32023R1770

Commission Implementing Regulation (EU) 2023/1770 of 12 September 2023 laying down provisions on aircraft equipment required for the use of the Single European Sky airspace and operating rules related to the use of the Single European Sky airspace and repealing Regulation (EC) No 29/2009 and Implementing Regulations (EU) No 1206/2011, (EU) No 1207/2011 and (EU) No 1079/2012


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1770 frá 12. september 2023 um ákvæði um loftfarsbúnað, sem krafist er við notkun samevrópska loftrýmisins, og um starfrækslureglur í tengslum við notkun samevrópska loftrýmisins og um niðurfellingu reglugerðar (EB) nr. 29/2009 og framkvæmdarreglugerða (ESB) nr. 1206/2011, (ESB) nr. 1207/2011 og (ESB) nr. 1079/2012
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 161/2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Um er að ræða reglugerð um tilskilinn flugleiðsögubúnað loftfara sem þarf til notkunar á samevrópska loftrýminu og um starfsreglur um notkun hans. Búnaðinn á að nota með samræmdum hætti í samræmi við grunnkröfur settar eru fram í viðauka VIII. við reglugerð (ESB) 2018/1139. Ekki kostnaður hér á landi og ekki áhrif.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Um er að ræða reglugerð um tilskilinn flugleiðsögubúnað loftfara sem þarf til notkunar á samevrópska loftrýminu og um starfsreglur um notkun hans. Búnaðinn á að nota með samræmdum hætti í samræmi við grunnkröfur settar eru fram í viðauka VIII. við reglugerð (ESB) 2018/1139. Aðdragandi: Um er að ræða kröfur sem voru áður innleiddar með reglugerð (ESB) nr. 552/2004. Sú reglugerð var felld úr gildi 11. september 2018. Ákveðnar greinar og tilvísanir í innleiðingarreglugerðir giltu þó áfram en máttu ekki gilda lengur en til 12. september 2023.Efnisútdráttur: Reglugerðin mælir fyrir um starfsreglur sem tengjast notkun loftrýmis og kröfur um búnað loftfara sem er nauðsynlegur fyrir örugga og samræmda starfrækslu innan samevrópska loftrýmisins.Reglugerðin gildir um rekstraraðila tiltekinna loftfara skv. ákvæðum í reglugerð (ESB) 2018/1139 sem starfrækja almenningsflug inn í samevrópska loftrýmið, innan þess og utan þ.e.;-      rekstraraðila loftfara sem eru skráð í aðildarríki, nema og að því marki sem aðildarríkið hefur falið þriðja landi ábyrgð sína samkvæmt Chicago-samningnum og loftfarið er starfrækt af flugrekanda/umráðanda frá landi utan Evrópusambandsins. -      rekstraraðila loftfara sem er skráð í landi utan ESB og starfrækt af flugrekanda/umráðanda sem hefur staðfestu, búsetu eða höfuðstöðvar sínar á því yfirráðasvæði sem sáttmálar Evrópusambandsins gilda um.-      um starfrækslu flugrekanda/umráðanda í þriðja landi á loftförum til, innan eða frá því yfirráðasvæði sem sáttmálarnir gilda um.Umráðendur þeirra loftfara skulu tryggja að loftfarið sé útbúið og starfrækt í samræmi við reglur og verklagsreglur sem settar eru fram í I. viðauka (Part-Com) og viðauka II (Part SUR) við reglugerð þessa.Samkvæmt gerðinni skal Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) þróa viðurkenndar aðferðir til að uppfylla kröfur (AMC) sem hægt er að nota til að koma á samræmi milli krafna í þessari gerð við kröfur í reglugerð (ESB) 2018/1139 og reglugerðum settum á grundvelli hennar. Þeim sem kröfurnar ná til verður heimilt að styðjast við AMC til að uppfylla ákvæði þessarar gerðar.Lögbær yfirvöld þurfa að koma á fót kerfi til að meta stöðugt hvort aðrar viðurkenndar aðferðir (AMC), sem þau sjálf eða þeir sem heyra undir yfirvaldið nota, séu í samræmi við kröfur í reglugerð (ESB) 2018/1139 og afleiddum gerðum.Þá ber lögbærum yfirvöldum að upplýsa EASA um hvaða viðurkenndu aðferðir til að uppfylla kröfur eru  notaðar af  þeim eða  þeim sem heyra undir yfirvaldið.Með gerðinni eru reglugerðir (EB) nr. 29/2009, (ESB) nr. 1206/2011, (ESB) 1207/2011 og (ESB) nr. 1079/2012 felldar úr gildi.Umsögn: helstu breytingar,  mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Engin breyting á umfangi hér á landi þar sem við beitum ekki þeim reglugerðum sem verið er að fella úr gildi og þær reglur sem koma í staðinn hafa sama gildissvið og þær gerðir.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er 188. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022.Rétt væri að innleiða reglugerðina með nýrri reglugerð.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Enginn kostnaður metinn vegna innleiðingar reglugerðarinnar.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: NeiTilgreining á hagsmunaaðilum: Isavia ANS. Reglugerðin hefur þó ekki áhrif hér á landi.Horizontal issues: sektir; aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: NeiÞörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoðin er 188. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022. Rétt væri að innleiða reglugerðina með nýrri reglugerð.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32023R1770
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 228, 15.9.2023, p. 39
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 61, 2.10.2025, p. 70
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/1818, 2.10.2025

Breytir (Modifies)

32022R0002 implicitly repeals Commission Implementing Regulation (EU) 2022/2 of 4 January 2022 correcting the French language version of Implementing Regulation (EU) No 1207/2011 laying down requirements for the performance and the interoperability of surveillance for the single European sky Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32020R0587 implicitly repeals Commission Implementing Regulation (EU) 2020/587 of 29 April 2020 amending Implementing Regulation (EU) No 1206/2011 laying down requirements on aircraft identification for surveillance for the single European sky and Implementing Regulation (EU) No 1207/2011 laying down requirements for the performance and the interoperability of surveillance for the single European sky Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
32020R0208 implicitly repeals Commission Implementing Regulation (EU) 2020/208 of 14 February 2020 amending Regulation (EC) No 29/2009 laying down requirements on data link services for the single European sky Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32019R1170 implicitly repeals Commission Implementing Regulation (EU) 2019/1170 of 8 July 2019 amending and correcting Regulation (EC) No 29/2009 laying down requirements on data link services for the single European sky Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
32018R1139 based on Regulation (EU) 2018/1139 of the European Parliament and of the Council of 4 July 2018 on common rules in the field of civil aviation and establishing a European Union Aviation Safety Agency, and amending Regulations (EC) No 2111/2005, (EC) No 1008/2008, (EU) No 996/2010, (EU) No 376/2014 and Directives 2014/30/EU and 2014/53/EU of the European Parliament and of the Council, and repealing Regulations (EC) No 552/2004 and (EC) No 216/2008 of the European Parliament and of the Council and Council Regulation (EEC) No 3922/91 Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Flokkun (Classifications)