52025PC0981 - Reglugerð um einföldun ferla sem tengjast rafhlöðum og mengun frá iðnaði - COM(2025) 981
Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council .../... amending Regulation (EU) 2023/1542 and Regulation (EU) 2024/1244 as regards simplification of some requirements and reduction of administrative burden
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | Tillaga ESB sem er merkt EES-tæk |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Gerðar eru breytingar á tveimur reglugerðum sem ekki hafa verið teknar upp í EES-samninginn. Breytingarnar snúa að einföldun regluverks hvað varðar rafhlöður og gagnaskil bænda og fiskeldisfyrirtækja.
Nánari efnisumfjöllun
Í Samkeppnisvísi Evrópusambandsins (e. Competitiveness Compass for the EU) eru lögð drög að því markmiði að draga úr stjórnsýslukostnaði fyrirtækja um 25-35%. Svipuð sjónarmið koma fram í skýrslu Mario Draghi um framtíð samkeppnishæfni Evrópu. Tillagan er hluti af bandormi (e. omnibus) sem miðar að þessu markmiði.Reglugerðin er þrjár greinar. Sú fyrsta fjallar um breytingar á reglugerð um rafhlöður, önnur grein fjallar um breytingar á reglugerð um skil á umhverfisupplýsingum og sú þriðja fjallar um gildistöku reglugerðarinnar.Grein 1Í reglugerð (ESB) 2023/1542 um rafhlöður eru nokkrar breytingar gerðar:Skilgreiningu á „framleiðanda“ er breytt til að gera skilgreininguna óháða sölutækninni sem notuð er.Kröfur um hættumerkingu rafhlaðna eru skýrðar með tilvísun í skilgreiningar úr reglugerð (EB) 1907/2006 (REACH-reglugerðin) og reglugerð (EB) 1272/2008 um merkingu vara.Kröfum sem gerðar eru til viðgerða á rafhlöðum úr léttum samgöngutækjum (e. light means of transport) er breytt. Áður átti hönnun rafhlaðna að taka mið af því að hægt væri að skipta út stökum rafhlöðusellum en á þessu hefur orðið breyting þannig að ekki er lengur gerð krafa um að hægt sé að skipta út stökum sellum. Nú verði nóg að fagfólk geti fjarlægt rafhlöðustæður (e. battery pack).Ákvæði um hvernig framkvæmdastjórn Evrópusambandsins skuli rýna gagnaskil aðildarríkja á fjögurra ára fresti er breytt til að gefa framkvæmdastjórninni meiri sveigjanleika í sínum störfum og svo að rýni fari fram þegar öll nauðsynleg gögn eru komin í hús.Grein 2Á reglugerð (ESB) 2024/1244 er gerð eftirfarandi breyting:Kröfur um gagnaskil rekstraraðila sem halda húsdýr eða stunda fiskeldi, sem aðildarríkjum er heimilt að skila inn fyrir hönd rekstraraðila, verði einfölduð þannig að ekki sé gerð krafa um skil á gögnum um vatnsnotkun, orkunotkun og auðlindanotkun fyrir þessa rekstraraðila.Gengið er lengra að því leyti að aðildarríkjum er gert heimilt að undanskilja ofangreinda rekstraraðila frá kröfum um skýrsluskil er varða magn úrgangs sem fluttur er frá starfseminni, magn næringarefna sem berast frá starfseminni með skólpi, framleiðslumagn og vinnustundir, svo lengi sem aðildarríki geta aflað þessara gagna með öðrum hætti. Markmiðið er að lágmarka skýrsluskilaálaga á bændur og fiskeldi og að stjórnvöld geti nýtt sínar gagnalindir í staðinn.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Engar laga- eða reglugerðabreytingar |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Reglugerðin breytir neðangreindum reglugerðum. Hvorug þeirra hefur verið tekin upp í EES-samninginn. Það dugir að innleiða reglugerðina á sama tíma og neðangreindar reglugerðir eru innleiddar: Regulation (EU) 2023/1542 concerning batteries and waste batteries. Regulation (EU) 2024/1244 on reporting of environmental data from industrial installations, establishing an Industrial Emissions Portal and repealing Regulation (EC) No 166/2006 |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur |
Enginn kostnaður hlýst vegna reglugerðarinnar. Ekki var gert fjárhagslegt mat á reglugerðinni við undirbúning hennar. Áætlaður heildarsparnaður fyrirtækja samkvæmt greinargerð er um 20 krónur á hvern íbúa. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Enginn |
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Engir sérhagsmunir Íslands í húfi. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
| Aðrar stofnanir sem hafa aðkomu | Hagstofa, Matvælastofnun |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2025) 981 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu |
Leggur til breytingar á (Proposes to amend)
| 32024R1244 | Regulation (EU) 2024/1244 of the European Parliament and of the Council of 24 April 2024 on reporting of environmental data from industrial installations, establishing an Industrial Emissions Portal and repealing Regulation (EC) No 166/2006 | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
| 32023R1542 | Regulation (EU) 2023/1542 of the European Parliament and of the Council of 12 July 2023 concerning batteries and waste batteries, amending Directive 2008/98/EC and Regulation (EU) 2019/1020 and repealing Directive 2006/66/EC | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
Breytt af (Modified by)
| COM(2025) 980 52025DC0980 |
work related to work |
Breytir (Modifies)
| COM(2025) 986 52025PC0986 |
work related to work | Proposal for a Directive of the European Parliament and of the Council .../... amending Directives 2008/98/EC, 2010/75/EU, (EU) 2015/2193 and (EU) 2024/1785 of the European Parliament and of the Council as regards simplification of some requirements and reduction of administrative burden | Tillaga sem gæti verið EES-tæk |
| COM(2025) 985 52025PC0985 |
work related to work | Proposal for a Directive of the European Parliament and of the Council .../... amending Directive 2007/2/EC as regards simplification of certain requirements for the establishment of the Infrastructure for Spatial Information in the Union | Tillaga sem gæti verið EES-tæk |
| COM(2025) 984 52025PC0984 |
work related to work | Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council .../... on speeding-up environmental assessments | Tillaga sem gæti verið EES-tæk |
| COM(2025) 983 52025PC0983 |
work related to work | Proposal for a Directive of the European Parliament and of the Council .../... suspending the application of the rules on the appointment of authorised representatives for extended producer responsibility for waste, waste electrical and electronical equipment and single use plastic waste | Tillaga sem gæti verið EES-tæk |
| COM(2025) 982 52025PC0982 |
work related to work | Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council .../... suspending the application of the rules on the appointment of an authorised representative for extended producer responsibility for batteries and waste batteries and packaging and packaging waste | Tillaga sem gæti verið EES-tæk |
