Hreinsun fráveituvatns frá þéttbýli – fráveitutilskipun. - 32024L3019
Directive (EU) 2024/3019 of the European Parliament and of the Council of 27 November 2024 concerning urban wastewater treatment (recast)
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.02 Vatn |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Tilskipunin lítur að hreinsun á skólpi og fellir brott eldri tilskipun 91/271/EB sem varðar sama málefni. Grunnur tilskipunarinnar sá sami en verið er að bregðast við ýmsum nýjum áskorunum sem núverandi tilskipun hefur ekki náð til.
Helstu breytingar tilskipunarinnar fela í sér að öll þéttbýli sem losa meira en 1.000 persónueiningar (pe.) skuli hreinsa skólp með tveggja þrepa hreinsun. Undanþágur frá tveggja þrepa hreinsun og viðeigandi hreinsun í sjó falla brott. Kröfur eru einnig auknar á stórar hreinsistöðvar sem losa meira en 150.000 pe. sem eiga að vera með þriðja þreps hreinsun (fosfór og köfnunarefni) og fjórða þreps hreinsun (lyfjaleifar og örplast). Þá eiga þéttbýli sem losa meira en 100.000 pe. að gera samþætta áætlun um hreinsun skólps sem losað er á yfirfalli (e. storm water overflow) og ofanvatn. Einnig koma inn ný ákvæði um framleiðendaábyrgð, orkuhlutleysi og hert aðhald iðnaðar sem losar inn á fráveitukerfi.
Helstu breytingar tilskipunarinnar fela í sér að öll þéttbýli sem losa meira en 1.000 persónueiningar (pe.) skuli hreinsa skólp með tveggja þrepa hreinsun. Undanþágur frá tveggja þrepa hreinsun og viðeigandi hreinsun í sjó falla brott. Kröfur eru einnig auknar á stórar hreinsistöðvar sem losa meira en 150.000 pe. sem eiga að vera með þriðja þreps hreinsun (fosfór og köfnunarefni) og fjórða þreps hreinsun (lyfjaleifar og örplast). Þá eiga þéttbýli sem losa meira en 100.000 pe. að gera samþætta áætlun um hreinsun skólps sem losað er á yfirfalli (e. storm water overflow) og ofanvatn. Einnig koma inn ný ákvæði um framleiðendaábyrgð, orkuhlutleysi og hert aðhald iðnaðar sem losar inn á fráveitukerfi.
Nánari efnisumfjöllun
Greining 2025Umfjöllunarefni tilskipunarinnar er hreinsun á skólpi og felur hún m.a. í sér brottfall eldri tilskipunar 91/271/EBE, sem innleidd var hér á landi með reglugerð nr. 798/1999 um fráveitur og skólp.Úttekt á árangri eldri tilskipunar í Evrópu sýndi að með henni hefði náðst mikill árangur og ástand vatns batnað mikið á síðustu árum. Tilskipunin náði til 22.000 evrópskra borga með alls 520 milljónum íbúa og er um 92% alls skólpvatns sem tilskipunin nær til talið meðhöndlað með fullnægjandi hætti. Tilskipunin er þó orðin 30 ára gömul og skólplosun enn einn helsti álagsþáttur á vatn, m.a. vegna eftirfarandi þátta sem ekki er tekið á í eldri skólptilskipun:· Álags frá minni bæjum, dreifðum byggðum og mengunar vegna skólps sem losað er á yfirfalli og frá ofanvatni, auk nýrra mengunarvalda (s.s. lyfjaleifa, þrávirkra efna og örplasts).· Þörf á nýjum umhverfismörkum sem taka mið af tækniframförum.· Samræmingu krafna við the European Green Deal.· Frammistöðu og gagnsæi rekstraraðila.· Skorts á að mengunarbótareglu sé beitt (e. polluters pay principle).· Þörf á bættu eftirlit og stafrænum gagnaskilum.Tilskipunin er hluti af heildstæðri stefnu og aðgerðapakka Evrópusambandsins (EU Green Deal), auk fjölmargra annarra stefna sem miða að því að draga úr mengun í umhverfi. Þar á meðal má nefna:· Aðgerðaáætlun um núllmengun (e. Zero Pollution Action Plan).· Vatnatilskipun 2000/60/EB (e. Water Framework Directive).· Tilskipun um umhverfisgæðakröfur í vatni 2008/105/EB (e. Environmental Quality Standards).· Tilskipun um vernd grunnvatns 2006/118/EB.· Tilskipun um losun frá iðnaði (ESB) 2010/75 (e. Industrial Emissions Directive).· Reglugerð um útstreymisbókhald 2006/166/EB (e. E-PRTR Regulation)· Áætlun um hringrásarhagkerfi varðandi notkun á seyru og endurnýtingu vatns.· Stefnu um efnamál (e. Chemical Strategy).· Stefnu um lyfjaleifar í umhverfinu (e. Pharmaceuticals Strategy).· Stefnu um líffræðilegan fjölbreytileika (e. Biodiversity Strategy).· Reglugerð um endurheimt náttúru (ESB) 2024/1991 (e. Nature Restoration Regulation).· Áherslur Evrópusambandsins við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.Tilskipunin felur í sér ýmsar breytingar á núverandi regluverki fráveitu, m.a. til að bregðast við framangreindum áskorunum.Markmið tilskipunarinnar eru víðtækari en áður og lúta þau ekki eingöngu að neikvæðum áhrifum á umhverfi heldur er tilgangurinn einnig að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá hreinsistöðvum, auka aðgengi að hreinlætisaðstöðu og stuðla að reglulegri vöktun á mæliþáttum sem snúa að heilbrigði fólks og verndun umhverfis. Þá er tilskipuninni ætlað að stuðla að verndun lýðheilsu í samræmi við One Health nálgunina (aðgerðir sem beinast gegn sýklalyfjaónæmi í mönnum, dýrum og umhverfi), samlegð með aðlögun loftslagsbreytinga og aðgerðum til að endurheimta vistkerfi í þéttbýli, tryggja upplýsingar um fráveitu og hreinsun fráveituvatns og auka stafvæðingu. Rétt er svo að vekja sérstaka athygli á að með tilskipuninni falla brott undanþágur frá tveggja þrepa hreinsun og viðeigandi hreinsun í sjó.Helstu breytingar tilskipunarinnar lúta að eftirfarandi þáttum:Tveggja þrepa hreinsun: Öll þéttbýli sem losa meira en 1.000 pe. skulu hreinsa skólp með tveggja þrepa hreinsun, sama hvort er í ferskvatn eða sjó. Hreinsunin á þó ekki við um þéttbýli með 1.000-2.000 pe. fyrr en 31. desember 2035.Þriggja þrepa hreinsun: Hreinsistöðvar sem losa meira en 150.000 pe. skulu hreinsa köfnunarefni og fosfór (vera með þriggja þrepa hreinsun). Einnig eiga hreinsistöðvar að vera með þriggja þrepa hreinsun ef í þeim fer fram meðhöndlun á yfir 10.000 pe. af skólpi og það losað á svæði sem skilgreind hafa verið viðkvæm fyrir losun á næringarefnum.Fjögurra þrepa hreinsun: Hreinsistöðvar sem losa meira en 150.000 pe. skulu viðhafa fjögurra þrepa hreinsun (hreinsun á lyfjaleifum, örplasti og öðrum mengunarefnum). Einnig eiga hreinsistöðvar að vera með fjögurra þrepa hreinsun ef þær meðhöndla yfir 10.000 pe. af skólpi og losa það á svæði þar sem styrkur mengunarefna eða uppsöfnun frá hreinsistöðvum felur í sér hættu fyrir umhverfi og heilsu fólks.Samþættar áætlanir um meðhöndlun frárennslis í þéttbýli: Þéttbýli sem losa meira en 100.000 pe. eiga að gera samþætta áætlun fyrir frárennslissvæði (e. drainage area) þeirra í tengslum við hreinsun skólps sem losað er á yfirfalli (e. storm water overflow) og ofanvatn (regnvatn m.a. af götum). Endurskoða á slíkar áætlanir á sex ára fresti. Árið 2028, þegar næstu vatnaáætlun er skilað, skulu aðildarríki einnig skila upplýsingum um þéttbýli sem losa milli 10.000-100.000 pe. þar sem t.d. skólp á yfirfalli og ofanvatn getur valdið því að vatnshlot uppfyllir ekki þau umhverfismarkmið sem sett hefur verið fyrir það.Framleiðendaábyrgð: Aðildarríkin eiga að tryggja að framleiðendur sem setja snyrtivörur og lyf á markað beri framleiðendaábyrgð. Þá skulu framleiðendur greiða fyrir a.m.k 80% af kostnaði við fjárfestingu og rekstur á fjögurra þrepa hreinsistöð til að hreinsa mengunarefni sem koma frá þeim. Einnig kveður tilskipunin á um að framleiðendur sem bera þá ábyrgð sem um ræðir greiði fyrir samantekt á gögnum um lyf og snyrtivörur sem settar eru á markað og annan kostnað sem hlýst af framleiðendaábyrgð.Orkuúttekt: Aðildarríkin skulu tryggja framkvæmd orkuúttektar (e. energy audits) á fjögurra ára fresti með tillögum að hagkvæmum aðgerðum til að draga úr orkunotkun og auka notkun og framleiðslu á endurnýjanlegri orku. Fyrir lok árs 2045 skal heildarmagn árlegrar endurnýjanlegrar orku vera til jafns við orkunotkun hreinsistöðva sem losa meira en 10.000 pe.Losun fráveituvatns frá iðnaði: Tryggja á að losun iðnaðarvatns inn í fráveitukerfi og hreinsistöðvar sé háð fyrirfram ákveðnum reglum (e. prior regulation) og/eða leyfi frá lögbæru yfirvaldi. Leyfin á að endurskoða að minnsta kosti á 10 ára fresti. Einnig skal tryggja vöktun á mengunarefnum í fráveituvatni og seyru.Vöktun á skólpi: Setja á upp samræmt kerfi milli lögbærra aðila sem bera ábyrgð á lýðheilsu (e. public health) og ábyrgðaraðila fráveitu með tilliti til vöktunar, s.s. á vírusum, inflúensu og ónæmum bakteríum. Þéttbýli með losun yfir 100.000 pe. skuli m.a. vakta ákveðna heilsutengda mæliþætti í skólpi, s.s. SARS-CoV-2 og sýklalyfjaónæmar bakteríur.Áhættumat og áhættustjórnun: Gera skal greiningu og meta áhættu af völdum losunar skólps frá þéttbýli á umhverfi og heilsu fólks m.t.t. neysluvatns, vatnsgæða baðstaða, vatns þar sem fiskeldi fer fram, ástands grunnvatns sem skólp er losað í og ástands sjávar og yfirborðsvatns.Aðgengi að hreinlætisaðstöðu: Gera skal allar nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja aðgang að hreinlætisaðstöðu fyrir alla, sérstaklega fyrir viðkvæma og jaðarsetta hópa. Þá skulu ríki m.a. stuðla að því að í þéttbýlum með yfir 10.000 pe. sé aðgengi að hreinlætisaðstöðu á opinberum svæðum, sér í lagi fyrir viðkvæma hópa s.s. konur.Upplýsingar um eftirlit með innleiðingu: Setja á upp gagnasafn með upplýsingum um stöðu fráveitumála, magn skólps, hreinsun á skólpi, stöðu innleiðingar tilskipunarinnar, fjölda sýna sem uppfylla ekki ákvæði um hreinsun, aðgerðir til að tryggja aðgengi að hreinlætisaðstöðu o.fl.Framkvæmdaráætlun: Gera skal framkvæmdaáætlun þar sem eftirfarandi kemur fram:· Mat á stöðu innleiðingar á tilskipun.· Greining og áætlun um fjárfestingu í skólphreinsun fyrir hvert þéttbýli.· Mat á framlagi fyrirtækja með framleiðendaábyrgð.· Upplýsingar um forgangsröðun framkvæmda.· Greining á opinberri fjármögnun.· Upplýsingar um þéttbýli sem falla undir tilskipunina. Aðgangur að dómstólum: Kveðið er á um að aðildarríki Evrópusambandsins (ESB) skuli tryggja almenningi aðgengi að dómstólum vegna ákvarðana, athafna eða athafnaleysis í tengslum við tilskipunina. Sérstaklega er kveðið á um skaðabótaskyldu hins opinbera vegna heilsutjóns og í því sambandi m.a. tekið fram að tryggja beri frjálsum félagasamtökum möguleika á að fara með fyrirsvar fyrir tjónþola.Refsingar: Kveðið er á um að aðildarríki Evrópusambandsins skuli tryggja að brot sem leiði af tilskipunin skuli sæta refsingum. Þá er sérstaklega tekið fram til hvaða atriða beri að hafa hliðsjón af við ákvörðun refsinga og má í því sambandi nefna atriði eins og hvernig háttsemin hafði áhrif á íbúa eða umhverfi og hver fjárhagsstaða sakbornings er. Greining 2023Útdráttur - Framkvæmdastjórn Evrópu og Evrópuþing hefur lagt fram tillögu að nýrri tilskipun um hreinsun á skólpi (ESB/2022/541). Eldri tilskipun ESB/1991/271 fellur brott en hún var innleidd á Íslandi með reglugerð nr. 798/1999 um fráveitur og skólp. Markmið nýju tilskipunarinnar er nú víðtækara en áður. Auk hreinsunar á skólpi til að draga úr neikvæðum áhrifum á umhverfi þá er markmið tilskipunarinnar að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá hreinsistöðvum,auka aðgengi að hreinlætisaðstöðu, auk þess að stuðla að auknu gagnsæi og reglulegri vöktun á mæliþáttum sem snúa að heilbrigði fólks (e. public health parameters). Í grundvallaratriðum er grunnur tilskipunarinnar sá sami en verið er að bregðast við ýmsum nýjum áskorunum sem núverandi tilskipun hefur ekki náð til s.s. losun á öðrum mengandi efnum en lífrænu efni og næringarefnum (t.d. örplasti, forgangsefnum og lyfjaleifum), hreinsun á ofanvatni og hreinsun frá minni þéttbýlum en 2.000 pe.Nánari efnisumfjöllun - Úttekt á árangri núgildandi tilskipunar sýndi að hún hefur borið mikinn árangur og með aukinni hreinsun hefur ástand vatns batnað mikið á síðustu árum. Tilskipunin nær til 22.000 evrópskra borga með alls 520 milljón íbúa. Fram kemur að ein helsta ástæðan fyrir góðum árangri er að ákvæði hennar eru einföld sem gerir innleiðingu og eftirfylgni auðveldari. Um 92% alls skólpvatns sem tilskipunin nær til er talið meðhöndlað með fullnægjandi hætti. Tilskipunin er þó orðin 30 ára gömul og skólplosun er áfram einn helsti álagsþáttur á vatn meðal annars vegna nýrra áskorana sem takast þarf á við. Úttektin greindi eftirfarandi helstu áskoranir:Álag frá minni bæjum, dreifðar byggðir, mengun frá ofanvatni. Umhverfismörk eru úrelt miðað við tækniframfarir og nýjir mengunarvaldar hafa bæst við.Samræma þarf kröfur tilskipunar við the European Green Deal.Mikill munur er á frammistöðu og gagnsæi rekstraraðila. Skortur á að mengunarbótareglu sé beitt (polluters pay principle). Bæta þyrfti eftirlit og gagnaskil með stafrænum hætti.Ný tilskipun um hreinsun skólps er hluti af stærri heildarstefnumörkun og aðgerðapakka Evrópusambandsins (EU Green Deal) og fjölmörgum öðrum tengdum stefnumörkunum og tilskipunum sem miða að því að draga úr mengun í umhverfi. Þar á meðal má nefna: aðgerðaáætlun um núllmengun (e. Zero Pollution action plan), samþættingu á kröfum vatnatilskipunarinnar (e. Water Framework directive) tilskipun um umhverfisgæðakröfur í vatni (e. Environmental quality standards) og tilskipun um grunnvatn. Hún tengist einnig endurskoðun á tilskipun um losun frá iðnaði (e. Industrial Emissions Directive) og útstreymisbókhald (e. E-PRTR Regulation) hvað varðar mengun frá iðnaði svo og áætlun um hringrásarhagkerfi varðandi notkun á seyru og endurnýtingu vatns. Einnig aðstoðar ný tilskipun við að uppfylla markmið Stefnu um efnamál (e. Chemical Strategy) og Stefna um lyfjaleifar í umhverfinu (e. Pharmaceuticals Strategy) með því að draga úr losun mengandi efna í vatn. Þá tengist ný tilskipun einnig stefnu um líffræðilegan fjölbreytileika (e. Biodiversity Strategy) þar sem mengun í vatni hefur bein áhrif á lífríki og lög um endurheimt náttúru (e. Nature Restoration Law) sem leggur áherslu á grænni borgir og tengist innleiðingu á náttúrumiðuðum lausnum við hreinsun á t.d. ofanvatni og skólpi. Að síðustu ber að nefna áherslur Evrópusambandsins við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda en tilskipunin setur fram ákvæði um að hreinsistöðvar þurfi að vera sjálfbærar um orku þ.e. framleiða eigin orku. Helstu breytingar í nýrri tilskipun eru eftirfarandi:4. gr. - söfnun skólps og hreinsun með öðrum leiðum en safnkerfi er áfram leyfð með þeirri breytingu að hafa skal eftirlit með þessum lausnum og að færa þarf rök fyrir því ef slíkar lausnir eru notaðar til að hreinsa meira en 2% skólps í þéttbýlum yfir 2.000 pe.5. gr. - Nýtt ákvæði fyrir þéttbýli sem losa meira en 100.000 pe. um að gera samþætta áætlun um hreinsun skólps, ofanvatns og hreinsun skólps sem losað er á yfirfalli (e. storm water overflow) með áherslu á meðhöndlun ofanvatns. Aðildarríki skulu sjá til þess að slíkar áætlanir séu gerðar. Einnig skulu aðildarríki gera lista yfir þéttbýli sem losa milli 10.000- 100.000 pe. þar sem vandamál vegna losunar á ofanvatni og skólpi sem losað er á yfirfalli eru líkleg til að verða t.d. vegna loftslagsbreytinga og síðar skal gera samþætta áætlun fyrir þessi minni þéttbýli. Áætlanir þessar skulu vera aðgengilegar og hægt að skila til Evrópusambandsins ef þarf. Þessi krafa fellur vel að skipulagsáætlunum sveitarfélaga en það er í hag þeirra að aðskilja regn- og skólplagnir til að draga úr kostnaði við hreinsun og beita hagkvæmari lausnum við hreinsun á ofanvatni. Hér þurfa þéttbýli í skipulagsáætlunum einnig að gera ráð fyrir loftslagsbreytingum og aukinni úrkomu ákefð sem getur valdið því að hreinsistöðvar/dælustöðvar anna ekki magni skólps og losa óhreinsað skólp á yfirfalli. Umfangið á þessu ákvæði er ekki ljóst þar sem ekki eru til gögn um hversu vel þéttbýli geta tekist á við hreinsun á ofanvatni og að koma í veg fyrir losun óhreinsaðs skólps á yfirfalli.6. gr. - ákvæði í tilskipun breytt þannig að hún nái einnig til þéttbýla sem losa 1.000 pe. í stað 2.000 pe. áður. Reglurnar eru einfaldaðar þannig að öll þéttbýli sem losa yfir 1.000 pe. eiga að vera með tveggja þrepa hreinsun og eins þreps hreinsun verður ekki leyfð. Samkvæmt lauslegri skoðun á fjölda þéttbýla á Hagstofu Íslands með íbúafjölda milli 1.000 – 2.000 manns, eru það líklega aðeins þrjú þéttbýli sem bætast við þau 28 sem þegar losa yfir 2.000 pe. í dag. Sex þeirra eiga samkvæmt núgildandi reglum að vera með tveggja þrepa hreinsun. Fimmtán þéttbýli eiga að fara úr viðeigandi hreinsun í tveggja þrepa og 10 úr eins þreps hreinsun í tveggja þrepa.7. gr. - Breytt ákvæði fyrir ítarlega hreinsun (e. tertiary treatment) varðandi hreinsun á köfnunarefni og fosfór sem áður átti einungis við viðkvæm svæði. Nú er gerð krafa um slíka hreinsun þar sem losun skólps er yfir 100.000 pe. og á svæðum sem eru viðkvæm fyrir mögulegri næringarefnaauðgun og losun er á milli 10.000 og 100.000. Uppfæra skal lista yfir viðkvæm svæði. Hér væri eins og er aðeins um höfuðborgarsvæðið að ræða (án Hafnarfjarðar). Engin þéttbýli sem losa milli 10.000- 100.000 pe. losa skólp á viðkvæmum svæðum.8. gr. - Nýtt ákvæði um fjögurra þrepa hreinsun (e. quaternary treatment) á skólpi til að draga úr losun ýmissa mengandi efna (micro-pollutants) eins og lyfjaleifa. Þéttbýli yfir 100.000 pe. skulu koma slíkri hreinsun á fyrir árið 2035 og fyrir lok árs 2040 í þéttbýlum milli 10.000 og 100.000 pe. þar sem losun á mengunarefnum getur skaðað umhverfi og heilsu fólks. Aðildarríki þurfa að skilgreina hvaða svæði þetta eru. Hér er fyrst og fremst um höfuðborgarsvæðið að ræða og mögulega önnur stærri þéttbýli s.s. Akureyri og Hafnarfjörð eða þar sem líklegt getur talist að losun sé á mengandi efnum.9. gr. - Nýtt ákvæði um framleiðendaábyrgð sem skyldar framleiðendur og innflytjendur snyrtivöru- og lyfjaframleiðendur til að taka þátt í kostnaði við hreinsun á mengunarefnum sem þeir losa frá sér og geta haft neikvæð áhrif á umhverfi og heilsu fólks. Kostnaður verður í hlutfalli við magn og mengunarstyrk efnanna sem sett eru á markað. Reglurnar gilda þó ekki fyrir framleiðendur og innflyjendur sem setja minna en 2 tonn af vörunni á markað. Ekki er ljóst hvaða áhrif þessi grein mun hafa á Íslandi en líklegt er að útfæra þurfi stjórntæki til að sjá um innheimtu slíkra gjalda.11. gr. - Nýtt ákvæði um orkuhlutleysi (e. energy neutrality) hreinsistöðva en heildarorkunotkun hreinsistöðva yfir 10.000 pe. á að vera jafn mikil og heildar orkuframleiðsla þeirra þ.e. að þær eiga að framleiða orku með vistvænum leiðum sem dugar orkunotkun þeirra. Áhrif á Íslandi liggja ekki fyrir þar sem hreinsistöðvar nota líklega allar græna orku.14. gr. – Breyting á grein sem áður var grein 11 er að áður en rekstraraðilar í iðnaði tengja sig við skólpkerfi sveitarfélaga skulu eftirlitsaðilar fá leyfi frá rekstraraðila fráveitu. Að auki skal rekstraraðili hreinsistöðvar hafa eftirlit í inn- og útstreymi hreinsistöðvar til að geta rekið mögulega mengu. Slíkt gæti valdið því að leyfi til losunar yrði afturkallað.17. gr. - Nýtt ákvæði um vöktun á heilsutengdum mæliþáttum (e. public health parameters) í skólpi. Aðildarríki skulu setja upp kerfi á landsvísu fyrir samvinnu og samræmingu milli heilbrigðis- og umhverfisyfirvalda þega kemur að eftirliti. Þeir aðilar skulu m.a. ákveða hvaða þætti á að mæla. Þéttbýli sem losa meira en 100.000 pe. skulu fyrir árið 2025 vakta sýklalyfjaónæmar bakteríur að minnsta kosti tvisvar ár ári. Nú þegar er þverfaglegur hópur um sýklalyfjaónæmi undir formerkjum norrænu ráðherranefndarinnar starfandi og starfshópur sem hefur það verkefni að leggja til aðgerðir til varnar útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería. Starfshópurinn á að auka þverfaglegt samstarf á þessu sviði og móta framtíðarsýn til næstu 10 ára. Líkur eru á að einungis sé það höfuðborgarsvæðið sem vakta eiga sýklalyfjaónæmar bakteríur en mögulega þyrfti að gera það á Akureyri í tengslum við sjúkrahúsið. 18. gr. - Nýtt ákvæði um að aðildarríki skuli gera áhættugreiningu á umhverfi og heilsu fólks vegna losunar á skólpi og fara í aðgerðir þar sem þess þarf. Skoða þarf áhættu af skólplosun á að minnsta kosti: gæði vatns nýtt sem neysluvatn, gæði vatns á baðstöðum, ástandi vatnshlota og ástandi vatnshlota þar sem sjókvíaeldi er til staðar. Kostnaðargreina þarf þessa aðgerð.19. gr. – Nýtt ákvæði um aðgengi að hreinlætisaðstöðu. Almennt er ekki skortur á slíku á Íslandi en þó hafa komið upp atvik við ferðamannastaði að fólk hefur ekki aðgengi að hreinlætisaðstöðu. Slíkt er nauðsynlegt þegar hamla á útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería. Aðstaða til losunar á ferðasalernum þarf einnig að vera til staðar en óvissa er í dag um slíkt aðgengi.20. gr. - Breytt ákvæði um aukna nýtingu á seyru í samræmi við úrgangslöggjöf s.s. endurnýtingu og endurheimt á t.d. fosfór með því að setja kröfur um lágmarks endurheimt auðlindarinnar. Innviði fyrir meðhöndlun og endurnýtingu á seyru vantar á Íslandi.21. gr. - Breytt ákvæði um eftirlitsmælingar, aðildarríki skulu sjá til þess að lögbær yfirvöld fylgist með að hreinsun á skólpi sé í samræmi við reglur. Eftirlit með magni, samsetningu og nýtingu á seyru, nýtingu á hreinsuðu fráveituvatni, losun gróðurhúsalofttegunda, orkunotkun og framleidda orku í hreinsuvirkjum stærri en 10.000 pe. fyrir þéttbýli stærri en 10.000 pe.Aðildarríki skulu tryggja að lögbært yfirvald hafi eftirlit með losun mengunarefna frá ofanvatni og óhreinsuðu skólpi sem losað er á yfirfalli i þéttbýlum sem losa meira en 10.000 pe.Í öllum þéttbýlum yfir 10.000 pe. skulu aðildarríki tryggja að lögbær yfirvöld vakti mengunarefni sem sett eru fram í vatnatilskipun (lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála), tilskipun um umhverfisgæðakröfur (e. environmental quality standards EQS 2008/105/ESB), tilskipun um varnir gegn mengun grunnvatns (e. GWD 2006/118/ESB), ákvörðun um forgangsefni (e. list of priority substances in the field of water policy 2455/2001/ESB), reglugerð um skrá yfir losun og flutning mengunarefna (e. pollutant release and Transfer register 166/2006/ESB) og reglugerð um meðhöndlun seyru (e. sludge directive 86/278/ESB), neysluvatnstilskipun (e. quality of water intended for human consumption 2020/2184/ESB) og örplast.Tíðni mælinga á þessum mengunarefnum er að minnsta kosti tvisvar á ári í hreinsistöðvum stærri en 100.000 pe. og að minnsta kosti einu sinni á tveggja ára fresti hjá þéttbýlum sem losa 10.000 pe. – 100.000 pe.Aðildarríki skulu hafa eftirlit með örplasti í seyru hjá þéttbýlum sem losa meira en 10.000 pe.22. gr. - Breytt ákvæði um gagnaskil en þau eru aukin til samræmis við eftirlit og vöktun sem fram fer samkvæmt ákvæði 21. Aðildarríki eiga að skila gögnunum auk upplýsinga um losun gróðurhúsalofttegunda og lista yfir viðkvæm svæði. Hér þyrfti að gera viðbætur á skilagátt fráveitumála sem Umhverfisstofnun rekur og hefur umsjón með auk þess að ákveða hver ber ábyrgð á gagnasöfnun og gagnaskilum.23. gr. –ákvæði um skil á landsáætlun fyrir innleiðingu fráveitumála er lítillega breytt á þann veg að settar eru fram kröfur um hvað skal koma fram í þeim. Aðildarríki skulu skila inn uppfærðum áætlunum á fimm ára fresti. Þetta ákvæði er ekki í íslenskri reglugerð um fráveitur og skólp og skýra þarf hver ber ábyrgð á útgáfu landsáætlunar.24. gr. – er ný grein og skal tryggja tímanlegar og áreiðanlegar upplýsingar til almennings um stöðu skólpmála og að upplýsingar verði aðgengilegar með stafrænum hætti fyrir hvert þéttbýli. Eftirlitsaðili og rekstraraðili eru ábyrgir fyrir því að upplýsingar séu aðgengilegar. Upplýsingar sem eiga að koma fram eru gefnar upp í viðauka 6 við tilskipunina sem m.a. tiltaka magn skólps og hvernig það er hreinsað. Einnig skal gera grein fyrir því ef skólp er ekki hreinsað og ástæður þess auk upplýsinga um fjárfestingar og rekstrarkostnað.Skilagátt fyrir upplýsingar um stöðu fráveitumála á Íslandi er þegar til staðar hjá Umhverfisstofnun. Unnið er að því að bæta gagnasöfnun og birtingu gagna sem nú þegar skal skila ásamt því að taka á móti og vinna úr umsóknum um styrkveitingar til sveitarfélaga úr ríkissjóði í samstarfi við umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneyti og þróa upplýsingasíðu sem birtir þessar upplýsingar. Með auknum gagnaskilum verður nauðsynlegt að bæta við skilagáttina.25. gr. - er nýtt ákvæði sem tryggja á aðgengi almennings að réttlátri málsmeðferð og skaðabótum hafi losun skólps neikvæð áhrif á heilsu fólks. (Árósarsamningur).26. gr. – er ný grein um rétt fólks til að sækja skaðabætur þegar losun skólps hefur haft neikvæð áhrif á heilsu þess.Tvö ákvæði (7. og 8. gr.) í tilskipun eru felld brott. Fyrra ákvæðið er um viðeigandi hreinsun sem á við fyrir þéttbýli sem losa minna en 10.000 pe. í sjó og minna en 2.000 pe. í ferskvatn og ármynni en þar sem aðildarríkin þurfa hvort sem er að uppfylla ákvæði annarra laga þegar kemur að losun mengandi efna var lagalegt mikilvægi þessa ákvæðis takmarkað. Áttunda greinin var ákvæði fyrir eins þreps hreinsun á svæðum sem hafa verið skilgreind síður viðkvæm. Ákvæðið er talið úrelt auk þess að slíkar undanþágur samræmast ekki markmiðum um umhverfisvernd sem verið er að ná með tilskipuninni.Á myndinni hér fyrir neðan má sjá tímasetningar á hvenær ákvæðin eiga að taka gildi. Aukinn kostnaðurHeilt á litið er einhver kostnaður fólginn í flestum ákvæðunum í tillögu að tilskipun en mismikill þó. Fara þarf fram kostnaðargreining á henni í heild sinni.En benda má á að mesti kostnaðurinn fellur á sveitarfélög sem þurfa að uppfylla strangari kröfur um hreinsun en áður. Með aukinni hreinsun eykst magn seyru og þurfa sveitarfélög að gera ráðstafanir til meðhöndlunar og nýtingar á seyru en einnig eru líkur á að bann verði lagt á urðun á seyru á næstu árum. Fara þarf í frekari úrbætur á skilagátt fráveitu hjá Umhverfisstofnun svo hægt verði að taka við fleiri gögnum um mælingar og vöktun, ásamt upplýsingum frá rekstraraðilum fráveitna. Auka þarf við upplýsingagjöf og gagnaskil hjá bæði sveitarfélögum og ríki.Auka þarf umtalsvert vöktun og eftirlitsmælingar sem ekki er alveg ljóst hver á að bera ábyrgð á. Hluti þeirrar ábyrgðar s.s. mælingar á heilsutengdum mæliþáttum yrði líklega í höndum ríkisins, en ábyrgðarskipting þarf að vera skýr. Nýtt ákvæði (5. gr.) um samþættar áætlanir um hreinsun skólps, ofanvatns og hreinsun skólps sem losað er á yfirfalli þar þarf bæði að tilgreina hver ber hvaða ábyrgð og kostnaðarmeta ákvæðið þó er líklegt að í það minnsta hluti slíkrar áætlunar geti fallið innan ábyrgðar sveitarfélaga um gerð skipulagsáætlana.Aðildarríki eiga að vinna á áhættumat (18. gr.) vegna losunar á skólpi sem þarf að kostnaðarmeta og leggja til aðgerðir ef þess þarf.Hlutverk og ábyrgðEkki er fullljóst í tillögu að tilskipun hver ber ábyrgð á framkvæmd nokkurra af ákvæðum hennar sem skoða þarf betur og skýra hlutverk hvers og eins í íslenskri reglugerð. Ábyrgðin skiptist að líkindum að mestu leyti á milli ríkis og sveitarfélaga.Reglugerðin leggur áherslu á mikilvægi þess að draga úr mengun við uppruna fremur en á endastöð en í því skyni er mengunarbóta reglu beitt. Svo að slík vinna gangi vel þarf mögulega að skýra einhver ákvæði í íslenskum lögum eða reglugerðum.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Tæknilegri aðlögun, Efnislegri aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Lagasetning/lagabreyting |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Greining 2025 Tilskipun 91/271/EB, sem felld var brott með samþykkt þessarar tilskipunar, var innleidd með reglugerð um fráveitur og skólp nr. 798/1999. Lagastoð reglugerðarinnar er í 5. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Að mati Umhverfis- og orkustofnunnar (UOS) er reglugerðarheimild framangreindrar 5. gr. afar opin og æskilegt að breyta lögum til að styrkja lagastoð reglugerðarinnar. Þá er nauðsynlegt að skoða tengsl tilskipunarinnar við núgildandi lög um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009, en þar er m.a. fjallað um um hlutverk sveitarfélaga þegar kemur að fráveitu. Skoða þarf hvort samræma þarf ákvæði laga nr. 9/2009 og laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir þar sem í dag er engin tenging þar á milli. Innleiðing þessarar tilskipunar kallar auk þess á breytingar á lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitna, til samræmingar við tilskipunina. Tilskipunin kallar einnig á nýja reglugerð um hreinsun skólps í stað núgildandi reglugerðar. Einnig þarf að setja í lög ákvæði um framleiðendaábyrgð en ekki er búið að ákveða með hvaða hætti slíkt kerfi yrði hér á landi. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Já |
|---|---|
| Hvaða hagsmunaaðilar | Lyfjaframleiðendur, snyrtivöruframleiðendur og sveitarfélög. |
| Niðurstöður samráðs |
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti vann á tillögustigi tilskipunar með haghöfum, m.a. Samorku og Sambandi íslenskra sveitarfélaga, innviðaráðuneytinu og Umhverfisstofnun. Þá var áherslum Íslands komið á framfæri í löggjafarferli ESB. Einnig sendi Samorka og Samband íslenskra sveitarfélaga sameiginlegar áherslur og sveitarstjórnarvettvangur EFTA. Tilskipunin hefur verið kynnt m.a. fyrir Samtökum iðnaðarins og heilbrigðiseftirlitum. |
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur |
2025 - Kostnaðarmat vegna aukinna krafna um hreinsun á fráveituvatni fór fram á vegum umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytisins árið 2023. Annars vegar var um að ræða kostnaðarmat til að taka upp tveggja þrepa hreinsun í öllum þéttbýlum landsins og hins vegar kostnaðarmat fyrir þriggja og fjórða þreps hreinsun fyrir allt skólp frá höfuðborgarsvæðinu (ein hreinsistöð). Niðurstaða matsins var að auknar kröfur myndu fela í sér kostnað á bilinu 36- 58 milljarða til að ljúka uppbyggingu tveggja þrepa skólphreinsunar í þéttbýlum sem losa milli 1.000 – 100.000 pe. og um 62-100 milljarðar króna til að uppfylla kröfur um þriggja og fjögurra þrepa hreinsun á höfuðborgarsvæðinu. Það skal hins vegar tekið fram að uppfæra þarf framangreint kostnaðarmat á eftirfarandi hátt: a) Að það nái ekki til þéttbýla sem losa skólp í ferskvatn og kröfur um tveggja þrepa hreinsun ná til í dag í samræmi við reglugerð nr. 798/1999, enda á uppbyggingu hreinsunar á þeim stöðum að vera lokið. b) Að það nái einungis til hreinsistöðvarinnar í Klettagörðum (og mögulega Ánanaust líka) varðandi kröfur um þriggja og fjórða þreps hreinsun þar sem stærðarmörk fyrir slíka hreinsun hafa hækkað frá því sem ráðgert var á tillögustigi tilskipunarinnar þegar matið fór fram. Vegna framleiðendaábyrgðar á kostnaður við uppbyggingu og rekstur fjögurra þrepa hreinsunar einnig eftir að lækka. Til viðbótar við kostnað vegna aukinna krafna til hreinsunar fráveituvatns má t.a.m. gera ráð fyrir auknum kostnaði vegna krafna um aðgengi að salernisaðstöðu fyrir almenning, aukið eftirlit og umsýslu opinberra aðila og innleiðingu kerfis í kringum framleiðendaábyrgð. Mat á kostnaði vegna þessa liggur hins vegar ekki fyrir. 2023 - Sveitarfélög, Umhverfisstofnun, rekstraraðilar. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands |
Greining 2025 - Á Íslandi mun innleiðing tilskipunarinnar að óbreyttu hafa áhrif á fjölda sveitarfélaga sem ábyrgðaraðila fráveitna í þéttbýli. Áhrifin á þau snúa fyrst og fremst að nauðsynlegum breytingum á fráveitukerfum vegna aukinna krafna til hreinsunar, aðgengis almennings að hreinlætisaðstöðu, eftirlits, upplýsingagjafar og stafrænnar þróunar. Þau íslensku þéttbýli sem ætla má að verði helst fyrir áhrifum vegna aukinna krafna um hreinsun eru: a) Þéttbýli sem losa 1.000-2.000 pe. (líklega 10-15 talsins og losa skólp í sjó) og þurfa þ.a.l. að taka upp tveggja þrepa hreinsun fyrir lok árs 2035. b) Þéttbýli sem þurfa að taka upp tveggja þrepa hreinsun fyrir lok árs 2037 þar sem þau losa yfir 2.000 pe. en hafa fram til þessa nýtt undanþáguákvæði sem heimilar þeim að vera með eins þreps hreinsun eða viðeigandi hreinsun vegna losunar í sjó (alls 24 þéttbýli). c) Höfuðborgarsvæðið, fyrst og fremst hreinsistöðin í Klettagörðum (eina hreinsistöðin sem losar yfir 150.000 pe.), vegna kröfu um þriggja og fjögurra þrepa hreinsun. • Skoða þarf hvort aðlögunar er þörf vegna tímafresta, þ.e. fyrst og fremst kröfurnar um að ákveðið hlutfall nánar tilgreindra hreinsistöðva eigi að vera komin með slíka hreinsun á landsvísu innan ákveðins tíma. Þar sem hérlendis er eingöngu um eina hreinsistöð að ræða er þó mögulega vert að athuga hvort að við upptöku í EES-samninginn sé hægt að taka sérstaklega fram að kröfurnar um þriggja þrepa hreinsun eigi ekki við um Ísland fyrr en 31. desember 2039 og kröfur um fjórða þreps hreinsun eigi ekki við fyrr en 31. desember 2045, þ.e. þegar 100% umræddra fráveitastöðva skulu uppfylla kröfurnar. Að öðrum kosti skal vera komin þriggja og fjórða þreps hreinsun í Klettagörðum árið 2033. Jafnframt má ætla að í framtíðinni verði þéttbýli hérlendis fyrir auknum áhrifum af tilskipuninni vegna fólksfjölgunar og aukins magns skólps. Þá þarf að hafa í huga að hreinsistöðin í Ánanaust losar nú þegar um 140.000 pe. og því stutt í að kröfur um þriggja og fjórða þreps hreinsun falli einnig á þá hreinsistöð. Einnig getur verið fjárhagslega hagkvæmara að byggja eina stóra hreinsistöð í stað tveggja. Fyrir utan áhrif á sveitarfélög hefur tilskipunin áhrif á framleiðendur snyrtivara og lyfja í ljósi framleiðendaábyrgðarinnar sem tilskipunin kveður á um. Einnig mun tilskipunin auka umsýslu og eftirlit sem heilbrigðiseftirlitin og Umhverfis- og orkustofnun fara með vegna fráveitumála. Við upptöku gerðarinnar í EES-samninginn er loks mikilvægt að gefa eftirfarandi atriðum sérstakan gaum: • Skyldu til að framkvæma orkuúttekt og ná fram orkuhlutleysi í fráveitum, sbr. 11. gr. tilskipunarinnar. Við orkuúttekt skal taka mið af kröfum til orkuúttekta í óinnleiddum gerðum og skoða þarf sérstaklega hvort taka eigi upp ákvæði um orkuhlutleysi hérlendis. Þá má vera að túlka megi ákvæði um orkuhlutleysi þannig að það sé í raun þegar uppfyllt á Íslandi þar sem flestar ef ekki allar hreinsistöðvarnar eru tengdar landsneti með sjálfbæra orku. • Ákvæði 25. greinar varðandi rétt einstaklinga til að fá að leggja ágreiningsmál fyrir dómstóla, ákvæði 26. greinar um rétt til skaðabóta og ákvæði 29. greinar um refsiákvæði, þarf að skoða nánar með tilliti til skuldbindinga samkvæmt EES samningnum. Loks er bent á að tilskipunin vísar til fjölda óinnleiddra gerða, s.s. tilskipun 2006/7/EB um baðstaði (e. bathing water), tilskipun 2008/56/EC (Marine Strategy), tilskipun 2009/147/EB (Birds Directive) og tilskipun 92/43/EBE (Habitats Directive). Að frátöldum þeim atriðum sem bent hefur verið á hér er það mat UOS að ekkert standi í vegi fyrir því að horft sé til þessara gerða eins og tilskipun þessi kveður á um. Greining 2023 - Innleiðing á kröfum reglugerðar nr. 798/1999 um fráveitur og skólp er mjög ábótavant á Íslandi og sveitarfélögin hafa haft yfir 20 ár til að fjárfesta í innviðum og uppfylla skyldur sínar. Í dag er staðan þannig að einungis eitt þeirra 28 þéttbýla sem losa yfir 2.000 pe. af skólpi uppfyllir kröfur reglugerðarinnar. Sex þéttbýli eiga að vera með tveggja þrepa hreinsun í dag og því eru það líklega um 25 þéttbýli sem þurfa að fara úr engri hreinsun eða grófhreinsun í tveggja þrepa hreinsun með tilheyrandi fjárfestingu og auknum kostnaði. Mat á kostnaði og áhrifum tillögu að nýrri tilskipun hefur ekki farið fram að svo stöddu. Þó að hér séu ekki til staðar vandamál sem fela í sér næringarefnaofauðgun og súrefnisþurrð í viðtökum þá eru ýmis önnur efni í skólpi sem ný ákvæði í tillögu að tilskipun er ætlað að takast á við s.s. hreinsun á öðrum mengandi efnum. Umhverfisstofnun hefur framkvæmt bæði skimanir á vaktlistaefnum (s.s. lyfjaleifum og varnarefnum) og forgangsefnavöktun sem báðar gefa til kynna að umrædd mengunarefni eru til staðar í íslenskri fráveitu. Ekki er þó ljóst hversu mikil sú mengun er og þarf frekari rannsóknir við þar. Ný tilskipun mun hafa hvað mest áhrif á höfuðborgarsvæðið sem skal koma sér upp tveggja þrepa hreinsun, ásamt því að hreinsa köfnunarefni og fosfór og önnur mengunarefni s.s. örplast. Þá skal unnin aðgerðaáætlun til að draga úr mengun vegna losunar á ofanvatni og óhreinsuðu skólpi sem losað er á yfirfalli. Tillaga að nýrri tilskipun mun auka og bæta hreinsun til muna og tryggja þannig heilnæmara umhverfi fyrir fólk og vistkerfi til framtíðar og styðja enn fremur við markmið Íslands þegar kemur að alþjóðlegum skuldbindingum. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32024L3019 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/3019, 12.12.2024 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2022) 541 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Breytir (Modifies)
| COM(2022) 541 52022PC0541 |
adopts | Directive (EU) 2024/3019 of the European Parliament and of the Council of 27 November 2024 concerning urban wastewater treatment (recast) | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
| 32014D0431 | repeals | Commission Implementing Decision 2014/431/EU of 26 June 2014 concerning formats for reporting on the national programmes for the implementation of Council Directive 91/271/EEC | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32013L0064 | amends | ||
| 32008R1137 | amends | Regulation (EC) No 1137/2008 of the European Parliament and of the Council of 22 October 2008 adapting a number of instruments subject to the procedure laid down in Article 251 of the Treaty to Council Decision 1999/468/EC, with regard to the regulatory procedure with scrutiny — Adaptation to the regulatory procedure with scrutiny — Part One | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
| 32003R1882 | amends |
