Tillaga að reglugerð um evrópska eftirlitsstofnun á sviði peningaþvættis - 32024R1620
Regulation (EU) 2024/1620 of the European Parliament and of the Council of 31 May 2024 establishing the Authority for Anti-Money Laundering and Countering the Financing of Terrorism and amending Regulations (EU) No 1093/2010, (EU) No 1094/2010 and (EU) No 1095/2010
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 09 Fjármálaþjónusta, 09.02 Bankar og aðrar fjármálastofnanir |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Tillaga að reglugerð um stofnun nýrrar evrópskrar eftirlitsstofnunar á vettvangi aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Nánari efnisumfjöllun
Tillaga að reglugerð um nýja evrópska eftirlitsstofnun á vettvangi aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (e. Anti-Money Laundering Authority - „AMLA“). Í grófum dráttum er gert ráð fyrir að meginhlutverk stofnunarinnar verði þrenns konar:Í fyrsta lagi að sinna beinu eftirliti með völdum tilkynningarskyldum aðilum á fjármálamarkaði (e. selected obliged entities). Slíkir aðilar eru valdir úr hópi fjármálafyrirtækja sem ná tilgreindu umfangi á þriggja ára fresti. Sinnir stofnunin þá beinu eftirliti með slíkum aðilum og mun t.a.m. hafa valdheimildir til að krefjast breytinga á stjórnskipulagi slíkra aðila, krefjast sértækra aðgerða til að bregðast við peningaþvætti og afturkalla starfsleyfi. Þá mun stofnunin hafa sömu heimildir og eftirlitsaðilar aðildarríkjanna hafa gagnvart slíkum tilkynningarskyldum aðilum, nema annað sé tekið fram.Í öðru lagi að sinna óbeinu eftirliti með bæði tilkynningarskyldum fjármálafyrirtækjum og öðrum tilkynningarskyldum aðilum í gegnum eftirlitsstofnanir aðildarríkjanna. Í því felst m.a. að stofnunin mun framkvæma mat á starfsemi eftirlitsaðila í aðildarríkjunum, t.a.m. þegar kemur að því hvort eftirlitsaðilar með fjármálafyrirtækjum hafi úr að spila fullnægjandi heimildum og fjármagni (e. tools and resources). Þá er einnig gert ráð fyrir að stofnunin framkvæmi reglulegar úttektir (e. peer reviews) á starfsemi eftirlitsaðila sem sinna eftirliti með öðrum tilkynningarskyldum aðilum.Til viðbótar er gert ráð fyrir að stofnunin hafi í undantekningartilvikum (e. exceptional circumstances) heimildir til að bregðast við brotum tilkynningarskyldra fjármálafyrirtækja sem ekki falla undir valda tilkynningarskylda aðila (að tilteknum skilyrðum uppfylltum, m.a. að fenginni heimild frá Framkvæmdstjórninni) með því að beina tilmælum til, eða með því að taka yfir skyldur, innlenda eftirlitsaðilans, hafni hann að grípa til aðgerða gegn þeim tilkynningarskylda aðila sem um ræðir.Í þriðja lagi að gegna samhæfingar- og stuðningshlutverki með fjármálagreiningareiningum (e. Financial Intelligence Units „FIU“) aðildarríkjanna, m.a. með því að samræma sameiginlegar greiningar slíkra eininga (e. joint analyses) og starfrækja FIU.net (vettvangur öruggrar miðlunar upplýsinga á milli slíkra eininga).Gert er ráð fyrir að stjórnkerfi stofnunarinnar verði byggt upp af stjórn (e. General Board), þar sem m.a. forstöðumenn eftirlitsaðila í aðildarríkjum muni eiga sæti (með eitt sameiginlegt atkvæði), framkvæmdastjórn (e. Executive Board) þar sem ekki er gert ráð fyrir að fulltrúar aðildarríkjanna eigi sæti, forstöðumanni (e. chair), framkvæmdastjóra (e. Executive Director) og endurskoðunarstjórn (e. Administrative Board of Review).Tillagan er hluti af svokölluðum "AML-pakka" ESB, ásamt tillögu að reglugerð um breytingu og niðurfellingu á reglugerð EB 2015/847 um þær upplýsingar sem fylgja eiga millifærslum (COM (2021) 422), tillögu að reglugerð um aðgerðir til að koma í veg fyrir misnotkun fjármálakerfisins hvað varðar peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (COM (2021) 420) og tillögu að að tilskipun um þær aðgerðir sem aðildarríki eiga að grípa til í því skyni að koma í veg fyrir misnotkun fjármálakerfisins hvað varðar peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (6. peningaþvættistilskipunin) (COM (2021) 423).
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Nei |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Tæknilegri aðlögun, Efnislegri aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Lagasetning/lagabreyting |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Óvíst á þessu stigi. Verði "AML-pakkinn" samþykktur má gera ráð fyrir að breyta þurfi lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018 eða setja nýja löggjöf á þessu sviði. Innleiðing með reglugerðum kann einnig að koma til. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Já |
|---|---|
| Hvaða hagsmunaaðilar | Gera má ráð fyrir að samráð þurfi við ýmsa aðila, s.s. ráðuneyti, eftirlitsstofnanir og aðila úr einkageiranum. |
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
|---|---|
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands |
Vera kann að reglugerðin verði talin fela í sér framsal á valdi sem gangi gegn stjórnarskrá. Er enda gert ráð fyrir að stofnunin hafi beint eftirlit með, og þar með valdheimildir yfir, tilteknum fjármálafyrirtækjum sem sérstaklega verða til þess valin af stofnuninni. Þótt ekki sé fyrirsjáanlegt að íslensk fjármálafyrirtæki falli undir þau skilyrði sem sett eru fyrir því að falla í flokk „valinna“ fjármálafyrirtækja í þessum skilningi, þá er heimildin engu að síður fyrir hendi, auk þess sem gert er ráð fyrir að stofnunin geti í undantekningartilvikum, og að vissum skilyrðum uppfylltum, brugðist beint við brotum annarra tilkynningarskyldra fjármálafyrirtækja. Því til viðbótar má nefna að Evrópudómstólnum er einum falin lögsaga í málum er varða endurskoðun á tilteknum ákvörðunum hinnar nýju stofnunar. Þá kunna önnur atriði einnig að koma til frekari skoðunar í þessu sambandi, s.s. eftirlit með innlendum eftirlitsstofnunum og aðkoma að stjórn eftirlitsstofnunarinnar. Gera má ráð fyrir að leita þurfi tveggja stoða lausnar við innleiðingu reglugerðarinnar eins og gert var við innleiðingu á evrópska eftirlitskerfinu á fjármálamarkaði. Innleiðing AML-pakkans í heild mun hafa talsverð áhrif og kalla á breytingar á löggjöf eða nýja lagasetningu. Á vettvangi sérfræðingahóps um fjármálaþjónustu hafa verið greind hugsanleg "lárétt EES-álitaefni" (e. Possible EEA Horizontal Challenges) varðandi: - Ákvæði sem vísa til gerða sem ekki hafa verið innleiddar í EES-samninginn. - Ákvæði sem tengjast þriðju ríkjum. - Ákvæði um sektir af hálfu stofnunar Evrópusambandsins. - Ákvæði um möguleg tveggja stoða álitaefni sem ekki falla undir Bókun 1 við EES-samninginn. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Dómsmálaráðuneytið |
|---|---|
| Önnur ráðuneyti sem hafa aðkomu | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32024R1620 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/1620, 19.6.2024 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2021) 421 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Breytt af (Modified by)
| DP(2024) 067 52024DP0067 |
based on | ||
| 32026D01260 | based on | ||
| 32025R2088 | amends | Regulation (EU) 2025/2088 of the European Parliament and of the Council of 8 October 2025 amending Regulations (EU) No 1092/2010, (EU) No 1093/2010, (EU) No 1094/2010, (EU) No 1095/2010, (EU) No 806/2014, (EU) 2021/523 and (EU) 2024/1620 as regards certain reporting requirements in the fields of financial services and investment support | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
| 32025D0632 | based on | ||
| 32025D02998 | based on |
Breytir (Modifies)
| COM(2021) 421 52021PC0421 |
adopts | Regulation (EU) 2024/1620 of the European Parliament and of the Council of 31 May 2024 establishing the Authority for Anti-Money Laundering and Countering the Financing of Terrorism and amending Regulations (EU) No 1093/2010, (EU) No 1094/2010 and (EU) No 1095/2010 | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
| 32010R1095 | amends | Regulation No 1095/2010 of the European Parliament and of the Council of 24 November 2010 establishing a European Supervisory Authority (European Securities and Markets Authority), amending Decision No 716/2009/EC and repealing Commission Decision 2009/77/EC - ESMA | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32010R1094 | amends | Regulation No 1094/2010 of the European Parliament and of the Council of 24 November 2010 establishing a European Supervisory Authority (European Insurance and Occupational Pensions Authority), amending Decision No 716/2009/EC and repealing Commission Decision 2009/79/EC - EIOPA | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32010R1093 | amends | Regulation No 1093/2010 of the European Parliament and of the Council of 24 November 2010 establishing a European Supervisory Authority (European Banking Authority), amending Decision No 716/2009/EC and repealing Commission Decision 2009/78/EC - EBA | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
