Tillaga að reglugerð um aðgerðir til að koma í veg fyrir misnotkun fjármálakerfisins hvað varðar peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka - 32024R1624

Regulation (EU) 2024/1624 of the European Parliament and of the Council of 31 May 2024 on the prevention of the use of the financial system for the purposes of money laundering or terrorist financing


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 09 Fjármálaþjónusta, 09.02 Bankar og aðrar fjármálastofnanir

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Tillaga að reglugerð um aðgerðir til að koma í veg fyrir misnotkun fjármálakerfisins hvað varðar peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Nánari efnisumfjöllun

Tillagan er hluti af svokölluðum "AML-pakka" ESB, ásamt tillögu að reglugerð um stofnun nýrrar evrópskrar eftirlitsstofnunar á vettvangi aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (COM (2021) 421), tillögu að reglugerð um aðgerðir til að koma í veg fyrir misnotkun fjármálakerfisins hvað varðar peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (COM (2021) 420) og tillögu að  að tilskipun um þær aðgerðir sem aðildarríki eiga að grípa til í því skyni að koma í veg fyrir misnotkun fjármálakerfisins hvað varðar peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (6. peningaþvættistilskipunin) (COM (2021) 423).Tillagan felur í sér breytingu á umgjörð núgildandi reglna um varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Gert er ráð fyrir að í reglugerðina verði færðar allar reglur sem eiga við um einkageirann á meðan stofnanaumgjörðin í aðildarríkjum verði áfram í tilskipunarformi. Í dag eru báðir þessir þættir í tilskipunarformi (fjórða og fimmta peningaþvættistilskipunin). Með því að mæla fyrir um þessar reglur í reglugerð er ætlunin að tryggja stöðugleika og samræmingu í beitingu reglnanna. Í reglugerðinni verður hins vegar einnig mælt fyrir um tiltekin nýmæli og breytingar á gildandi reglum. Má þar nefna sem dæmi að þeim sem teljast til tilkynningarskyldra aðila verður fjölgað, aðilar sem stunda hópfjármagnanir (e. crowdfunding platforms) munu t.d. falla undir reglugerðina, reglur um innri stefnur og stýringar eru skýrðar og breytingar gerðar á gildandi ákvæðum um raunverulega eigendur.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Nei
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Óvíst á þessu stigi. Verði "AML-pakkinn" samþykktur má gera ráð fyrir að breyta þurfi lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018 eða setja nýja löggjöf á þessu sviði. Innleiðing með reglugerðum kann einnig að koma til.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð
Hvaða hagsmunaaðilar Gera má ráð fyrir að samráð þurfi við ýmsa aðila, s.s. ráðuneyti, eftirlitsstofnanir og aðila úr einkageiranum.

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Innleiðing AML-pakkans í heild mun hafa talsverð áhrif og kalla á breytingar á löggjöf eða nýja lagasetningu.

Á vettvangi sérfræðingahóps um fjármálaþjónustu hafa verið greind hugsanleg "lárétt EES-álitaefni" (e. Possible EEA Horizontal Challenges) varðandi:
- Ákvæði sem vísa til gerða sem ekki hafa verið innleiddar í EES-samninginn.
- Ákvæði sem tengjast þriðju ríkjum.
- Ákvæði um möguleg tveggja stoða álitaefni sem ekki falla undir Bókun 1 við EES-samninginn.

Sjá einnig umfjöllun við aðrar tillögur pakkans (COM (2021) 421, COM (2021) 422, COM (2021) 423).

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Dómsmálaráðuneytið
Önnur ráðuneyti sem hafa aðkomu Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R1624
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/1624, 19.6.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2021) 420
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB