52025PC0983 – Tilskipun COM(2025) 983 um afnám kröfu um fulltrúa framleiðenda raf- og rafeindatækja og einnota plastvara. - COM(2025) 983

Proposal for a Directive of the European Parliament and of the Council .../... suspending the application of the rules on the appointment of authorised representatives for extended producer responsibility for waste, waste electrical and electronical equipment and single use plastic waste


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar Tillaga ESB sem er merkt EES-tæk
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.05 Úrgangur

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Tilskipunin frestar eða fellir tímabundið niður skyldu framleiðenda sem framleiða textílvörur, raf- og rafeindatæki, ýmsar einnota plastvörur og veiðarfæri sem innihalda plast sem heyra undir framlengda framleiðendaábyrgð, til að skipa fulltrúa sinn í öðrum aðildarríkjum Evrópu.

Nánari efnisumfjöllun

Í Samkeppnisvísi Evrópusambandsins (e. Competitiveness Compass for the EU) eru lögð drög að því markmiði að draga úr stjórnsýslukostnaði fyrirtækja um 25-35%. Svipuð sjónarmið koma fram í skýrslu Mario Draghi um framtíð samkeppnishæfni Evrópu. Tillagan er hluti af bandormi (e. omnibus) sem miðar að þessu markmiði.Framleiðandi sem setur ákveðnar vörur á markað ber ábyrgð á vörunni út líftíma hennar, svokallaða framlengda framleiðendaábyrgð. Framleiðandi sem setur vöru á markaði í öðru ríki en því sem hann er í, þarf að skipa fulltrúa sinn í viðkomandi ríki og er það hlutverk fulltrúans að fara með framlengda framleiðendaábyrgð fyrir hönd framleiðandans. Í reynd hefur þótt of flókin tilhögun að skipa þurfi fulltrúa framleiðanda í hverju ríki sem vara hans er markaðssett í. Markmið tilskipunarinnar er að gera það valkvætt fyrir framleiðendur textílvara, skóbúnaðar og skyldra vara, raf- og rafeindatækja, einnota plastvara og veiðarfæra sem innihalda plast á EES-svæðinu hvort þeir skipi fulltrúa sinn í öðrum EES-ríkjum eða ekki. Óljóst er hvaða skyldur munu gilda um framleiðendur utan EES-svæðisins, nema fyrir textílvörur.Tilskipunin er fjórar greinar. Sú fyrsta fjallar um tímabundinni niðurfellingu eða frestun á gildistöku ákvæða sem skylda framleiðendur til að tilnefna fulltrúa sinn sem fer með framlengda framleiðendaábyrgð í þeim aðildarríkjum sem framleiðendur markaðssetja vörur sínar. Hinar greinarnar fjalla um hvernig umrita skuli tilskipunina og gildistöku hennar.Grein 1 skiptist í þrjá stafliði:a) Kveðið er á um frestun á skyldu framleiðenda textíls sem setur textílvöru á markað í öðru aðildarríki til að skipa fulltrúa sinn til 1. janúar 2035. Aðildarríkjum er áfram valfrjálst að skylda framleiðendur frá þriðju ríkjum sem setja textílvöru á markað í aðildarríkinu til skipa fulltrúa sinn.b) Kveðið er á um niðurfellingu á skyldu framleiðenda raf- og rafeindatækja til að tilnefna fulltrúa sinn til 1. janúar 2035. c) Kveðið er á um niðurfellingu á skyldu framleiðenda ýmissa einnota plastvara og veiðarfæra sem innihalda plast til að tilnefna fulltrúa sinn til 1. janúar 2035.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, 37.gr.h.
Lög um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003, 50. gr.
Ákvæðin sem grein 1(a) breytir hafa ekki verið tekin upp í EES-samninginn.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Já
Hvaða hagsmunaaðilar Úrvinnslusjóður
Niðurstöður samráðs Gerðin hefur ekki áhrif á störf Úrvinnslusjóðs.

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Tilskipunin felur ekki í sér aukinn kostnað hins opinbera.
Tilskipunin getur falið í sér rekstrarsparnað fyrir framleiðendur sem markaðssetja vörur sínar í fleiri en einu ríki en hún gæti líka flækt eftirlitsferla.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Engir sérhagsmunir Íslands í húfi.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2025) 983
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu

Leggur til breytingar á (Proposes to amend)

32019L0904 Directive (EU) 2019/904 of the European Parliament and of the Council of 5 June 2019 on the reduction of the impact of certain plastic products on the environment Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32012L0019 Directive 2012/19/EU of the European Parliament and of the Council of 4 July 2012 on waste electrical and electronic equipment (WEEE) (recast) Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32008L0098 Directive 2008/98/EC of the European Parliament and of the Council of 19 November 2008 on waste and repealing certain Directives Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Breytt af (Modified by)

COM(2025) 982
52025PC0982
work related to work Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council .../... suspending the application of the rules on the appointment of an authorised representative for extended producer responsibility for batteries and waste batteries and packaging and packaging waste Tillaga sem gæti verið EES-tæk
COM(2025) 981
52025PC0981
work related to work Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council .../... amending Regulation (EU) 2023/1542 and Regulation (EU) 2024/1244 as regards simplification of some requirements and reduction of administrative burden Tillaga sem gæti verið EES-tæk
COM(2025) 980
52025DC0980
work related to work

Breytir (Modifies)

COM(2025) 986
52025PC0986
work related to work Proposal for a Directive of the European Parliament and of the Council .../... amending Directives 2008/98/EC, 2010/75/EU, (EU) 2015/2193 and (EU) 2024/1785 of the European Parliament and of the Council as regards simplification of some requirements and reduction of administrative burden Tillaga sem gæti verið EES-tæk
COM(2025) 985
52025PC0985
work related to work Proposal for a Directive of the European Parliament and of the Council .../... amending Directive 2007/2/EC as regards simplification of certain requirements for the establishment of the Infrastructure for Spatial Information in the Union Tillaga sem gæti verið EES-tæk
COM(2025) 984
52025PC0984
work related to work Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council .../... on speeding-up environmental assessments Tillaga sem gæti verið EES-tæk
32019L0904 proposes to amend Directive (EU) 2019/904 of the European Parliament and of the Council of 5 June 2019 on the reduction of the impact of certain plastic products on the environment Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32012L0019 proposes to amend Directive 2012/19/EU of the European Parliament and of the Council of 4 July 2012 on waste electrical and electronic equipment (WEEE) (recast) Tekin upp í EES-samninginn og í gildi