfræði hagstofa, sbr. 21. gr.Í sjötta kafla eru reglur varðandi skipti á gagnavinnsluþjónustu, t.d. skýjaþjónustu. Veitendur þjónustunnar skulu tryggja að notendur geti á einfaldan og skjótan hátt skipt yfir til annars veitanda eða nýtt sér fleiri en eina þjónustu samtímis. Frá 12. janúar 2027 er þjónustuveitendum óheimilt að innheimta gjöld í tengslum við skipti á gagnavinnsluþjónustu. Sjöundi kafli fjallar um ólögmætan aðgang erlendra stjórnvalda og miðlun á ópersónugreinanlegum gögnum. Veitendur gagnavinnsluþjónustu skulu grípa til viðeigandi ráðstafana til að koma í veg fyrir aðgang þriðja ríkis sem er í andstöðu við löggjöf ESB eða aðildarríkis. Liggi fyrir ákvörðun dómstóls eða stjórnvalds í þriðja ríki sem krefst aðgangs að eða miðlun gagna, skal slík ákvörðun að meginstefnu aðeins virt ef til staðar er alþjóðasamningur milli þriðja ríkisins og ESB eða viðkomandi aðildarríkis. Settar eru nánari reglur um meðferð gagnabeiðna þegar slíkir samningar liggja ekki fyrir, sbr. 32. gr. Í áttunda kafla er fjallað um samvirkni (e. interoperability) gagna og miðlunar þeirra. Þátttakendur í gagnasvæðum (e. data spaces) skulu uppfylla ýmis skilyrði til að auðvelda flæði gagna innan og milli gagnasvæða. Jafnframt eru settar kröfur um efni evrópskra staðla um samvirkni gagnavinnsluþjónusta. Framkvæmdastjórn ESB getur óskað eftir því að evrópskar staðlastofnanir þrói samræmda staðla um samhæfni og kröfur til snjallsamninga. Leiði slíkar beiðnir ekki til samræmdra staðla, eða reynist staðlarnir ófullnægjandi, getur framkvæmdastjórnin sett sameiginlegar tæknilegar kröfur með framkvæmdargerðum.Níundi kafli fjallar um framkvæmd og eftirlit. Aðildarríki skulu tilnefna eitt eða fleiri lögbær yfirvöld til að framfylgja reglugerðinni. Einstaklingum og fyrirtækjum er veittur réttur til að leggja fram kvörtun til eftirlitsstjórnvalda telji þau réttindi sín brotin. Aðildarríkjum er heimilt að koma á fót nefnd um lausn ágreiningsmála skv. 2., 3., 4. og 6. kafla.Evrópska gagnanýsköpunarráðið (EDIB) skal stuðla að samstarfi milli eftirlitsstjórnvalda aðildarríkjanna og veita framkvæmdastjórn ESB ráðgjöf.Aðildarrík skulu setja reglur um viðurlög vegna brota við reglugerðinni. Samkvæmt tíunda kafla nær sui generis vernd 7. gr. tilskipunar 96/9/EB um lögverndun gagnagrunna ekki til gagna úr tengdum vörum og þjónustum, þ.e. vernd fyrir útdrátti eða endurnýtingu á öllum eða umtalsverðum hluta gagnagrunns, þegar lagt hefur verið út í umtalsverða fjárfestingu til að afla, sannprófa eða setja fram efni gagnagrunnsins.Ellefti kafli hefur að geyma ákvæði um heimildir framkvæmdastjórnarinnar til að setja tilteknar framseldar gerðir og gildistöku. Reglugerðin tók gildi 11. janúar 2024 innan ESB. Ákvæði hennar komu almennt til framkvæmda 12. september 2025, nema:Skylda skv. 1. mgr. 3. gr. um að tengdar vörur og þjónustur skuli vera hannaðar, framleiddar og veittar á þann hátt að vörugögn og tengd þjónustugögn séu sjálfgefið aðgengileg notendum á ákveðinn hátt tekur til vöru og þjónustu sem er sett á markað eftir 12. september 2026.Fjórði kafli tekur til samninga sem eru gerðir eftir 12. september 2025, og frá 12. september 2027 tekur hann til samninga sem eru gerðir fyrir, eða á, 12. september 2025, ef þeir eru ótímabundnir eða munu gilda til a.m.k. 11. janúar 2034. EES-tæki, lagastoð, innleiðing og kostnaðurReglugerðin er sett með stoð í 114. gr. Sáttmálans um starfshætti ESB (TFEU). Ákvæði 114. gr. snúa að innri markaðnum og á því hún undir gildissvið EES-samningsins.Lagabreytingu þarf til að innleiða reglugerðina í landslög, annað hvort með því að setja sérlög um innleiðingu gerðarinnar eða innleiða hana í gildandi lög. Það kemur til skoðunar að innleiða þessa reglugerð og reglugerð um stjórnskipulag gagna í lög um endurnot opinberra upplýsinga, nr. 45/2018. Reglugerðin kemur inn á neytendarétt með ákvæðum um óréttmæta samningsskilmála og skoða þarf tengsl við innleiðingu tilskipunar (ESB) 2020/1828 við lögfestingu í íslenskan rétt.Innleiðing reglugerðarinnar mun hafa í för með sér kostnað fyrir þær stofnanir sem hafa skyldum að gegna samkvæmt lögunum. Opinberar stofnanir þurfa að koma á fót ferlum til að nálgast og nýta gögn sem eru í eigu einkaaðila, sérstaklega við neyðaraðstæður eins og þegar um er að ræða almannahættu. Ekki er búið að taka afstöðu til hvaða stofnanir taka við hlutverkum samkvæmt gerðinni. Reglugerðin gæti leitt til aukins kostnaðar fyrir einkaaðila vegna þeirra skyldna sem lögð eru á þau. Reglugerðin ætti ekki að leiða til aukins kostnaðar fyrir örfyrirtæki. Til lengri tíma litið gæti innleiðing reglugerðarinnar haft jákvæð efnahagsleg áhrif með því að styrkja vistkerfi nýsköpunar í Evrópu. Gerðinni er sérstaklega ætlað að styrkja stöðu lítilla og meðalstórra fyrirtækja, með því að veita þeim aðgang að gögnum til þess að þróa nýjar vörur og þjónustur. Gerðinni er einnig ætlað að styrkja getu hins opinbera til þess að bregðast við neyðarástandi.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Á ekki við |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Tæknilegri aðlögun, Efnislegri aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Lagasetning/lagabreyting |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagabreytingu þarf til að innleiða reglugerðina í landslög, annað hvort með því að setja sérlög um innleiðingu gerðarinnar eða innleiða hana í gildandi lög. Það kemur til skoðunar að innleiða þessa reglugerð og reglugerð um stjórnskipulag gagna í lög um endurnot opinberra upplýsinga, nr. 45/2018. Reglugerðin kemur inn á neytendarétt með ákvæðum um óréttmæta samningsskilmála og skoða þarf tengsl við innleiðingu tilskipunar (ESB) 2020/1828 við lögfestingu í íslenskan rétt. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
|---|---|
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands |
Innleiðing reglugerðarinnar mun hafa í för með sér kostnað fyrir þær stofnanir sem hafa skyldum að gegna samkvæmt lögunum. Opinberar stofnanir þurfa að koma á fót ferlum til að nálgast og nýta gögn sem eru í eigu einkaaðila, sérstaklega við neyðaraðstæður eins og þegar um er að ræða almannahættu. Ekki er búið að taka afstöðu til hvaða stofnanir taka við hlutverkum samkvæmt gerðinni. Reglugerðin gæti leitt til aukins kostnaðar fyrir einkaaðila vegna þeirra skyldna sem lögð eru á þau. Reglugerðin ætti ekki að leiða til aukins kostnaðar fyrir örfyrirtæki. Til lengri tíma litið gæti innleiðing reglugerðarinnar haft jákvæð efnahagsleg áhrif með því að styrkja vistkerfi nýsköpunar í Evrópu. Gerðinni er sérstaklega ætlað að styrkja stöðu lítilla og meðalstórra fyrirtækja, með því að veita þeim aðgang að gögnum til þess að þróa nýjar vörur og þjónustur. Gerðinni er einnig ætlað að styrkja getu hins opinbera til þess að bregðast við neyðarástandi. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti |
|---|
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32023R2854 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2023/2854, 22.12.2023 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2022) 68 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Tillögur að breytingum (Proposed amendments)
| COM(2025) 837 52025PC0837 |
Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council amending Regulations (EU) 2016/679, (EU) 2018/1724, (EU) 2018/1725, (EU) 2023/2854 and Directives 2002/58/EC, (EU) 2022/2555 and (EU) 2022/2557 as regards the simplification of the digital legislative framework, and repealing Regulations (EU) 2018/1807, (EU) 2019/1150, (EU) 2022/868, and Directive (EU) 2019/1024 (Digital Omnibus) | Tillaga sem gæti verið EES-tæk |
Breytt af (Modified by)
| XC(2025) 5026 52025XC05026 |
based on | ||
| COM(2025) 837 52025PC0837 |
proposes to amend | Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council amending Regulations (EU) 2016/679, (EU) 2018/1724, (EU) 2018/1725, (EU) 2023/2854 and Directives 2002/58/EC, (EU) 2022/2555 and (EU) 2022/2557 as regards the simplification of the digital legislative framework, and repealing Regulations (EU) 2018/1807, (EU) 2019/1150, (EU) 2022/868, and Directive (EU) 2019/1024 (Digital Omnibus) | Tillaga sem gæti verið EES-tæk |
Breytir (Modifies)
| COM(2022) 068 52022PC0068 |
adopts | ||
| 32020L1828 | amends | Directive (EU) 2020/1828 of the European Parliament and of the Council of 25 November 2020 on representative actions for the protection of the collective interests of consumers and repealing Directive 2009/22/EC | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
| 32017R2394 | amends | Regulation (EU) 2017/2394 of the European Parliament and of the Council of 12 December 2017 on cooperation between national authorities responsible for the enforcement of consumer protection laws and repealing Regulation (EC) No 2006/2004 | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
