32021R2282

Regulation (EU) 2021/2282 of the European Parliament and of the Council of 15 December 2021 on health technology assessment and amending Directive 2011/24/EU

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Tegund gerðar Reglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.13 Lyf
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 001/2025
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/2282 frá 15. desember 2021 um heilbrigðistæknimat og breytingu á tilskipun 2011/24/ESB.

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerð (ESB) 2021/2282 um heilbrigðistæknimat og breytingu á tilskipun 2011/24/ESB var samþykkt með það að markmiði að styrkja samvinnu aðildarríkja við mat á heilbrigðistækni. Með reglugerðinni er komið á formlegu, samræmdu ferli til að framkvæma sameiginlegt klínískt mat á heilbrigðistækni sem nær meðal annars yfir lyf, lækningatæki og tæki til greiningar í glasi. Reglugerðin er hluti af því að efla innri markað fyrir heilbrigðistækni og tryggja að vísindaleg gögn séu notuð á skilvirkan, gagnsæjan og samræmdan hátt.Megininntak reglugerðarinnar er stofnun samræmds ferlis fyrir svokallað sameiginlegt klínískt mat á heilbrigðistækni. Slíkt mat byggist á vísindalegum gögnum og er ætlað að meta hlutfallslegt öryggi og árangur meðferðar í samanburði við aðra valkosti. Matinu er ætlað að nýtast við ákvarðanatöku um verðlagningu, endurgreiðslu og upptöku nýrrar tækni í heilbrigðiskerfi ríkjanna, þó að slíkar ákvarðanir sjálfar séu áfram á ábyrgð hvers aðildarríkis. Reglugerðin viðurkennir þar með mismunandi fjárhagslegar og stefnumótandi aðstæður aðildarríkjanna og tryggir svigrúm þeirra til að meta tæknina í ljósi eigin heilbrigðisstefnu.Til að stuðla að gæðum og samræmi í matsferlinu er komið á fót samræmingarhópi aðildarríkjanna, sem ber ábyrgð á framkvæmd sameiginlegra klínískra mata og annarrar samvinnu, svo sem sameiginlegs vísindalegs samráðs. Reglugerðin kveður einnig á um möguleika fyrir þróunaraðila á heilbrigðistækni til að óska eftir slíku samráði áður en þeir leggja fram gögn til mats. Þetta á að auðvelda samskipti milli aðila, stuðla að skilvirkum undirbúningi og tryggja að klínísk gögn séu viðeigandi og nægjanleg fyrir markmið matsins.Auk þess tryggir reglugerðin með skýrum ákvæðum að meðferð gagna fari fram með hliðsjón af trúnaði og viðkvæmum upplýsingum, einkum með tilliti til viðskiptahagsmuna þróunaraðila. Upplýsingar sem birtar eru opinberlega skulu ekki bera kennsl á aðila né fela í sér trúnaðargögn, en jafnframt tryggja gagnsæi um niðurstöður matsins í þágu heilbrigðiskerfa, vísindasamfélags og almennings.Ein helsta nýjungin sem reglugerðin innleiðir er sú að niðurstöður sameiginlegra klínískra mata skulu liggja fyrir á samræmdum tíma með samþykkt nýrra lyfja og tækni, til þess að forðast tafir á aðgengi að nýrri heilbrigðistækni. Sérstök ákvæði gilda um matsferli fyrir lækningatæki og tæki til sjúkdómsgreiningar í glasi, þar sem gagnaöflun getur í sumum tilvikum átt sér stað eftir að tækið hefur verið komið á markað.Reglugerðin kveður einnig á um stofnun upplýsingakerfis og nýtingu stafrænnar innviða til að miðla gögnum og auðvelda samvinnu aðildarríkja, ásamt því að Evrópusambandið styður fjárhagslega við framkvæmd og þróun þessara ferla. Þar að auki er tekið mið af framtíðarrýni, með ákvæði um svokallaða nýjungavöktun (e. horizon scanning), til að bregðast tímanlega við væntanlegri tækni og styðja við stefnumótun í heilbrigðisþjónustu.Áhrif reglugerðarinnar má helst sjá í samræmdari framkvæmd mats á heilbrigðistækni innan Evrópska efnahagssvæðisins, aukinni samvinnu milli aðildarríkja og bættri nýtingu vísindalegra gagna. Reglugerðin dregur úr álagi á þróunaraðila sem áður þurftu að undirbúa og senda sömu gögn til margra ríkja og stuðlar þannig að hagkvæmni og fyrirsjáanleika. Hún styrkir jafnframt vísindalegan grundvöll fyrir ákvarðanatöku innan heilbrigðiskerfa aðildarríkja, án þess þó að skerða sjálfstæða stefnumótun þeirra. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Tæknilegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Verður innleidd með reglugerð með stoð í 59. og 109. gr. lyfjalaga nr. 100/2020
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Heilbrigðisráðuneytið

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32021R2282
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 458, 22.12.2021, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2018) 51
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Samþykktardagur
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 30, 8.5.2025, p. 1
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/749, 8.5.2025

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA Græn: Innleitt
Viðeigandi lög/reglugerði

Breytir (Modifies)

32011L0024 amends Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Samantekt EUR-Lex