Sjötta peningaþvættistilskipunin. - 32024L1640
Directive (EU) 2024/1640 of the European Parliament and of the Council of 31 May 2024 on the mechanisms to be put in place by Member States for the prevention of the use of the financial system for the purposes of money laundering or terrorist financing, amending Directive(EU) 2019/1937, and amending and repealing Directive (EU) 2015/849
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 09 Fjármálaþjónusta, 09.02 Bankar og aðrar fjármálastofnanir |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Tillaga að tilskipun um þær aðgerðir sem aðildarríki eiga að grípa til í því skyni að koma í veg fyrir misnotkun fjármálakerfisins hvað varðar peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Nánari efnisumfjöllun
Tillagan er hluti af svokölluðum "AML-pakka" ESB, ásamt tillögu að reglugerð um stofnun nýrrar evrópskrar eftirlitsstofnunar á vettvangi aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (COM (2021) 421), tillögu að reglugerð um aðgerðir til að koma í veg fyrir misnotkun fjármálakerfisins hvað varðar peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (COM (2021) 420) og tillögu að reglugerð um breytingu og niðurfellingu á reglugerð EB 2015/847 um þær upplýsingar sem fylgja eiga millifærslum (COM (2021) 422).Um er að ræða einu tilskipunina í áðurnefndum AML-pakka. Hún hefur að geyma reglur sem lúta að aðildarríkjunum sjálfum og stofnanaumgjörð þeirra. Í dag eru báðir þessir þættir í tilskipunarformi (fjórða og fimmta peningaþvættistilskipunin). Það að mælt sé fyrir um þær reglur í tilskipun felur í sér viðurkenningu á því að nauðsynlegt sé að aðildarríki fái ákveðinn sveigjanleika við innleiðingu þeirra. Til viðbótar við gildandi reglur mælir tilskipunin einnig fyrir um ýmsa breytingar, t.a.m. hvað varðar skráningu raunverulegra eigenda, valdheimildir eftirlitsaðila og persónuvernd.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Nei |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Engar laga- eða reglugerðabreytingar |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Óvíst á þessu stigi. Verði "AML-pakkinn" samþykktur má gera ráð fyrir að breyta þurfi lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018 eða setja nýja löggjöf á þessu sviði. Innleiðing með reglugerðum kann einnig að koma til. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Já |
|---|---|
| Hvaða hagsmunaaðilar | Gera má ráð fyrir að samráð þurfi við ýmsa aðila, s.s. ráðuneyti, eftirlitsstofnanir og aðila úr einkageiranum. |
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
|---|---|
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands |
Innleiðing AML-pakkans í heild mun hafa talsverð áhrif og kalla á breytingar á löggjöf eða nýja lagasetningu. Á vettvangi sérfræðingahóps um fjármálaþjónustu hafa verið greind hugsanleg "lárétt EES-álitaefni" (e. Possible EEA Horizontal Challenges) varðandi: - Ákvæði sem vísa til gerða sem ekki hafa verið innleiddar í EES-samninginn. - Ákvæði sem tengjast þriðju ríkjum. - Ákvæði um möguleg tveggja stoða álitaefni sem ekki falla undir Bókun 1 við EES-samninginn. Sjá einnig umfjöllun við aðrar tillögur pakkans (COM (2021) 421, COM (2021) 422, COM (2021) 420). |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Dómsmálaráðuneytið |
|---|---|
| Önnur ráðuneyti sem hafa aðkomu | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32024L1640 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/1640, 19.6.2024 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2021) 423 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Breytt af (Modified by)
| 72024R0886HUN_202503633 | measure national implementing implements |
| 72024L1640SVN_202504356 | measure national implementing implements |
| 72024L1640SVK_202503027 | measure national implementing implements |
| 72024L1640SVK_202305269 | measure national implementing implements |
| 72024L1640ROU_202503089 | measure national implementing implements |
Breytir (Modifies)
| COM(2021) 423 52021PC0423 |
adopts | Directive (EU) 2024/1640 of the European Parliament and of the Council of 31 May 2024 on the mechanisms to be put in place by Member States for the prevention of the use of the financial system for the purposes of money laundering or terrorist financing, amending Directive(EU) 2019/1937, and amending and repealing Directive (EU) 2015/849 | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
| 32023R1113 | implicitly repeals | Regulation (EU) 2023/1113 of the European Parliament and of the Council of 31 May 2023 on information accompanying transfers of funds and certain crypto-assets and amending Directive (EU) 2015/849 | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32019L2177 | implicitly repeals | Directive (EU) 2019/2177 of the European Parliament and of the Council of 18 December 2019 amending Directive 2009/138/EC on the taking-up and pursuit of the business of Insurance and Reinsurance (Solvency II), Directive 2014/65/EU on markets in financial instruments and Directive (EU) 2015/849 on the prevention of the use of the financial system for the purposes of money-laundering or terrorist financing (Solvency II and MiFID II) | Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi |
| 32019L1937 | amends | Directive (EU) 2019/1937 of the European Parliament and of the Council of 23 October 2019 on the protection of persons who report breaches of Union law | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
| 32018L0843 | implicitly repeals | Directive (EU) 2018/843 of the European Parliament and of the Council of 30 May 2018 amending Directive (EU) 2015/849 on the prevention of the use of the financial system for the purposes of money laundering or terrorist financing, and amending Directives 2009/138/EC and 2013/36/EU - amending AMLD IV | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
