32023R1772
Commission Implementing Regulation (EU) 2023/1772 of 12 September 2023 amending Implementing Regulation (EU) No 923/2012 as regards the operating rules related to the use of Air Traffic Management and Air Navigation Services systems and constituents in the Single European Sky airspace and repealing Regulation (EC) No 1033/2006
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1772 frá 12. september 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 923/2012 að því er varðar starfrækslureglur í tengslum við notkun kerfa og kerfishluta rekstrarstjórnunar flugumferðar og flugleiðsöguþjónustu í samevrópska loftrýminu og um niðurfellingu reglugerðar (EB) nr. 1033/2006
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Tegund gerðar | Reglugerð |
| Nánari tegund gerðar | Framkvæmdarreglugerð |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 147/2025 |
| Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar | |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Verið er að samræma reglur fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar og flugleiðsöguþjónustu í samevrópska loftrýminu. Því eru ein reglugerð um efnið felld inn í aðra. Beiting reglnanna þegar viðhöfð hér á landi og áhrif ekki umfram það. Ekki kostnaður.
Nánari efnisumfjöllun
Almennt: Markmið með gerðinni er að tryggja að kröfur um notkun búnaðar fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar og flugleiðsöguþjónustu (ATM/ANS) í samevrópska loftrýminu séu samhæfðar.Í reglugerð (EB) nr. 1033/2006 er mælt fyrir um verklagsreglur fyrir flugáætlanir og undirbúningsstig flugs, e. pre-flight phase, fyrir samevrópska loftrýmið (SES). Í reglugerð (ESB) nr. 923/2012 eru sameiginlegar reglur um flug og hvernig á að reka þjónustu við flug auk reglna um hvernig verklagi í flugleiðsögu skuli háttað.Með þessari gerð eru kröfur úr reglugerð 923/2012 um notkun búnaðar fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar og flugleiðsöguþjónustu (ATM/ANS) í samevrópska loftrýminu, breytt þannig að reglugerðin nái yfir kröfur um gerð flugáætlana í reglugerð 1033/2006. Reglugerð 1033/2006 er jafnframt felld úr gildi með þessari gerð.Þá eru samtímis gerðar fleiri breytingar á reglugerð 923/2012. Hún gildir nú netstjórnandann í samevrópska loftrýminu. Netstjórnandanum er nú falið að gera flugáætlanir á undirbúningsstigi flugs. Þá er kveðið á um að allir notendur samevrópska loftrýmisins fari eftir rekstrarhandbókum sem netstjórnandinn þróar og viðheldur þegar flugáætlanir eru lagðar fram.Endurtækar flugáætlanir (RPL), þ. e. flugáætlanir sem eru í aðalatriðum eins og endurteknar á sama grunni fyrir mismunandi leiðir og loftför, eiga ekki lengur við á EUR svæðinu og því eru allar tilvísanir í þær fjarlægðar. Kröfur sem fram koma í reglugerð 1033/2006 um verklagsreglur fyrir flugáætlanir á undirbúningsstigi flugs í samevrópska loftrýminu eiga ekki við um þjónustuveitendur í samevrópska loftrýminu sem eru utan ICAO EUR svæðisins eins og það er skilgreint í EUR Air Navigation Plan Volume I (Doc 7754). Reglugerð (EB) nr. 1033/2006 er því felld úr gildi og reglugerð (ESB) 923/2012 breytt til samræmis við framangreint.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Ákvæðin sem nú er bætt við reglugerð (ESB) nr. 923/2012 eru um meðhöndlun flugáætlana í undirbúningsstigi flugs í samevrópska loftrýminu. Verið er að færa til ákvæði sem áður voru í sérstakri reglugerð, þ.e. reglugerð 1033/2006, yfir í reglugerð um samevrópskar flugreglur þar sem þær eru betur taldar eiga heima.Reglugerð (EB) nr. 1033/2006 var ekki beitt hér á landi enda gildissvið utan NAT svæðisins. Samfara aðlögunarsamningi Íslands við Eurocontrol hefur Isavia ANS þó tekið ákvörðun um þátttöku í samþættu kerfi til úrvinnslu upphaflegra flugáætlana, e. Integrated Initial Flight Plan Processing System, netstjórnandans. Því verður um sjálfkrafa beitingu reglnanna að ræða. Haft hefur verið samráð við notendur um breytinguna sbr. upplýsingabréf flugmála AIC A 13/2023.Engin viðbótarárhrif verða því vegna þessarar tilteknu reglugerðar frá því sem varð með innleiðingu breytinganna hjá Isavia. Haft var samráð við Isavia og engar athugasemdir gerðar við innleiðingu á þessari reglugerð eða við beitingu krafnanna sem hluta af reglugerð 923/2012 þegar til þess kemur.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er 188. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022.Rétt væri að innleiða reglugerðina með breytingu á reglugerð nr. 770/2010 um flugreglur.Rétt þó að hafa í huga að það er vilji til að beita reglugerð (EU) 923/2012 ásamt síðari breytingum, og slíkt kallar á niðurfellingu rg. 770/2010, þ.e. upprunalegu gerðina sem innleiðir ICAO Viðauka 2. Það veltur því að tímarammanum, þ.e. hvenær gerðin verður innleidd hvort réttara sé að innleiða hana með breytingu á rg. nr. 770/2010 eða hvort rétt sé til einföldunar að innleiða (EU) 923/2012 ásamt síðari breytingum með nýrri reglugerð.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Gerðin felur í sér breytta nálgun á meðhöndlun flugáætlana og hefur Isavia ANS þegar innleitt breytinguna. Gerðin hefur engan viðbótarkostnað í för með sér fyrir notendur.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Engin.Tilgreining á hagsmunaaðilum: Samgöngustofa, Isavia ANS, Isavia ohf og Isavia Innanlands, flugrekendur.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Vísað er til reglugerðar Evrópusambandsins 2023/1770 sem ekki hefur verið tekin upp í EES-samninginn.Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoðin er 188. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022. Rétt væri að innleiða reglugerðina með breytingu á reglugerð nr. 770/2010 um flugreglur. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32023R1772 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 228, 15.9.2023, p. 73 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Samþykktardagur i ESB |
|---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Samþykktardagur | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 61, 2.10.2025, p. 53 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/1839, 2.10.2025 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
| Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Græn: Innleitt |
|---|---|
| Viðeigandi lög/reglugerði |
Breytir (Modifies)
| 32018R0139 | implicitly repeals | Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi |
| 32016R2120 | implicitly repeals | Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi |
| 32013R0428 | implicitly repeals | Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi |
| 32012R0923 | amends, implicitly repeals | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32006R1033 | repeals | Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi |
Lagagrundvöllur (Legal basis)
Acts, treaties and agreements this act is based on, according to EUR-Lex.
| 32018R1139 | Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1139 frá 4. júlí 2018 um sameiginlegar reglur um almenningsflug og um stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópusambandsins og um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 2111/2005, (EB) nr. 1008/2008, (ESB) nr. 996/2010, (ESB) nr. 376/2014 og tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 2014/30/ESB og 2014/53/ESB og um niðurfellingu á reglugerðum Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 552/2004 og (EB) nr. 216/2008 og reglugerð ráðsins (EBE) nr. 3922/91 Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Flokkun (Classifications)
| EUROVOC | transport network, air safety, air traffic control, air space, Single European Sky |
|---|---|
| Subject matter | Transport |
